|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Kæru Stuðarar og aðrir Valsmenn |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||
| Þriðjudagur, 10. júní 2008 20:06 | ||
|
Á morgun fer fram einn stæðsti leikur sem spilaður verður á Hlíðarenda þetta sumarið. Valur - KR. Valsstelpunar hafa verið flottasta lið klúbbsins undanfarin ár og er það ekkert slor í félagi eins og Valur er.
Mfl karla og kvenna í handbolta hafa ákveðið að gera sitt allra besta til að styðja stelpunar í þessum mikilvæga leik. Ástæðunar eru nokkrar. Í fyrsta lagi erum við erum VALSARAR og styðjum okkar félag í súru og sætu óháð því hvaða bolta er leikið með og hvaða kyn etja kappi inn á vellinum. Í öðru lagi hafa stelpunar í mfl í fótbolta verið manna duglegastar að mæta á leiki hjá öðrum meistaraflokkum félagsins og eiga því stuðning okkar inni og rúmlega það. Í þriðja lagi spila þær rauðklæddu sannkallaðan sambabolta, eru alveg hreint ótrúlega sprækar og það er okkur sönn ánægja að horfa á slíkar drottningar á vellinum. Svo má ekki gleyma að það gerist ekki á hverjum degi að íþróttamaður ársins spili hörkuleik á Hlíðarenda í rauðu. Stuðningsmannasveit Valsmanna Stuðarar hafa unnið frábært starf í félaginu. Þeir hafa poppað upp stemminguna svo um munar. Mæting þeirra á fótboltaleiki karla er þó áberandi betri en á aðra kappleiki í félaginu. Nú ætla ég að skora á Stuðara að mæta á leikinn á morgun, í rauðu... með fána lúðra og allt tilheyrandi og sýna þar með að Stuðarar eru stuðningssveit ALLRA VALSMANNA. Tökum Miðjuna í þessum stórslag og jörðum hana. Sannir Valsmenn styðja allt félagið og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að lúta ekki gras fyrir KR. Að sjálfsögðu eru aðrir Valsarar hvattir til að mæta. Leikirnir verða ekki skemmtilegri en þetta. Stelpunar okkar eiga það skilið því engin hefur haldið merki félagsins jafn hátt og lofti síðustu ár og þær. Sjáumst á morgun AFRAM VALUR - ALLTAF - ALLSTAÐAR Besservisserar (1)
![]()
Bjarki Þór
said:
|
|
... Við skagamenn viljum bjoða ykkur að heimsækja okkur á cafe mörk frir leikinn.. við hittumst þar um 2 leytið.. endilega kikið og ræðum malin og svona |