|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Þriðjudagur, 12. maí 2009 18:22 |
 Yfirlýsing frá Val Fannari Gíslasyni (tekið af Valur.is)
Ég undirritaður vil hér með draga til baka ummæli mín eftir leik Fylkis og Vals í Pepsídeild karla þann 10. mai síðastliðinn. Þau ummæli sem ég lét hafa eftir mér voru engan veginn til þess fallin að gera lítið úr mótherjum mínum né rýra það góða starf sem á sér stað á Hlíðarenda heldur eingöngu sögð til gamans. Ég á marga góða félaga í Val og voru orð mín eingöngu sögð til að skjóta léttum skotum á félaga mína í Val þar sem við Fylkismenn vorum klárlega í hlutverki litla liðsins í þessum leik.
Að lokum vil ég þakka Valsmönnum fyrir góðan leik og óska þeim alls hins besta á komandi sumri.
Valur Fannar Gíslason
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 12. maí 2009 18:41 |
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 11. maí 2009 00:06 |
|
Ekki var nú hátt risið á Valnum í kvöld. 1-0 tap í fyrstu umferð var ekki beint óskabyrjun. Umfjöllun um leikinn kemur inn á morgun en endilega hendið inn áliti í athugasemdakerfið.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 11. maí 2009 00:06 |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 04. maí 2009 18:29 |
|
Valsarar.is eru við það ná sér eftir áföll síðasta keppnistímabils.Beinskeitt og gagnrýnin umfjöllun handan við hornið.
|
|
Valur - Bate 19.15 í kvöld |
|
Miðvikudagur, 23. júlí 2008 12:03 |
 Bate frá Hvíta Rússlandi mæta í dag á Vodafone völlinn í leik sem er líklega fyrsti Evrópuleikurinn í knattspyrnu sem fram hefur farið á Hlíðarenda. Eins og allir Valsarar vita þá sigruðu Hvít-Rússarnir okkur 2-0 á sínum heimavelli sem þýðir að ekkert minna en 3-0 sigur dugir okkur til að komast áfram. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður upphitun hjá Stuðurum frá klukkan 17.00. Áframhaldandi þátttaka í undandkeppni Meistaradeildarinnar er í húfi og kúltúrferð til Brussel næsti dagskrárliður komist Valsliðið áfram. Íslenska þjóðin treystir því á okkur Valsmenn.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 23. júlí 2008 12:06 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 9 af 11 |