• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Takk og bless
Höfundur: Valsarar.is   
Miðvikudagur, 01. júlí 2009 14:44
Jæja, Willum farinn og þetta staðlaða sameiginlegt samkomulag um starfslok rúnk borið í fjölmiðla.Willum Þór
Veit ekki alveg hvað manni á að finnast um þetta, Willum er maðurinn sem tók við jójó-andi liði Vals, og gerði úr þeim meistarakandídata strax á fyrsta tímabili sínu. Valsmenn eiga Willum miklar þakkir skyldar.

Það má hinsvegar segja að velgengni Willums hafi lagt drög að endalokum hans í starfi, enda hefur hans góða frammistaða með liðið skotið stoðum undir síauknar kröfur um betra gengi, sem er í sjálfu sér vel, en það er nefninlega ekkert svo langt síðan Valsmenn voru bara bærilega sáttir við að ná að hanga í efstu deild.

Menn hafa auðvitað sínar skoðanir á aðferðum Willums og leikskipulagi, en fyrir mína parta vil ég þó þakka honum fyrir hans framtak hjá Val, hann hefur lyft grettistaki í uppbyggingarstarfi og náði svo sannarlega að stimpla klúbbinn aftur inn í hóp þeirra bestu.

Bikarmestarar 2005
Meistarar meistaranna 2006
Íslandsmeistarar 2007
Íslandsmeistarar Innanhúss 2008
Atlantic Cup 2008
Deildarbikarmeistarar 2008

Takk fyrir okkur Willum, virkilega!

Digg    Facebook   
Besservisserar (9)add comment

TonyK said:

...
Sammála. Þakk Willum fyrir vel unnin störf.
Næsti manager= Atli Eðvalds...........
15:23 | 01 júlí | 2009

Valþór said:

...
Nei herregud... Atli Eðvalds smilies/shocked.gif
15:28 | 01 júlí | 2009 | url

TonyK said:

...
Hví ekki Atli Eðvalds? Týndi sauðurinn snýr aftur á heimahagana..........
15:40 | 01 júlí | 2009

Valþór said:

...
Tjah þegar þú nefnir það, þetta erum við...
15:47 | 01 júlí | 2009 | url

TonyK said:

...
Þetta erum við voru samt eiginlega þeir en nú munum við vera við........skilurðu.........smilies/grin.gif
16:23 | 01 júlí | 2009

Valþór said:

...
Já, ég og c.a. 2 aðrir á jarðkringlunni skilja þetta...
16:24 | 01 júlí | 2009 | url

AG said:

...
HVAÐ ERU MENN AÐ PÆLA.

MIG LANGAR BARA AÐ BENDA YKKUR Á AÐ WILLUM ER EINN FÆRASTI ÞJÁLFARINN OG EKKI GLEYMA AÐ HANN FÆRÐI VAL 2 STÓRA TITLA EFTIR MÖRG SVÖRT ÁR. 13 ÁR FRÁ BIKARMEISTARATITLI OG 20 FRÁ ÍSLANDSMEISTARATITLI. MARGIR REYNDU ÁÐUR EN GÁTU EKKI.

Mig langar bara að benda ykkur á og skoða t.d. leikmanalisti t.d. hjá kefalavík, kr. og Fh og einning meislalistann hjá þessum liðum og svo okkar. með fullri virðingu þá eru bara þessi lið með sterkari hóp en við.

svo langar mig líka að benda á að það virðist eins og að það séu þarna í stjórninii og framkvæmdastjórn séu menn semm eru ekki að styðja Willum. hvaða reynslu og þjálfun hafa formaður og framkvæmdastjórinn yfir willum. enga að mínu mati en þessir bræður virðast ráða ölllu.

gott dæmi með þetta var hann kristján sem willium vissi ekki einu sinni að var búið að selja hann þegar blaðamaður spurði hann umm það og willum svaraði bara nei það er ekki sagt en hringdi svo í börk sem svaraði já willium það er búið að selja hann.

lýsir þetta ekki einhverju um hver vill ráða.

læt hér fyljga með tilvitnum frá bræðranum sl haust þegar gerður var nýr samningur við willium



Hann er mikill leiðtogi og nákvæmlega sá maður sem við viljum halda í sem lengst og það er tryggt næstu fjögur árin," sagði Edvard Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, við mbl.is við það tilefni.

Bróðir hans, Ótthar, sagði við fótbolta.net af sama tilefni.

„Við erum mjög sáttir með Willum enda værum við annars ekki að gera fjögurra ára samning við hann ef það væri ekki. Við erum í skýjunum með þetta, það er hvergi hæfari mann að finna til að stýra okkar liði," sagði Ótthar Edvardsson sem er yfirmaður afrekssviðs Vals við Fótbolta.net.


mig langar líka að spyrja ykkur hina valsmnenn. hvaða reynslu og réttindi hefur þessi ótthar til að vera yfirmaður afrekssviðs Vals
hvaða mentun hefur hann veit einhver það.

langar bara svo að seigja ykkur að þótt þeir bræður hafi spilað með Val þá voru þeir nú meira og minna að spila fyrir Kr og ég tel þá nú sérstaklega ótthar meiri kringa heldur en Valsmenn.

þess vegna finnst mér þessi ákvörðun stjórnarinnar að láta Willium fara hrikalega vitlaus ef við vinnum FH þá erum við einu stigi frá Kr. sem mér finnst nú bara viðunandi miðað við mannskap, meiðsli og annað

það tekur alltaf tíma að stilla lið með mörgum nýjum mönnum því valsliðið er eitt mest breytta lið frá síðasta tímabili.

hvernig væri nú að reka þessa menn í stjórninni næsta aðalfundi og fá einherja alvöru valsmenn í þetta sem bera haf félagsins fyrir brjósti en ekki fyrir sjálfan sig.

með kveðju.

21:22 | 01 júlí | 2009

Steindór said:

...
Hefur þú mætt á einhverja leiki í sumar AG? Því ef þú værir búinn að sjá leikina með Val þá væriru ekki að rífa þig. Og fyrst þér finnst málið snúast um Val og Kr þá spyr ég hvort finnst þér Willum meiri Kringur eða Valsari? Ekki að það skipti neinu máli því Willum er búinn að vera flottur Valsari á þessum tíma og líka bræðurnir svo ég fatta ekki alveg þessa pælingu hjá þér.
00:12 | 02 júlí | 2009

AG said:

...
í fyrsta lagi já ég er búinn að fara á leikina. þó ég sé það ekki skipta máli hvort ég sé á móti þessum ákvörðunum stjórnar Vals. og það hvort willium er kr eða valsari á ekki að skipta máli, hann er þarna sem þjálfari, p.s. að klára eina hæstu þjálfaragráðu núna en formaður stjórnar og og yfirmaður afrekssviðs eiga að vera gallharðir valsarar með valshjarta.
kveðja AG
10:59 | 02 júlí | 2009

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 11:01