|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 04. júní 2009 13:58 |
 Valur dróst gegn Álftanesi í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar í ár. Þetta ætti að geta orðið nokkuð þægilegur leikur fyrir okkar menn en Álftanes afrekaði að slá út 1. deildar lið ÍR í síðustu umferð. Knattspyrnufélagið Valur hefur ekki unnið bikarkeppnina síðan 2005 og er löngu kominn tími á 10 bikarinn á afrekaskrá meistaraflokks karla.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 11:04 |
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Þriðjudagur, 02. júní 2009 00:08 |
|
Valur vann mikilvægan 2-1 sigur gegn 10 leikmönnum Þróttar í kvöld. Segja má að Valsmenn rétt hangi inni í kapphlaupinu við FH sem byrja mótið með stæl enn eitt árið. Umfjöllun um leikinn kemur um hádegisbilið en þangað til er lesendum frjálst að skrá inn athugasemdir.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 02. júní 2009 00:09 |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 01. júní 2009 13:11 |
 Í kvöld mæta Reykjavíkur Þróttarar í heimsókn á Hlíðarenda. Leikurinn hefst klukkan 19.15 en Valsarar eru hvattir til að mæta í upphitun frá klukkan 18.00 í partý tjaldinu okkar sem er staðsett á bakvið fjósið. Þróttur bíður enn eftir sínum fyrsta sigri en Valur þarf nauðsynlega á þremur stigum að halda til að missa ekki af toppbaráttunni þetta sumarið.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 01. júní 2009 13:12 |
|
Annar Valsari Evrópumeistari |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Sunnudagur, 31. maí 2009 18:01 |
 Ólafur Stefánsson tryggði í dag liði sínu Ciudad Real sigur í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Fyrir nokkrum dögum vann einmitt Eiður Smári einnig Meistaradeildartitil í knattspyrnu með Barcelona. Heldur betur góður árangur hjá þessum gömlu Valsmönnum á alþjóðavettvangi á innan við viku. Enn og aftur kemur ljós hversu mikilvægt veganestið vill oft reynast sem menn fá á Hlíðarenda.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 11:03 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 6 af 11 |