• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Bikarinn í kvöld
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 18. júní 2009 12:35
Image
Gæsirnar á Álftanesi munu mæta Valnum frá Hlíðarenda í kvöld. Gera má ráð fyrir ójöfnum leik en menn geta spáð um úrslit í athugasemdakerfinu hér að neðan. Sá sem giskar á rétt úrslit vinnur sér einn léttan og getur vitjað vinningsins í Stuðaratjaldinu á næsta leik gegn ÍBV.

Digg    Facebook   
Besservisserar (6)add comment

Falcon said:

...
Spennandi viðureign og ef við vinnum og Stjarnan tapar, þá erum við í 2-3, með 16 stig. En þá þarf liðið að sýna betri leik en undanfarið, sérstaklega þurfa menn að hrista af sér hörmungina sem sýnd var á móti Álftanesi.
Annað: Hvað hefur gerst með Stuðara, hvar eru söngvarnir, trommurnar og hugmyndaauðgin? Og ekki síst, hvar eru þeir sjálfir? Ég hef ekki séð eða heyrt í Trommaranum og lítið hefur farið fyrir Sigga M.
08:25 | 22 júní | 2009

Gunnar said:

...
nákvæmlega þarf ekki að fara að gera eitthvað í þessu með stuðarana? En þetta verður samt öruggur sigur í kvöld. Helgi með 2 og Marel með 1
12:09 | 22 júní | 2009

Beggita said:

...
Sælir Valsarar.

Verð að fá að rasa smá...skrifaði þetta reyndar fyrr í sumar...en kom þessu aldrei frá mér...en...held að þessi orð eigi enn við....vakna Stuðarar!!!

Það er svo sannarlega allt í lagi að hafa skoðun á hlutunum...en koma svo...þið miklu spekingar...vera sanngjarnir!!!
Það tekur tíma fyrir nýja menn á nýjum stöðum að komast inn í hóp og menningu jafn gróins liðs eins og Valur er og það tekur tíma að ná sterku og öflugu samspili þegar menn eru ekki vanir að spila saman...þekkja ekki samverjann nógu vel af eigin raun og eru að læra á styrk og veikleika hvers annars...

Auðvitað er ferlega fúlt að hafa ekki fengið fleiri stig en raun ber vitni...en erum við ekki með of miklar og óraunhæfar kröfur í augnablikinu????

Gefum Willum og leikmönnum Vals tækifæri til að sanna sig....ég hef fulla trú á að maskínan hrökkvi í gang og er fullviss um að Valur verður með öflugasta lið sumarsins þegar upp er staðið...ekki spurning...Meistaratitillinn er þarna innan seilingar!!!!!
Við vitum að t.d liðin sem eru að hala inn stigum núna...eins og t.d Stjarnan og Fylkir...eru lið sem halda út hálft tímabilið eða svo en fara svo að dala þegar líður á....sanniði til...!!!

Það er rosalega auðvelt að sitja á sínum mjúka rassi og gagnrýna og brjóta niður leikmenn og lið en það er mín skoðun að stuðningsmenn eigi að vera baklandið...stuðningurinn við liðið í blíðu og stríðu...og gefa stuðningsmönnum annarra liða aldrei færi á að skynja vantrú og jafnvel vonbrigði og vanvirðingu við einstaka leikmenn...þjálfarann og liðið í heild...
Valshjartað er sterkt og slær kröftuglega...okkar hlutverk er að mæta á leiki...hvetja og vera til staðar...fagna á góðum stundum eða uppörva þegar illa gengur....

Mér finnst við....Stuðararnir...alls ekki vera að standa okkur í þessu hlutverki...erum hálf ósýnileg og oft á tíðum vanmáttug gagnvart stuðningsmönnum annarra liða...

Mér finnst við eiga að mæta a.m.k hálftíma fyrir leik Í STÚKUNA...og hita upp með liðinu...syngja og hafa gaman og láta heyrast að við erum mætt....
Hlíðarendinn á að vera OKKAR GRYFJA...LJÓNAGRYFJA....og andstæðingarnir eiga að finna styrkinn...baráttuna og gleðina sem á að vera til staðar í Stuðarahópnum...finna virðinguna fyrir liðinu og helst kvíða því að koma á völlinn þar sem krafturinn...gleðin og stuðningurinn eru nánast áþreifanlegur...

Byrjum á að skoða okkur...stuðningsmennina...og ég er algerlega fullviss um að jákvæðnin og skemmtilegheitin mun skila sér til leikmannanna og í leikina sjálfa....

Verum uppbyggjandi...jákvæð og hress....og stigin munu hlaðast upp á Hlíðarenda!!!

Koma svo....ÁFRAM VALUR!!!!
13:07 | 22 júní | 2009 | url

Birgir said:

...
Sammála síðasta ræðumanni í öllum atriðum.

Leikurinn fer 2-0 fyrir Val og við höldum áfram að læðast upp að Fh-ingum.
14:15 | 22 júní | 2009

Ási Sveinss said:

...
3-1 fyrir val, Marel, Pétur Markan og Ian Jeffs.
14:43 | 22 júní | 2009

Ingvi said:

...
Sammála pistlinum langa, hættum öllu væli, fjölmennum í upphitun og látum í okkur heyra. Eiga að kallast stórveldi síðast þegar ég vissi

áfram valur!
17:21 | 22 júní | 2009

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy