Flottur sigur á Fylki í kvöld og jafnframt fyrsti heimasigurinn frá því gegn ÍBV í fyrra. Sá leikur gegn Eyjamönnum var jafnframt síðasti leikurinn sem Valsliðið hélt hreinu á heimavelli. Mörk frá Danni Köning, Hauki Páli, Baldri Ingimar og Ian Jeffs gerðu gæfumunninn. Valssonurinn Albert Ingason skoraði fyrir Fylki ásamt Pape Faye sem klóraði í bakkann á lokamínútunum. Nánari umfjöllun dettur inn á morgun.
Langþráð þrjú stig skiluðu sér loks í hús hjá liði Vals í kvöld gegn Grindavík suður með sjó. Mörk frá Danni Köning og Jóni Vilhelm gerðu gæfumuninn en litlu mátti muna að heimamenn hirtu stig á lokamínútunum. Umfjöllun um leikinn dettur inn á morgun.
Jafntefli 1-1 gegn ÍBV í leik þar sem okkar menn voru manni fleiri bróðurpart leiksins var vægast sagt ergileg niðurstaða. Umfjöllun um leikinn dettur inn á morgun en þangað til er orðið laust fyrir aðra besserwissera.