|
Hittingur fyrir KR - Valur |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Miðvikudagur, 09. júlí 2008 14:30 |
Hittingur verður fyrir leik KR og Vals, í Valsheimilinu á Hlíðarenda frá kl. 17:30. Rútuferð verður fram og tilbaka í vesturbæjinn og leggur hún af stað frá Hlíðarenda klukkan 19:20. Sá túr kostar hundraðkall, í báðar áttir og um að gera að labba niðrá Hlíðarenda, slást í hóp annara Valsara og láta skutla sér fram og tilbaka í stað þess að sóa dýrmætum tíma í bílastæðaleit í Vesturbænum.
Hittingurinn er í salnum á annari hæð, þeim sem er við tölvubásinn. Birkisbolirnir margumræddu verða afhentir á staðnum.
Sjáumst sem allra flest !
 |
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 10. júlí 2008 16:58 |