• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Skjálfti á Skaganum
Þriðjudagur, 22. júlí 2008 14:17
Image Útlitið er ekki bjart hjá góðkunningjum okkar á Akranesi þessa dagana. Lið ÍA ber sömu einkenni og KR á síðustu leiktíð sem virtist hafa hlaupið úr sér lungu og lifur á undirbúningstímabilinu.  Sigrar hjá Grindavík og Þrótti í síðustu umferð þýða að aðeins Fylkir er í seilingarfjarlægð fyrir Skagastórveldið sem má heldur betur mun sinn fífil fegurri.


Í annað sinn á sínum þjálfaraferli hefur Guðjón Þórðarson verið rekinn frá ÍA. Sagan segir að í fyrra skiptið hafi félagið mátt þola að borga samning hans upp í topp og að um hafi verið að ræða dýrasta brottrekstur íslenskrar knattspyrnu. Gott ef ekki kom til málaferla milli hans og félagsins. Samningsriftunin nú og ráðning nýrra þjálfara kostar eflaust skyldingin fyrir rekstararfélag ÍA.

Hákarlarnir á Hlíðarenda, Kaplakrika og Frostaskjóli virðast strax vera farnir að finna blóðlyktina og sú tröllasaga gengur fjöllum hærra að Bjarni sonur Guðjóns verði hluti af fórnarkostnaðinum við ráðningu tvíburanna.

Lítill fugl hvíslaði því í eyru valsara.is að Valsmenn ætli að bjóða ÍA talsverðan pening og Akurnesinginn Hafþór Ægi í skiptum fyrir Bjarna en Hafþór virðist ekki vera í náðinni hjá Willumi þessa dagana. Skagamenn hljóta samt að spyrja sig hvort þeir séu ekki að skrifa undir eigin hengingu með því að selja sinn besta mann í þessari stöðu í deildinni.

(Mynd: http://kfia.is)

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 22. júlí 2008 14:19