• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Staðfest
Skellur
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 18. maí 2009 22:54
Valur er kominn aftur á jörðina eftir að hafa lyft sér á smá flug gegn Fjölni á dögunum. 3-0 skellur í Keflavík og aldrei möguleiki gegn meistara kandídötum. Nánar um leikinn á morgun en endilega baunið inn á álitum í millitíðinni.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Mánudagur, 18. maí 2009 22:54
 
Sannfærandi
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 14. maí 2009 21:58
Öruggur sigur á Fjölni í kvöld 3-1 sem hefði hæglega getað orðið mun stærri. Allt annað Valslið mætti til leiks í kvöld heldur en gegn Fylki síðasta sunnudag. Helgi Sig og nýliðarnir Ólafur Páll Snorrason og Marel Baldvinsson sáu um að ganga frá sigrinum. Meira af þessu Valur!

Umfjöllun um leikinn kemur inn á morgun en þangaði til væri gaman að fá álit lesenda á leiknum í kvöld.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 14. maí 2009 21:59
 
Hitað upp...
Höfundur: Valþór Druzin   
Fimmtudagur, 14. maí 2009 12:46
 Við viljum vekja athygli á að stuðningsmenn ætla að hittast og hita upp við hið sögufræga Fjós á Hlíðarenda fyrir leikinn í kvöld.
Vindskermandi partítjald verður uppsett við fjósið, og veigar á ákaflega vægu verði. Menn geta þá hist og rætt málin og haft gaman, svona uppúr kl.18

Það er svo hugmyndin að þetta verði fastur liður fyrir heimaleikina í ár.
Koma svo...áfram Valur

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:09
 
Haldiði svo KáJoð!
Höfundur: Valþór Druzin   
Þriðjudagur, 12. maí 2009 18:30

 Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild vegna leikmannamála

(tekið af Valur.is)

Að undanförnu hefur töluvert verið fjallað um leikmannamál meistaraflokks Vals í knattspyrnu. Í umræðunni hefur oft verið farið frjálslega með staðreyndir og því nauðsynlegt að leiðrétta rangfærslur.

Því hefur meðal annars verið haldið fram í fjölmiðlum að Valur hafi fengið „mikið meira en níu leikmenn til liðs við liðið fyrir tímabilið“.  Hið rétta er að félagið fékk átta leikmenn fyrir nýhafið keppnistímabil og rétt er að geta þess að tólf leikmenn fóru frá félaginu á síðasta tímabili.

Stjórnendur knattspyrnudeildar Vals leggja kapp á aðhald og ráðdeild þegar kemur að rekstri deildarinnar. Kristján Hauksson var nvýerið seldur til Fram á verði sem við Valsmenn höfum ekki áður fengið fyrir leikmann sem seldur hefur verið til innlends félags. Á miðju síðasta tímabili seldi félagið þá Pálma Rafn Pálmason og Birki Má Sævarsson fyrir dágóðar upphæðir. Samningar við þá fimm erlendu leikmenn sem voru á mála hjá félaginu á síðasta ári voru ekki endurnýjaðir.

Knattspyrnudeild Vals fjallar ekki um launamál einstakra leikmanna á opinberum vettvangi. Engu að síður finnst okkur nauðsynlegt að taka fram að laun Marels Baldvinssonar, sem nýverið gekk til liðs við félagið, eru mun lægri en haldið hefur verið fram í fjölmiðlum.

Eftir leik Fylkis og Vals var haft eftir Vali Fannari Gíslasyni, fyrirliða Fylkis, að Valur væri með dýrasta lið Íslandssögunar. Þetta er vissulega fásinna enda hefur Valur Fannar dregið þessi orð sín til baka og beðið Valsmenn afsökunar á þeim.
Stjórn knattspyrnudeildar Vals vonar að þeir sem um knattspyrnu fjalla muni nú leggja áherslu á það sem öllu máli skiptir, íþróttina sjálfa.

F.h. stjórnar knattspyrnudeildar,

E. Börkur Edvardsson, formaður

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:11
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 8 af 11