|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Breiðablik næst |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||
| Sunnudagur, 14. júní 2009 21:51 | ||
![]() Mætir þessi? Næsti leikur meistaraflokks karla er á martraðarvelli Vals -Kópavogsvelli. Blikar taka á móti okkur en þess ber að geta að Valsmenn náðu langþráðum deildar sigri gegn Breiðabliki á síðasta tímabili. Aftur á móti töpuðum við fyrir HK og einnig slógu Blikar okkur úr bikarnum á vellinum alræmda. Leikar hefjast klukkan 20.00 og hinir vafasömu sófa Valsarar vita líklegast að leikurinn er í beinni á Stöð 2 Sport. Menn verða því löglega afsakaðir með að mæta ekki í Kópavoginn, þótt það sé auðvitað með öllu siðlaust og viðkomandi til háborinnar skammar. En annað eins gengur nú á í Vogi kópsins um þessar mundir þannig að léleg mæting að hálfu Valsara mun fljótt falla í gleymsku. Vonandi. Besservisserar (1)
![]()
Fúsi
said:
|
|
... Það er kannski ekki von að liðið nái ekki að slípast spilalega. Við stillum aldrei upp sama liði vegna óviðráðanlegra orsaka. Undanfarið hefur vörnin verið sú sama en nú var Reynir kominn i bakvörðinn fyrir Steinþór sem er meiddur. Auðvitað tekur það Reyni tíma að komast inní þessa stöðu sóknarlega. Miðjan hefur verið sú sama undanfarið en besti maður hennar Bjössi er meiddur og munar um minna spilalega. Baldur Aðalsteins hefur ekkert getað spilað sinn leik síðustu tvö árin svo að við eigum hann alveg inni. Ég verð nú bara að segja að liðið hefur verið fínt fyrir utan Keflavíkurleikinn. Liðið hefur verið betra í öllum leikjum sumarsins nema þessum Keflavíkurleik og kannski í gær sóknarlega. Samt á liðið inni og með þennan mannskap þá er bara að bíða og sjá von bráðar. |