|
Fyrsti úti sigur tímabilsins |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 28. maí 2009 23:45 |
|
Valur gerði góða ferð í Laugardalinn í kvöld og lagði að velli flökkufélagið Fram með mörkum frá besta framherja deildarinnar og besta bakverði deildarinnar. Umfjöllun um leikinn dettur inn á morgun en þangað til mega menn endilega bauna inn skoðunum á leiknum.
|
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 28. maí 2009 23:45 |
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 28. maí 2009 11:36 |
 Í kvöld sækir meistaraflokkur karla heim erkifjendur okkar í Fram á Þjóðarleikvangnum, enda á Fram ekki heimavöll eins og allir vita. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og ljóst er að allt annað en þrjú stig í kvöld hækkar hitastigið undir stól þjálfarans enn frekar.
|
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 28. maí 2009 11:36 |
|
Fyrsti Valsarinn til að verða Evrópumeistari |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 28. maí 2009 00:49 |
 Eiður Smári Guðjohnsen sem hóf meistaraflokks feril sinn árið 1994 með Knattspyrnufélaginu Val varð í kvöld fyrstur leikmanna Vals til að verða Evrópumeistari og það í Meistaradeildinni sjálfri. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að Eiður braut ísinn með meistaraflokki Vals á sínum tíma og gekk svo til liðs við PSV Eindhoven. Nú hefur hann náð hæsta tindi eftir margar lægðir en botninum var án efa náð þegar hann var í hlutverki feitabollu í KR. Valsmaðurinn Guðni Bergsson hjálpaði til við að draga Eið Smára af upp af botninum á sínum tíma og restin er hluti af sagnfræðinni. Glæsilegt Eiður!
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 11:02 |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 25. maí 2009 23:01 |
 Já hvað er hægt að segja. 1-1 gegn Grindavík og ekki neitt merkilegt í gangi. Umfjöllun um leikinn bíður til morguns en á meðan hefur Captain Jean-Luc Picard orðið. Endilega sendið inn álit á frammistöðu Valsliðsins.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 25. maí 2009 23:13 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 7 af 11 |