• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Vesen í Víkinni
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 24. júní 2010 10:45


graar
Eitt mesta "fashion faux pas" knattspyrnunnar átti sér stað fyrir tæpum 15 árum

Valur marði Víking í bikarkeppni KSÍ á miðvikudagskvöld eftir framlengdan leik en sigurinn hefði allt eins getað fallið heimamönnum í skaut. Úrslitin 1-3 gegn spræku liði sem má búast við í úrvalsdeild á næsta ári. 

Þegar fram líða stundir verður þessa leiks sjálfsagt minnst fyrir ljótasta keppnisbúing sem Valur hefur nokkur tímann skartað. Steypugrá peysa og stuttbuxur henta kannski Byko auglýsingunni betur en hinn hefðbundni blái varabúningar síðustu sjö ára en það er vonandi að Valsliðið þurfi ekki að notast við þetta tískuslys aftur. Fyrir utan hvað leikmenn geta átt erfitt með að sjá hvor aðra inn á vellinum í þessu litleysi. Stærri lið en Valur hafa brennt sig á því.

Danni König kom Val yfir undir lok fyrri hálfleiks en Víkingar jöfnuðu í miðjum seinni hálfleik þegar Kjartan Sturluson misreiknaði illilega fyrirgjöf og skildi búrið eftir galopið. Valsmenn fengu því á sig mark tíunda leikinn í röð í deild og bikar. Enn og aftur var um algjört gjafa mark að ræða. 

Miðað við hversu mikið er lagt upp úr sterkri heild í öftustu línu Vals þá er þessi tölfræði ekki til hrópa neitt húrra fyrir en hingað til hafa markaskorar liðsins yfirleitt náð að bæta upp fyrir mistök varnarmanna og markvarðar. Ef liðið á að ná langt í báðum keppnum þarf það að geta haldið hreinu í einhverjum leikjum, svo einfalt er það.

vals_grar

Valsmenn reyndu að endurtaka leikinn með Rúnar Má og Stefán Jóhann í hlutverkum Giggs og Beckham (Mynd fótbolti.net)

Eftir jöfnunarmark Víkinga má segja að hvorugt liðanna hafi þorað að taka neina verulega áhættu. Valsmenn höfðu kannski meiru að tapa miðað við allt og allt en að sama skapi vantaði örlítið meiri gæði í Víkingsliðið til að það næði að halda uppi verulegri pressu á lokamínútunum.

Framlengingin þýddi að skrifstofufólk og aðrir innipúkar fengu notið sólarinnar mun lengur en um leið gerði góða veðrið það að verkum að ákveðin deifð var yfir stúkunni. Fyrirfram hefði mátt búast við að 20 hörðustu gaurarnir í Fossvoginum hefðu verið búnir að sturta í sig nokkrum kippum og gert sitt til að vera með læti. Menn eru þó greinlega vel uppaldir í þessum borgarhluta og allt því með dannaðasta móti.

Svipað var upp á teningnum í fyrri hluta framlengingar og í venjulegum leiktíma. Fátt um opin færi og engu líkara en að heimamenn ætluðu sér að freista þess að þrauka fram að vítaspyrnukeppni. Valsmenn voru líklega ekki alveg jafn spenntir fyrir því en eftir um 5 mínútur af seinni hluta framlengingar fiskuðu þeir aukaspyrnu rétt utan vítateigs. 

Flestir bjuggust við að Baldur Ingimar myndi reyna að hamra knöttinn líkt og í Frostaskjóli á dögunum en þess í stað var það Jón Vilhelm sem tók spyrnuna. Boltinn sveif laglega yfir varnarvegginn og small í stönginni en þar var Viktor Unnar mættur fyrstur í frákastið eins og sönnum framherja sæmir og átti í minnstu vandræðum með að pota tuðrunni yfir línuna. Valur kominn í forystu og ljóst að Víkingar þyrftu að bíta í skjaldarrendur. 

helgi2007

Helgi Sigurðsson að koma Val í 0-2 gegn FH 2007 (Mynd fótbolti.net)

Helgi Sigurðsson var ekki langt frá því að jafna ör skömmu síðar þegar hann snéri af sér varnarmenn Vals en skot hans fór rétt yfir markið. Guðmundur Steinn gekk síðan endanlega frá leiknum þegar hann fékk laglega sendingu frá Jóni Vilhelm og skallaði boltann í markið úr miðjum vítateig. Niðurstaðan 1-3 í sigurleik sem Valsarar máttu hafa sig alla við að landa og mun vonandi ekki sitja í þeim í næsta deildarleik. 

Valsmenn voru í sínu hefðbundna klandri með lægra skrifaðra lið en Gunnlaugur leggur greinilega áherslu á að menn liggi aftarlega og bíði færis. Taktík sem er orðin kunnuleg á Hlíðarenda en virkar betur í ár heldur en í fyrra aðallega vegna þess að Gunnlaugur er með leikmenn sem hafa meiri sprengikraft til að sækja hratt.


Þessi aðferðarfræði er fyrirgefanleg þegar hún gengur eftir en óbærileg ef úrslit nást ekki. Að sama skapi má taka undir orð þjálfarans á dögunum að það er styrkleikamerki þegar lið ná að kreista út góða niðurstöðu þrátt fyrir að leika ekkert sérstaklega. 

Fyrir utan úrslitin var einna ánægjulegast að sjá unga leikmenn Vals fá tækifæri. Haukur Páll, Jón Vilhelm og Rúnar Már stjórnuðu miðjunni, Stefán Jóhann spilaði allan leikinn í bakverðinum, Þórir Guðjónsson var í byrjunarliðinu og þeir Guðmundur Steinn og Viktor Unnar komu inn á sem varamenn. Gulli er því að standa við stóru orðin frá í vetur um að yngja upp í liðinu. 

vikvollur
Víkingsvöllurinn er ekki svo slæmur

Vallarstæði Víkinga er ansi skemmtilegt og naut sín sérlega vel í blíðviðrinu í gærkvöldi. Grill fyrir krakkana, kaffi og snúðar í félagsheimilinu handa foreldrunum og pizzur og pilsner til að halda unglingunum heitum í Berserkjakjallaranum. Stúkan er passlega stór og völlurinn í fínu ásigkomulagi. Erlendur Eiríksson dæmdi og fórst verkefnið vel úr hendi. Gaman að því þegar ekkert er upp á dómarann að klaga. 

Næsti leikur Vals verður gegn Keflavík á sunnudaginn klukkan 16.00. Eins og alþjóð veit er sigurvegarinn Willum Þór Þórsson þjálfari á þeim bænum. Leikstíll hans liðs er nokkuð áþekkur leik Valsliðsins og því má allt eins búast við 90 mínútna störukeppni þegar þar að kemur. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 24. júní 2010 17:56
 
Settlegt í Garðabæ
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 21. júní 2010 11:50

ibgbae

Helsta aðdráttaraflið í miðbæ Garðabæjar

Valsarar héldu á gervigrasvöllinn í menningarsetrinu Garðbæ í gær, minnugir háðulegrar útreiðar sem liðið hlaut á sama velli fyrir ári síðan. Stjörnumenn hafa verið sleipir á heimavelli sínum og því ekki laust við að Valsmenn hafi nálgast hann með fullri aðgát. Liðin skiptu markaskorinu á milli sín og 1-1 jafntefli niðurstaða sem bæði lið geta unað sátt við en um leið svekkt sig á að stela ekki sigrinum á lokamínútunum. 

Valsmenn byrjuðu leikinn af krafti eins og svo oft í sumar en líkt og í síðustu leikjum vantaði smiðshöggið hjá framherjum liðsins. Danni König var að koma sér í færi en fór illa með þau. Þarf piltur heldur betur að spýta í lófana til að heilla Valsara á nýjan leik en færanýtingin hans eftir Fylkis leikinn hefur verið skelfilega döpur. 

Á 25 mínútu komst Stjarnan yfir eftir dapran varnarleik Valsliðsins. Haukur Páll sem var á gulu spjaldi hikaði við að fara í tæklingu og um leið var Martin Pedersen ekki klár á því að hlaupa í skarðið sem Haukur skildi eftir. Stjörnumenn náðu við þetta að rífa upp Vals vörnina og skora auðvelt mark en eitt af fáum ergilegum atriðum í fari Valsliðsins í sumar er hversu ódýr mörk við fáum oft á okkur.

kiddila

Kiddi Lá aðstoðarþjálfari Stjörnunnar er Valsmönnum að góðu kunnur


Eftir að Valur hafði verið mun betra liðið á vellinum framan af leik voru menn komnir undir og það á plastteppinu sem Keflvíkingar fengu rassskellingu á á dögunum. Valsmenn voru engu að síður að spila prýðilega, náðu að loka vel á spil Stjörnumanna og skapa sér ágætis tækifæri. Lítill kvíðbogi var því í mönnum þegar blásið var til leikhlés þrátt fyrir 1-0 forystu Stjörnunnar. 

Gunnlaugur skipti Rúnar Má inn á fyrir Hauk Pál í kaffipásunni en Haukur virtist kenna sér meins í nára. Vonandi ekki alvarleg meiðsli þar á ferð enda hefur Haukur lyft Valsliðinu á nýtt plan með óþreytandi vinnusemi sinni og hjálpað Sigurbirni og Ian Jeffs að einbeita sér að því sem þeir gera best. Rúnar Már er heldur enginn aukvissi og jafnaði Skagfirðingurinn ungi með laglegum skalla skömmu eftir að hann kom inn á. Staðan 1-1 og mátti heyra Valsara í stúkunni fyllast bjartsýni yfir að þrjú stig gætu jafnvel fallið okkar mönnum í skaut. 

Sú vonarglæta reyndist þó tómt fals en bæði lið fóru sér engu óðslega það sem eftir lifði leiks. Stigasöfnun Garðbæinga gengur eitthvað hægar í ár en í fyrra og Valur virtist sáttur við að binda enda á eigin fimm leikja sigurgöngu með því að sættast á jafntefli á skeinuhættum útivelli.

Það ætlar að reynast Valsliðinu erfitt að halda búrinu hreinu þetta tímabilið. Eftir átta umferðir í deildinni og eina umferð í bikarkeppninni höfum við fengið mark á okkur í hverjum einasta leik. Eins er það áhyggjuefni hversu illa gengur að skora í leikjum sem við virðumst vera með stjórn á líkt og í kvöld og gegn Selfossi, Aftureldingu og ÍBV.

stjarnan

Danni König sem virkar með sprækustu mönnum deildarinnar virðist detta í kæruleysi á köflum og fer illa með mörg færi í hverjum leik. Gunnlaugur Jónsson mætti vel athuga að setja aukna pressu á König með því að gefa Viktori Unnari tækifæri en hann hefur mátt sitja þolinmóður á bekknum það sem af er móts. 

Dómari leiksins var Valgeir Valgeirsson og hann gaf tóninn snemma leiks þegar Haukur Páll fékk gult spjald fyrir algjört smábrot. Valgeir fór algerlega út af laginu með þessu en eftir þetta heimtuðu leikmenn og áhorfendur spjöld á allt og ekkert. Endaði leikurinn með einum sjö áminningum þrátt fyrir að ekki hafi sést eitt einasta grófa brot í 90 mínútur og það með Tryggva Bjarnason á vellinum. Eins vildu áhorfendur beggja liða fá vítaspyrnur í leiknum en Valgeiri til hróss þá virtist hann taka réttar ákvarðanir í þeim tilfellum. 

Áhorfendur voru um 700, stemmningin svona lala en Stjörnumenn hófu jafnan upp raust sína til að kæfa hvatningaróp Vals megin í stúkunni. Þeir tóku þó lag og lag líka sem sum voru ágæt en annars gekk þetta mest út á að berja í bassatrommur sem blessunarlega eru á undanhaldi á flestum völlum. 

Næsti leikur Vals er í bikarkeppninni á miðvikudaginn gegn Víkingum í Víkinni. Víkinni sem er lengst inn í Fossvogsdal. Hvort einhver var að reyna að vera frumlegur með þeirri nafngift eða um þekkingarskort á grunnheitum í landafræði er að ræða skal ósagt látið. En nánar að þeim leik síðar.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Mánudagur, 21. júní 2010 14:53
 
Hlíðarendi stóðst Skjálftann
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 15. júní 2010 13:02

inog2

Fjarri góðu gamni: Verðguðinn var ekki með Selfossi

UMF Selfoss með Gumma Ben í brúnni mætti á Hlíðarenda í fyrsta skipti sem var sennilega það helsta sem gat selt sófa Völsurum þessa lands að mæta á völlinn. Selfyssingar höfðu auðvitað eigin ástæður til að mæta en Gulli Jóns skildi Sunnlendinga eftir með óbragð í munni eftir að liðið hafði tryggt sér úrvalsdeildarsæti á síðustu leiktíð. 

Selfyssingar unnu dómarahlutkestið og kusu að treysta á veðurguðina og leika undan vindi í fyrri hálfleik. Þeir söknuðu þó forsvarsmanns samnefndrar hljómsveitar í framlínunni en Ingó var borgaralega klæddur á meðal áhorfenda upp í stúku. Eins var Sævar Þór Gíslason meiddur og munar um minna fyrir reynslulítið lið á fyrsta ári í efstudeild.

Fyrri hálfleikur var nokkuð barningslegur. Valsmenn snertu varla boltann fyrstu 10 mínútur leiksins en gestirnir sköpuðu engin færi að sama skapi. Eftir um 20 mínútur virtist Danni König ætla rjúfa markaleysið en honum voru mislagðir fætur og skömmu síðar skoraði Arnar Sveinn mark sem dæmt var af vegna rangstöðu. Frá stúku sjónarhorninu virtist línuvörðurinn hafa fullkomnlega löglegt mark af Val. Valsmenn komu boltanum aftur í netið stuttu síðar en Þorvaldur dómari sá eitthvað athugavert rétt áður og gaf Selfyssingum aukaspyrnu fyrir litlar sakir. 

saevarthor_gulli

Þegar allt lék í lyndi

Enn einu sinni hófst síðari hálfleikur með látum á Hlíðarenda og Valsmenn fengu blauta uppvakningar tusku í andlitið strax á fyrstu mínútu. Selfyssingar komnir yfir en forysta þeirra entist ekki lengi því Ian Jeffs jafnaði leikinn aðeins mínútu síðar. Áhorfendur sem voru enn að klára hálfleikskaffið komu að sömu dagskrá og í fyrri hálfleik þegar þeir settust í sæti sín.

Völsurum í stúkunni var létt yfir að liðið komst svo fljótt inn í leikinn en engu að síður vantaði upp á að leikmenn bættu auknun krafti í aðgerðir sínar. Sama miðjumoðið einkenndi leik liðsins eftir jöfnunarmarkið og hafði gert í fyrri hálfleik. Það var eins og menn væru eingöngu að gera nóg til að halda aftur af gestunum og hefðu litla orku til að taka yfirráðin í sínar hendur. Valsmenn voru vissulega líklegri enda ýmsir veikir hlekkir hjá nýliðunum en þó vantaði eitthvað upp á hjá liðinu upp á að skilja sig frá gestunum.

Eftir um 70 mínútna leik fékk Guðmundur Steinn Hafsteinsson tækifæri og hann var ekki lengi að stimpla sig. Glenn Ross krossaði boltann laglega yfir varnarmann Selfossliðsins og Guðmundur nýtti alla sentimetrana sína til að skalla boltann í laglegum boga yfir markvörð gestanna.

Valur kominn með forystu og heimamenn dauðfengir að losna við að horfa upp á mögulegar ergilegar lokamínútur. Fátt tíðindavert gerðist eftir sigurmark Guðmundar Steins nema helst að Viktor Unnar fékk að koma inn á. Eflaust má hann fá fleiri tækifæri á næstunni þó ekki væri nema til að setja ákveðna pressu á Danni König sem er farinn að virka full værukær með sína stöðu í liðinu. 


Guðmundur Steinn mætti eitursvalur

Selfoss liðið spilar oft á tíðum ágætis bolta en um leið komu kaflar þar sem augljós getumunur var á þeim og Valsliðinu. Hins vegar háir það Valsmönnum að stundum vantar örlítið upp á drápseðlið þegar andstæðingar sýna á sér veikleikamerki. Svipað var upp á teningnum gegn Aftureldingu og ÍBV fyrr í sumar en að sama skapi hafi menn jafnan keyrt á öllum strokkum gegn hærra skrifuðum liðum.

Mætingin var svo sem allt í lagi þannig séð eða um 1000 manns samkvæmt opinberum tölum. Selfyssingar mættu uppveðraðir eftir rútuferð yfir Hellisheiði og hvatningin hjá þeim var virkilega kraftmikil. Eitthvað ber á biturð í garð Ránfuglsins hjá einstaka mönnum. Var frekar ósmekklegt að horfa upp á ungmenni tuffa á Valsmerkið við enda vallarins í leikhléi þegar þau fóru að sækja sér auknar veigar í rútunni. Leiðindablettur á skemmtilegum stuðningsmannahóp.

Skjálftamenn gátu fagnað yfirburðasigri á pöllunum eftir leik en lið þeirra þarf að fara komast aftur af stað í stigasöfnun innan vallar ef þeir ætla að fá að koma í heimsókn á helstu vígi landsins á næsta ári. Sunnlendingarnir hafa sett skemmtilegan svip á úrvalsdeildina og flestir ættu að geta unað þeim að vera í henni áfram. 

Yfirleitt er óþarfi að væla undan dómurum eftir sigurleiki en þessi flautumeistari var helbert djók á báða kanta. Valur-Selfoss er ekki beint stærsti leikur sumarsins í Pefsí deildinni en þessum dreng tókst að taka vitlausar ákvarðanir vinstri hægri. Líklega hefði hann gott af því að ná sér í aukna reynslu í yngri flokkum, neðri deildum og kvennabolta þar sem hraðinn er minni og færri áhorfendur að rugla hann í ríminu.  

Næsti leikur er gegn Stjörnunni á hinu ógnvænlega gervigrasi Garðbæinga . Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 15. júní 2010 16:28
 
Frelsarinn mætir á mánudag
Höfundur: Valsarar.is   
Sunnudagur, 13. júní 2010 20:56
gben22
Selfyssingar leita hefnda. Gummi Ben leiðir hópinn

Gummi Ben og lærisveinar hans á Selfossi mæta á Hlíðarenda á mánudaginn. Spurningin er hvort gróið hafi um heilt í herbúðum Selfyssinga eftir að Valur stal af þeim Gulla Jóns í þjálfaraembættið. Sunnlendingar telja sig eflaust hafa himin höndum tekið við að hafa fengið
Frelsara Vals til að leiða hefndaraðgerðirnar.


Arnar Steinn er maðurinn á bakvið Valur TV og spjallaði við Atla Svein fyrir leikinn. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og upphitun verður við Fjósið frá klukkan 18.00. Sjáumst þá.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Mánudagur, 14. júní 2010 00:40
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 5 af 34