|
Karlalið Vals er í einkennilegri stöðu fyri komandi leiki gegn FH og KR. Það er nefninlega svo, að Valsmenn hafa úrslit Íslandsmótsins nánast í hendi sér, því með sigri á FH setja þeir KR í færi við titilinn, en tapi þeir í Kaplakrika þá eru FH-ingar sjálfkrafa Íslandsmeistarar. Leikar vandast ennþá meira þegar horft er til þess að lokaleikur Vals í vonbrigðamótinu 2009 er einmitt gegn KR á Hlíðarenda.
Það er því súr kostur á báða bóga, því fátt vekur Völsurum jafn mikla ógleði og sá möguleiki að KR landi Íslandsmeistaratitli ( þá er nú skömminni skárra að spútniklið FH taki þetta ), en á hinn bóginn er það líka ansi biturt að láta fagna meistaratitli framaní sig í Kaplakrika.
Sigur í báðum eftirlifandi leikjum væri auðvitað ákjósanlegast; það myndi nefninlega þýða að Valslðið myndi pissa a skrúðgöngu FH-inga, vekja KR-ingum falskar vonir og gera ekkert úr þeim vonum viku síðar.
Tveir sigrar á toppliðum deildarinnar yrðu aukinheldur fínt veganesti fyrir leikmenn og stuðningsmenn inní veturinn.
Karlalið Vals er í einkennilegri stöðu fyri komandi leiki gegn FH og KR. Það er nefninlega svo, að Valsmenn hafa úrslit Íslandsmótsins nánast í hendi sér, því með sigri á FH setja þeir KR í færi við titilinn, en tapi þeir í Kaplakrika þá eru FH-ingar sjálfkrafa Íslandsmeistarar. Leikar vandast ennþá meira þegar horft er til þess að lokaleikur Vals í vonbrigðamótinu 2009 er einmitt gegn KR á Hlíðarenda.
Það er því súr kostur á báða bóga, því fátt vekur Völsurum jafn mikla ógleði og sá möguleiki að KR landi Íslandsmeistaratitli ( þá er nú skömminni skárra að spútniklið FH taki þetta ), en á hinn bóginn er það líka ansi biturt að láta fagna meistaratitli framaní sig í Kaplakrika.
 Sigur í báðum eftirlifandi leikjum væri auðvitað ákjósanlegast; það myndi nefninlega þýða að Valsliðið myndi pissa a skrúðgöngu FH-inga, vekja KR-ingum falskar vonir og gera ekkert úr þeim vonum viku síðar. If you can't be good, be bad !
Tveir sigrar á toppliðum deildarinnar yrðu aukinheldur fínt veganesti fyrir leikmenn og stuðningsmenn inní veturinn.
En, hvernig sem þetta nú annars spilast; áfram Valur!
|