|
Fyrsti Valsarinn til að verða Evrópumeistari |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 28. maí 2009 00:49 |
 Eiður Smári Guðjohnsen sem hóf meistaraflokks feril sinn árið 1994 með Knattspyrnufélaginu Val varð í kvöld fyrstur leikmanna Vals til að verða Evrópumeistari og það í Meistaradeildinni sjálfri. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að Eiður braut ísinn með meistaraflokki Vals á sínum tíma og gekk svo til liðs við PSV Eindhoven. Nú hefur hann náð hæsta tindi eftir margar lægðir en botninum var án efa náð þegar hann var í hlutverki feitabollu í KR. Valsmaðurinn Guðni Bergsson hjálpaði til við að draga Eið Smára af upp af botninum á sínum tíma og restin er hluti af sagnfræðinni. Glæsilegt Eiður!
 |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 11:02 |