|
Höfundur: Valþór Druzin
|
|
Þriðjudagur, 12. maí 2009 18:30 |
Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild vegna leikmannamála
(tekið af Valur.is)
Að undanförnu hefur töluvert verið fjallað um leikmannamál meistaraflokks Vals í knattspyrnu. Í umræðunni hefur oft verið farið frjálslega með staðreyndir og því nauðsynlegt að leiðrétta rangfærslur.
Því hefur meðal annars verið haldið fram í fjölmiðlum að Valur hafi fengið „mikið meira en níu leikmenn til liðs við liðið fyrir tímabilið“. Hið rétta er að félagið fékk átta leikmenn fyrir nýhafið keppnistímabil og rétt er að geta þess að tólf leikmenn fóru frá félaginu á síðasta tímabili.
Stjórnendur knattspyrnudeildar Vals leggja kapp á aðhald og ráðdeild þegar kemur að rekstri deildarinnar. Kristján Hauksson var nvýerið seldur til Fram á verði sem við Valsmenn höfum ekki áður fengið fyrir leikmann sem seldur hefur verið til innlends félags. Á miðju síðasta tímabili seldi félagið þá Pálma Rafn Pálmason og Birki Má Sævarsson fyrir dágóðar upphæðir. Samningar við þá fimm erlendu leikmenn sem voru á mála hjá félaginu á síðasta ári voru ekki endurnýjaðir.
Knattspyrnudeild Vals fjallar ekki um launamál einstakra leikmanna á opinberum vettvangi. Engu að síður finnst okkur nauðsynlegt að taka fram að laun Marels Baldvinssonar, sem nýverið gekk til liðs við félagið, eru mun lægri en haldið hefur verið fram í fjölmiðlum.
Eftir leik Fylkis og Vals var haft eftir Vali Fannari Gíslasyni, fyrirliða Fylkis, að Valur væri með dýrasta lið Íslandssögunar. Þetta er vissulega fásinna enda hefur Valur Fannar dregið þessi orð sín til baka og beðið Valsmenn afsökunar á þeim. Stjórn knattspyrnudeildar Vals vonar að þeir sem um knattspyrnu fjalla muni nú leggja áherslu á það sem öllu máli skiptir, íþróttina sjálfa.
F.h. stjórnar knattspyrnudeildar, E. Börkur Edvardsson, formaður
 |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:11 |