|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Bið á flugtaki |
| Mánudagur, 11. maí 2009 16:41 | ||||||||||||||
|
Orangelitað sólarlagið heldur aftur af flugtaki Falcon F16 (ekkert svo langsótt) Valsarar voru mættir í Árbæinn í gær að sjá sína menn heimsækja Fylki. Menn voru hóflega bjartsýnir þrátt fyrir dapurt undirbúningstímabil enda Fylkir búinn að missa mikilvæga leikmenn án þess að styrkja sig með utanaðkomandi mannskap ólíkt Val. Það virtist ekki koma að sök í opnunarleik liðanna. Orange pjakkarnir skelltu stjörnprýddu Valsliði 1-0 og sigur heimamanna sanngjarn í alla staði. Það væsti ekki um áhorfendur sem lögðu leið sína í Lautina. Fylkismenn bíða enn eftir að Reykjavíkurborg hefji framkvæmdir á nýjum leikvang fyrir Árbæjarliðið en eflaust eru fyrirsjáanlegar frekari tafir á þeim miðað við árferði efnahagslífsins. Þangað til verða menn að gera sér að góða völl af gamla skólanum með þaklaus stæði öðrum megin vallarins þar sem áhorfendur sitja þétt saman. Minnir óneitanlega á gamla Hlíðarenda þó svo að góða veðrið sem fylgdi honum jafnan hafi vantað í gærkvöldi. Valur spilaði 4-5-1 leikkerfi með Viktor Unnar einan frammi gegn ógnarvörn Fylkisliðsins. Þeir Marel og Helgi byrjuðu á bekknum en báðir eru þeir að jafna sig á meiðslum eins og við var að búast. Ekkert bólaði á gamla Fylkismanninum Alberti Ingasyni í liði Vals og framherjinn Pétur Markan mátti gera sér tréverkið að góðu til að byrja með. Jafnræði virtist vera með liðunum framan af en Valsmenn virkuðu full varkárir í sínum aðgerðum á með Fylkismenn voru ákveðnir í öllum návígjum og gáfu Val lítið pláss. Eftir tæpan 20 mínútna leik skoruðu heimamenn eina mark leiksins en Kjartan Sturluson virtist eiga að geta ráðið við skotið. Kjartan hefur legið undir mikilli gagnrýni allt frá því að hann var valinn í landsliðið fyrir tæpu ári síðan. Eins og nefnt var á Valsarar.is fyrir mót þá er Kjartan kominn með samkeppni um markmannsstöðuna í fyrsta sinn á Hlíðarenda. Vissulega hefur verið góð reynsla af Kjartani heilt yfir síðustu árin en hann hefur ekki efni á fleiri slíkum mistökum á næstunni. Valsliðið fór sér engu óðslega þrátt fyrir að lenda 1-0 undir. Það komu ágætis leikkaflar hjá liðinu en heilt yfir náði það ekki að setja neinn verulegan þrýsting á Fylki sem voru duglegir að loka svæðum og með beitta menn frammi sem pressuðu hátt á Valsliðið. Síðari hálfleikur bauð upp á meira af því sama. Fylkismenn brutu niður leik Valsliðsins skipulega en bæði Valur Fannar og Pape Mamadou Faye voru á mörkunum að fá á sig annað gult spjald. Willum skipti þeim Helga Sig og Marel inn á og gerði sá fyrr nefndi tilkall til vítaspyrnu en Eyjólfur Héðinsson var aldrei á þeim buxunum að benda á vítapunkt Fylkis. Pétur Georg fékk einnig dauðafæri fyrir opnu marki en var skref lengd frá boltanum. Leikurinn fjaraði síðan út án þess að Valur næði að ógna forystu heimamanna að verulega marki. ![]() Líkt og svo alltof oft á síðustu leiktíð gekk leikskipulag Vals út á þétt spil með áherlsu á að loka á andstæðinga. Þegar liðið lendir undir reynist sú áætlun fallvölt. Valur er vissulega með óárennilega varnarlínu og Guðmundur Viðar Mete leit þokkalega út sem djúpur miðjumaður fyrir framan hana. Sóknarleikurinn er samt alltof ómarkviss og tilviljunar kenndur. Það er í raun ótrúlegt að eins vel mannað lið og Valur hefur á að skipa geti ekki stjórnað leiknum betur gegn ungu og óreyndu liði Fylkis, með fullri virðingu fyrir þeim. Valur stefnir á toppbaráttu í sumar. Það er engin ástæða til að fara eitthvað í kringum það. Til þess að það megi takast þarf að leggja upp með sóknaráætlun gegn liðum sem eru augljóslega lakari á pappírnum. Auðvitað er skiljanlegt að Valsliðið fari varlega gegn beittum sóknarliðum eins og FH eða Keflavík en í leik sem þessum hljóta menn að geta leyft sér meiri áhættusækni. Vissulega er hægt að skrifa þetta tap á vorbrag en liðið hefur ekki of mikinn tíma til að stilla sína strengi. En þó að liðið hafi ekki virkað sannfærandi í gær er ýmislegt jákvætt hægt að draga frá þessum leik. Vörnin virkar örugg og allir leikmenn með sín hlutverk á hreinu. Við erum með ágæta leikmenn á báðum köntum í þeim Baldri Aðalsteins og Óla Palla auk Hafþórs Ægis sem getur einnig valdið usla. Það er líka óskandi að Baldur Ingimar fái að spila sína bestu stöðu sem er á hægri kanti en ekki þeim vinstri líkt og hann hefur margsannað. Baldur er besti krossari deildarinnar en þeir hæfileikar nýtast illa þegar hann er að spila vitlausa stöðu. Fram á við leit Viktor Unnar prýðilega út og var óheppinn að komast ekki framhjá Fjalari í fyrri hálfleik. Viktor er ungur leikmaður á uppleið og Willum hefur gjarnan haft gott lag á þannig spilurum síðustu árin. Helgi og Marel eru auðvitað viss spurningamerki en þeir þurfa helst báðir að komast á fulla ferð mjög fljótlega. Fyrstu fimm umferðir mótsins eru leiknar nú á tæpum þremur vikum og Valsmenn verða koma vélinni út úr skýlinu strax í næsta leik gegn Fjölni til að hægt sé að ná hæstu hæðum í lok móts. Sá leikur fer fram á Hlíðarenda á fimmtudaginn klukkan 19.15. Besservisserar (7)
![]()
TonyK
said:
|
|
... Æi, getur Börkur ekki bara sleppt því að vera að hoppa í alla fjölmiðla um leið og eiithvað er fjallað um Val. Ég mundi nú halda að flestir vita það að þú færð ekki alla þessa leikmenn til liðsins bara uppá strætómiða og baguette. Svo er alltaf verið að tala um að við höfum misst 10-12 leikmenn eftir tímabilið en sú upptalning er soldið furðuleg. Þar er til dæmis alltaf taldir upp leikmenn einsog Kristinn Hafliðason sem spilaði ekkert síðasta season. |
|
... Svo er líka Gunnar Einars og Daníel Hjaltason farnir en ætli þeir teljist ekki líka með. Þetta er dýrt lið og við skulum bara sætta okkur við það og miðað við að allt er á hausnum hérna á Ísland er þetta rándýrt og öruugglega 20 sinnum dýrara en Fylkisliðið er. |
|
... Hugsa samt að launatékkinn hjá útlendingafjarkanum í fyrra hafi verið miklu mun hærri heldur en það sem er nú verið að borga þeim sem komu í fyrra. Kiddi Hafliða spilaði kannski ekki með í fyrra, en hann jók samt á breiddina, og gerði bara ágætis mót í hitteðfyrra. Finnst bara í góðu lagi hjá Berki að stinga uppí þetta sífellda peningavæl í Hödda Magg og Henrý Birgi, sem báðir halda með rándýrum liðum sjálfir. |
|
... Það er bara staðreynd hvernig umfjöllunin hefur verið í fjölmiðlum og var mikilvægt hjá Berki að stöðva þetta áður en of langt væri komið. Rækjusamlokurnar á íþróttadeildinni hjá 365 eru ekki fréttamenn frekar en á Séð og Heyrt þannig að það er fínt að það séi aðeins stungið upp í þá. |
|
... KR-ingurinn Henry Birgir nýtir öll tækifæri til að skjóta á Valsmenn og hér er hans nýjasta útspil : http://blogg.visir.is/utanvallar/?p=85 Sjaldan séð mann með jafn mikla minnimáttarkennd og Húsvíkinginn bitra. |
|
... Þessi yfirlýsing hjá Berki snýst upp í andhverfu sína því í staðinn fyrir að stöðva umræðuna um launin þá verður hún miklu meiri því það var enginn að pæla neitt í þessu sem Valur Fannar sagði. |
|
... Þessi grein hjá Henry var fyrirsjáanleg en ekki beint neinar rangfærslur í henni. Fyrir utan kannski þessa launakönnun eftir sjálfan sig sem hann vitnar í en hún innihélt ekki neinn stóra sannleik. Reyndar stóð bara ekki neitt í henni. Henry var nýbúinn að kvarta undan óspennandi móti en fékk þarna tilefni til að skrifa eitthvað krassandi. Annars er ég sammála honum með það að ég skil ekki alveg þessi hörðu viðbrögð stjórnar. Valur hefur fengið svona glósur áður á síðustu árum og þessi orð Vals Fannars voru ekki beint að sprengja Richter skalann. |