• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Kaffistund hjá Gróu á Leiti
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Föstudagur, 25. júlí 2008 17:41
Image *Valsarar.is þekkja hina og þessa menn á æðstu stöðum og innstu hringjum, að ógleymdum öllum helstu kjaftakerlingum beggja megin Faxaflóa. Einu og öðru hefur verið gaukað að okkur síðustu daga og eftirfarandi er það allra helsta. Taka ber skýrt fram að þetta eru allt sögusagnir sem ekki þurfa að eiga sér stoð í raunveruleikanum. En eins og gamla konan sagði þá ber ekki að láta góða sögu gjalda sannleikans.



*Þrennum sögum fer af því hvort frumkvæðið að sölu Bjarna sé vegna;
a) fyrirspurna annarra liða
b) frá honum sjálfum komið
eða
c) frá stjórn ÍA
(svo sem ekkert mikið fleiri sem koma til greina...)

*KR-ingar eiga að hafa stokkið inn í samningviðræðurnar um Bjarna Guðjónsson á elleftu stundu.

*Lítil stemmning var á meðal helstu stuðningsaðila KR fyrir kaupunum á Bjarna í fyrstu. Nýr styrktaraðili á að hafa stigið inn á ögurstundu og lýst sig tilbúinn að greiða fyrir félagskipti pilts yfir í KR og þar með snúið fallvötnunum í vestur átt.

*Samkvæmt heimildum Valsara.is leitar hugur Bjarna frekar í Frostaskjólið heldur en á Hlíðarenda.

*ÍA á að hafa gert kröfur um að Hafþór Ægir Vilhjálmsson yrði hluti af skiptunum en á það vildu Valsmenn alls ekki fallast enda pilturinn bráðungur og á framtíðina fyrir sér.

*Enn ein kjaftasagan er að Skagamenn þurfi að greiða Guðjóni 12 mánaða biðlaun vegna uppsagnarinnar. Margar misjafnar tölur hafa verið nefndar varðandi mánaðarlaun Guðjóns en tölur frá 600.000 á mánuði og allt upp í tæplega 1.200.000 kr. hafa verið nefndar. Skagamenn þurfa því að borga allt frá 7,2 milljónum kr. upp í 14,4 milljónir kr. vegna uppsagnar Guðjóns.

*Tvíburarnir eiga að vera mun ódýrari á fóðrum en forveri þeirra í starfi. Semji þeir við ÍA að loknu tímabilinu mun félagið í raun spara umtalsverðan pening við uppsögn Guðjóns til lengri tíma litið.

*Bæjarsjóður á Akranesi hefur áður þurft að stoppa fyrir lekann eftir að félagið fór fram úr sjálfu sér í eyðslu fyrir nokkrum árum. Allar götur síðan hafa stjórnendur ÍA þurft að vinna eftir ströngum kröfum um að halda félaginu réttum megin við núllið.

*ÍA eiga að hafa átt hauka í horni á meðal hinna ýmsu verðbréfa snillinga landsins síðustu ár. Eins og allir vita hefur skóinn kreppt illþyrmilega í þeim bransa og menn sem áður göldruðu fram milljónir standa nú ráðþrota frammi fyrir breyttum markaði. Erfiðara er því um vik hjá ákveðnum velunnurum ÍA til að styrkja hin ýmsu gæluverkefni eins og fótboltann.

*Skagamenn þurfa af þessum sökum að herða sultarólarnar enn frekar. Þeir eru því að selja Bjarna af illri nauðsyn til að ná endum saman við rekstur deildarinnar en er það í raun þvert um geð. Menn meta aðstæður þannig að staða ÍA gæti orðið enn erfiðari að loknu tímabili og markaðsvirði Bjarna gæti þá orðið miklum mun lægra en það er í dag.




Útskýring á (*):
Þessar sögusagnir eru settar fram til gamans og ber ekki að taka alvarlega né sem sannleika.

Digg    Facebook   
Besservisserar (4)add comment

Greg said:

...
Hvað er málið með þessa mynd? Hún er að verða einsog hatturinn hans Geira El heitins.
21:09 | 28 júlí | 2008

Frelsarinn said:

...
Þetta er rosalegt, svínvirkar alveg. Legg til að öllum færslum með þessari mynd verði hent fyrir leikinn í næstu viku, maður veit aldrei...
21:11 | 28 júlí | 2008

Tryggvi said:

...
Held að myndin hafi komið inn aðeins of seint í dag til að ná sínum fulla styrk. Biðst afsökunar á því. Jafntefli við Keflavík voru samt sennilega ágæt úrslit fyrir Fylki úr því sem komið var.
23:06 | 28 júlí | 2008 | url

TryggviMB said:

...
Ef ég hef lesið rétt er Leifur í banni í Valsleiknum, svo að myndin er alveg að virka. Notið hana samt sparlega.
19:44 | 29 júlí | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy