• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Annað hundraðið nálgast
Höfundur: Valsarar.is   
Sunnudagur, 15. ágúst 2010 21:05

bikarmeistarar2010
Mynd: fotbolti.net

Í öllum barlómnum sem fylgir meistaraflokki karla gleymist það alltof oft hér á Valsarar.is hversu frábært fótboltlalið meistaraflokkur kvenna er. Velgengni síðustu ára hefur síður en svo stigið liðinu til höfuðs heldur hefur stöðugleikinn haldist og uppskeran er tíundi stóri titillinn frá 2001 og sá ellefti er í seilingar fjarlægð. Stelpurnar urðu bikarmeistarar í tólfta sinn í dag eftir mikinn barnings leik gegn liði Stjörnunnar og titill númer 99 kominn í Íslands- og bikarmeistara safnið á Hlíðarenda. Liðið er síðan í dauðafæri í Pefsí deildinni til að bæta við hundraðasta titlinum í hús á hundraðasta starfsári félagsins. Engu keppnisliði innan Vals er betur treystandi til að ná því markmiði.

Viðbót á mánudegi:
Þetta var jafnframt  fimmtugasti Íslands- eða bikarmeistaratitill sem Valur vinnur í meistaraflokkum í fótbolta. Félagið er það sigursælasta í íslenskri knattspyrnu en næst á eftir kemur KR með 45 dollur og síðan ÍA með 36.

Digg    Facebook   
Besservisserar (2)add comment

MK said:

...
Bíddu erum við búin að vera sigursælasta knattspyrnufélag landsins í mörg ár án þess að vita almennilega af því? En frábært! Til hamingju Valsarar og svo tökum við númer 100 í haust!
12:18 | 16 ágúst | 2010 | url

Tryggvi Jóns said:

...
Við lauslegan útreikning sýnist mér að Valur hafi náð KR árið 2005, tekið fram úr 2006 og ekki litið til baka síðan.
13:19 | 16 ágúst | 2010 | url

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Mánudagur, 16. ágúst 2010 10:25