|
Höfundur: Valþór Druzin
|
|
Föstudagur, 17. júlí 2009 15:18 |
|
Arnar Bergmann Gunnlaugsson semur við Val
Knattspyrnufélagið Valur og Arnar Bergmann Gunnlaugsson hafa gert með sér samkomulag um að Arnar leiki með Valsmönnum út þetta tímabil.
Miklar vonir eru bundnar við Arnar sem er einn reynslumesti og ástsælasti leikmaður íslenskrar knattspyrnu síðustu árin..
Arnar Bergmann Gunnlaugsson semur við Val
Knattspyrnufélagið Valur og Arnar Bergmann Gunnlaugsson hafa gert með sér samkomulag um að Arnar leiki með Valsmönnum út þetta tímabil.
Miklar vonir eru bundnar við Arnar sem er einn reynslumesti og ástsælasti leikmaður íslenskrar knattspyrnu síðustu árin.

Valsarar.is vilja bjóða eldri bróður Herra Íslands, hjartanlega velkominn í Val
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 17. júlí 2009 15:34 |
|
|
Höfundur: Valsarar.is
|
|
Miðvikudagur, 01. júlí 2009 14:44 |
Jæja, Willum farinn og þetta staðlaða sameiginlegt samkomulag um starfslok rúnk borið í fjölmiðla. Veit ekki alveg hvað manni á að finnast um þetta, Willum er maðurinn sem tók við jójó-andi liði Vals, og gerði úr þeim meistarakandídata strax á fyrsta tímabili sínu. Valsmenn eiga Willum miklar þakkir skyldar.
Það má hinsvegar segja að velgengni Willums hafi lagt drög að endalokum hans í starfi, enda hefur hans góða frammistaða með liðið skotið stoðum undir síauknar kröfur um betra gengi, sem er í sjálfu sér vel, en það er nefninlega ekkert svo langt síðan Valsmenn voru bara bærilega sáttir við að ná að hanga í efstu deild.
Menn hafa auðvitað sínar skoðanir á aðferðum Willums og leikskipulagi, en fyrir mína parta vil ég þó þakka honum fyrir hans framtak hjá Val, hann hefur lyft grettistaki í uppbyggingarstarfi og náði svo sannarlega að stimpla klúbbinn aftur inn í hóp þeirra bestu.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 11:01 |
|
Nánar...
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Miðvikudagur, 24. júní 2009 12:01 |
 Á fimmtudagskvöld förum við Valsarar í heimsókn á gervigrasið í Garðabæ og spilum gegn spútnikliði Stjörnunnar. Garðabæjarliðið er búið að koma mikið á óvart í sumar og skellti m.a. Fram 4-1 á dögunum en einnig fengið sína skelli gegn FH og síðan Fylki í bikarnum. Blikar lögðu Stjörnumenn á mánudaginn og Valsarar verða að vona að nýja brumið sé farið af nýliðunum. Leikurinn hefst klukkan 19.15. Lesendur geta unnið sér inn einn fisléttan í Stuðaratjaldinu á næsta heimaleik með því að giska á rétt úrslit í athugasemdunum.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 11:06 |
|
Fleiri námskeið fyrir Willum |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 22. júní 2009 22:58 |
 Þorgrímur Þráins lagði línurnar í kvöld og það var ekki að sökum að spyrja. Pétur Georg Markan sýndi að það er ekkert sem amar að honum og gaf tóninn eftir 7-8 sekúndur. Það er þá nákvæmlega ekkert AÐ Markan eftir allt saman, a.m.k á meðan ákveðinn maður er utan landhelgi. Ólafur Páll klýndi öðru marki eftir 10. mínútna leik og þar við sat. 2-0 sigur hjá Val og við skríðum hægt og rólega upp töfluna. Umfjöllun um leikinn kemur inn á morgun en þangað til er orðið laust fyrir lesendur.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 11:05 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 4 af 11 |