|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Sunnudagur, 31. maí 2009 14:48 |
 Valsarar.is komu inn á mál Péturs Georgs Markan á dögunum eftir að hinn framsækni leikmaður lét ginna sig í tvö viðtöl. Líkt og Valsarar.is bentu á var Pétur sæmilega ósáttur í viðtali við Hafliða Breiðfjörð en hjá Henrý Birgi var ekki annað að lesa en að verulega þungur tónn væri í Valsmanninum. Eðlilega var Pétur tekinn á teppið hjá Willum en samkvæmt heimildum Valsara.is ku Pétur ekki vera par sáttur við æsifréttamennskuna sem var undirliggjandi í grein Fréttablaðsins. Reyndar segir sagan að Pétur kannist bara alls ekki við þetta viðtal og sé meira en sáttur hjá Val hvað svo sem íþróttafréttamönnum dettur í hug að skrifa. Það er sem sagt ekkert að Markan.
 |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 10:59 |