• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Dós af rassskellingu
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 13. júlí 2010 13:18

 

rassskelling


Valsarar voru mættir í Laugardalinn í gær til að horfa á sína menn glíma við Framara í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Í jafnteflisleik liðanna á dögunum misstu Valsmenn dampinn eftir góða byrjun og svipaða sögu var að segja um leikinn í gær. Munurinn var einna helst sá að í gær fengu Valsmenn enga forgjöf frá gestgjöfunum en hin alræmda Gjafavörudeild Valsliðsins var í essinu sínu líkt og svo oft í sumar. 3-1 sigur Framara var sanngjarn í alla staði og allt stefnir í miðjumoð þriðja tímabilið í röð.

Gunnlaugur Jónsson kippti sér greinlega lítið yfir peysukasti Danni König gegn Haukum og var Daninn í byrjunarliðinu að vanda. Viktor Unnar fékk einnig tækifæri í fjarveru Arnars Sveins en að öðru leyti var byrjunarliðið með hefðbundnu sniði.
Valsliðið leit þolanlega út í fyrri hálfleik og virtist vel geta staðið í hinu spræka liði Fram. Fátt var þó um fína drætti og mikil stöðubarátta á miðjunni einkenndi leikinn. Sóknarleikur Vals var frekar takmarkaður en sama mátti segja um Fram.

Í síðari hálfleik tóku hjólin að snúast og það á sveif með Framliðinu. Almar Ormarsson var nálægt því að brjóta ísinn í nánast fyrstu sókn Fram en Kjartan sýndi gamalkunna takta og bjargaði á ótrúlegan hátt.
Færið var ekki til þess að hrista upp í Valsliðinu heldur fór allt í gang hjá Frömurum sem tóku sig til og völtuðu algjörlega yfir sljóa Valsmenn. Á átta mínútna kafla opnuðu Framarar dós af rassskellingum og sturtuðu yfir Valsara. Þrjú mörk litu dagsins ljós á þessum kafla og þrátt fyrir að Valur hefði minnkað muninn um fimm mínútum eftir þriðja mark Fram einkenndi hálfgerður doði liðið og sýndu fáir leikmenn þess merki að hafa getu til að rífa sig upp og setja pressu á Framara. Öruggur sigur Fram niðurstaða og lítið hægt að segja um frammistöðu Valsmanna sem ekki hefur verið tíundað undanfarið.


Water22

Stemmingin í stúkunni hefur verið með daufasta móti í sumar en helstu kanónur úr stuðningsmannaliðinu virðast hafa öðrum hnöppum að hneppa um þessar mundir. Eitthvað er lítið um endurnýjun í hópnum en vonandi náum við að taka okkur saman í andlitinu að þessu leyti á seinni hluta Íslandsmótsins.

Flogið var með einn slakasti dómara deildarinnar, Þórodd Hjaltalín junior (já hann nefnir sig junior!), frá Akureyri til að stjórna flautunni og hans helsta axarskaft var þegar Hannes Halldórsson fékk aukaspyrnu eftir villt úthlaup. Atli Sveinn kom boltanum í netið en markið stóð ekki. Annars voru yfirburðir Framliðsins slíkir að Valsmenn voru fremur ólíklegir til að komast inn í leikinn svo lítið stoðar að ræða hlutverk dómarans.

Á dögunum var reifað hversu erfitt er fyrir Gunnlaug að stokka upp í vörninni. Breiddin er lítil og menn velja sig nánast sjálfir í liðið þrátt fyrir skelfileg afglöp. Nú er svo komið að Gunnlaugur einfaldlega verður að taka til í öftustu línu ef hann ætlar að verða langlífur í starfi. Auðvitað er ekkert komið að þeim tímapunkti að skipta út Gunnlaugi en þolinmæðin fyrir reynslulitlum þjálfara sem á engan bakgrunn innan félagsins er eðlilega ekki sú sama heldur en ef um mann eins Kristin Lárusson væri að ræða, svo einhver sé nefndur.


vatnsberi
Hugsað út fyrir kassann: vatnsberinn fær tækifæir

Reynir Leósson virðist ekki ganga heill til skógar þessa dagana og það er alveg ljóst að tæpur Reynir er verri en enginn Reynir. Eins hefur Atli Sveinn ekki verið að eiga sitt besta tímabil en þeir félagar missa menn á milli sín nánast leik eftir leik. Sama má segja um Sigurbjörn sem hefur staðið sig prýðilega fram á við en veitir varnarmönnum litla sem enga hjálp þegar liðið er að verjast. Þegar þessir burðarásar eru ekki að skila sínu fer allt í hund og kött annars staðar á vellinum.

Svo við hugsum aðeins út fyrir hinn hefðbunda ramma þá má helst líta til Einars Marteinssonar sem er í láni hjá HK til að koma inn í liðið. Ef það er ekki hægt að notast við Einar í þessari aðstöðu er ærlegra að segja drengnum hreint út að ekki sé þörf fyrir hann hjá félaginu. Eins mætti athuga að nýta krafta Hauks Páls í miðvarðarstöðunni miðað við ástand mála. Haukur er fylginn sér og gæti kannski tekið að sér að loka Gjafavörudeild liðsins.
Helsti höfuðverkur hins lítt reynda þjálfara Valsliðsins er að þétta raðrinar og varla er útileikur gegn FH maskínunni drauma andstæðingur í þessari stöðu. Sá leikur er í Kaplakrika á sunnudaginn klukkan 19.15. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 13. júlí 2010 14:21
 
Reitingslegt í KFUM atinu
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Föstudagur, 09. júlí 2010 00:34
Leiguliðarnir á Hlíðarenda komu og sýndu ábúendunum í Valsliðinu æfingar í knattraki og hvernig hægt er að láta boltann ganga manna á milli endrum og sinnum. Gjafavörudeildin í Valsliðinu stóð fyrir sínu og fengu Haukarnir tvo pakka upp í hendurnar. Þrátt fyrir önnur gylliboð létu Haukar þar við sitja enda talsvert eftir af leigusamningnum. 2-2 jafntefli og Valur fjarlægist toppbaráttuna þessa dagana með hverri umferð.
Leikurinn hófst nokkuð rólega en ef eitthvað var þá virtust Haukamenn áhugasamari. Eftir um 25 mínútur tóku leigjendurnir af skarið þegar Valsvörnin sundurspiluð í eitt fjölmörgum skiptum í sumar þegar Hilmar Geir Eiðsson rak endahnútinn á fallega sókn Hauka. Menn í stúkunni eru hættir að kippa sér upp við ýmislegt en leiða má líkum að því stór hluti „marka sumarsins“ munu hafa verið skoruð gegn Val þegar leiktímabilið verður gert upp.
Haukar réðu lögum og lofum í lofti sem á legi en rétt fyrir leikhlé tókst Ian Jeffs að jafna þvert á gang leiksins. Markið var álíka ósanngjarnt og það sem Fram skoraði gegn okkur á mánudaginn undir lok hálfleiksog Valsarar gátu vel við unað þegar flautað var til leikhlés.
Hafi einhver vonast eftir að annað Valslið kæmi til leiks í seinni hálfleik þá voru fá teign á lofti um slíkt. Áfram stjórnuðu Haukar lofthelginni og kom Arnar Gunnlaugsson þeim yfir að nýju á 57. mínútu. Jón Vilhelm missti boltann á kantinum og liðsfélagar hans gerðu lítið til að bjarga andliti hans en Haukar tættu í sig Valsmenn áður en Arnar skaut boltanum gegnum Sigurbjörn og framhjá Kjartani.
Valur farinn að elta á nýjan leik og fátt í kortunum sem benti til að þrjú stig féllu í skaut leigusalanna. Gunnlaugur skipti Viktori Unnari inn á fyrir Danni König og skömmu síðar fiskaði Ian Jeffs aukaspyrnu eftir snjalla hreyfingu hjá Viktori. Martin Pedersen var ekki langt frá því að skora úr spyrnunni en Sigbjörn Hreiðarsson þefaði upp frákastið og jafnaði leikinn á ný fyrir Val. Ósanngjarnt kannski frá sjónarhorni Hauka en Valsarar gerðu sér vonir um að þeirra menn myndu rífa sig upp fyrir lokakaflann.
Því var ekki að skipta og þegar um 10 mínútur voru eftir var Gjafavörudeild Vals mætt með pakkana. Stefán Eggertsson mætti með vítaspyrnu á silfurfati og kom það í hlut Arnars Gunnlaugssonar að taka spyrnuna. Arnari mistókst að landa boltanum í netið aldrei þessu vant og skaut framhjá en Kjartan reyndi að fá sinn hlut í sölubónus Stefáns og fór í vitlaust horn.
Á lokamínútunum var Kjartan aftur kominn í sölustörfin þegar hann og Greg Ross reyndu furðulegan samleik á miðjum vallarhelmingi Vals en Ross sá síðan þann vænstan kostinn að spyrna boltanum út af. Valsmenn gátu gengið af velli dauðfegnir með jafnteflið en Haukamenn eflaust svekktir að hafa ekki náð í sinn fyrsta sigur á Hlíðarenda.
Danni König hefur ekki verið í miklu uppáhaldi hjá Völsurum undanfarið en í kvöld má segja að steininn hafi tekið úr. Þegar Gunnlaugur Jónsson þjálfari skipti honum út af var Daninn ekki par sáttur, bölvaði hátt og hressilega, lét sig reyndar hafa það taka í höndina á Viktori Unnari sem kom inn á en síðan fengu fúkyrðin að ganga yfir varamannabekkinn. Ekki sást hvort hann hafi beint orðum sínum beint að þjálfaranum en í það minnsta reif hann sig úr Vals treyjunni og grýtti í átt að tréverkinu að því er virtist.
Það er eitt ef leikmenn Vals geta ekki staðið sig fyllilega vel inn á velli, klúðrað hverju dauðafærinu á fætur öðru leik eftir leik en hanga samt alltaf inn í liðinu. Það má fyrirgefa það.
Þetta var hins vegar furðulega mikil óvirðing af hálfu Danans en kannski er König kominn með leið á lífinu í íslenska boltanum og var einfaldlega að reyna að stimpla sig út úr Val.  Varla getur Gunnlaugur Jónsson látið þetta óátalið þótt lítið hafi farið fyrir þessu í leikumfjöllun fjölmiðlanna.
Næsti leikur er við Fram á mánudaginn í bikarnum. Nánar að því síðar.
haukur-falki2

Leiguliðarnir á Hlíðarenda komu og sýndu ábúendunum í Valsliðinu æfingar í knattraki og hvernig hægt er að láta boltann ganga manna á milli endrum og sinnum. Gjafavörudeildin í Valsliðinu stóð fyrir sínu og fengu Haukarnir tvo pakka upp í hendurnar. Þrátt fyrir önnur gylliboð létu Haukar þar við sitja enda talsvert eftir af leigusamningnum. 2-2 jafntefli og Valur fjarlægist toppbaráttuna þessa dagana með hverri umferð.

Leikurinn hófst nokkuð rólega en ef eitthvað var þá virtust Haukamenn áhugasamari. Eftir um 25 mínútur tóku leigjendurnir af skarið þegar Valsvörnin var sundurspiluð í eitt af fjölmörgum skiptum í sumar. Hilmar Geir Eiðsson rak endahnútinn á fallega sókn Hauka og Valur kominn með mark á sig 17. deildarleikinn í röð. Menn í stúkunni eru hættir að kippa sér upp við ýmislegt en leiða má líkum að því að stór hluti af „mörkum sumarsins“ munu vera skoruð gegn Val þegar leiktímabilið verður gert upp.

Haukar réðu lögum og lofum í lofti, á láði sem og legi en rétt fyrir leikhlé tókst Ian Jeffs að jafna þvert á gang leiksins. Markið var álíka ósanngjarnt og það sem Fram skoraði gegn okkur á mánudaginn undir lok hálfleiks og Valsarar gátu vel við unað þegar flautað var til leikhlés. 

valur-haukar



Hafi einhver vonast eftir að annað Valslið kæmi til leiks í seinni hálfleik þá voru fá teign á lofti um slíkt. Áfram stjórnuðu Haukar lofthelginni og kom Arnar Gunnlaugsson þeim yfir að nýju á 57. mínútu. Jón Vilhelm missti boltann á kantinum og liðsfélagarnir gerðu lítið til að bjarga andliti hans en Haukar tættu í sig Valsmenn áður en Arnar skaut boltanum gegnum Sigurbjörn og framhjá Kjartani.

Valur farinn að elta á nýjan leik og fátt í kortunum sem benti til að þrjú stig myndu falla í skaut leigusalanna. Gunnlaugur skipti Viktori Unnari inn á fyrir Danni König og skömmu síðar fiskaði Ian Jeffs aukaspyrnu eftir snjalla hreyfingu hjá Viktori. Martin Pedersen var ekki langt frá því að skora úr spyrnunni en Sigbjörn Hreiðarsson þefaði upp frákastið og jafnaði leikinn á ný. Ósanngjarnt kannski frá sjónarhorni Hauka en Valsarar gerðu sér vonir um að þeirra menn myndu rífa sig upp fyrir lokakaflann.

Því var ekki að skipta og þegar um 10 mínútur voru eftir var Gjafavörudeild Vals komin með pakkana. Stefán Eggertsson gaf  vítaspyrnu á silfurfati og kom það í hlut Arnars Gunnlaugssonar að fara á punktinn. Arnari mistókst að landa boltanum í netið aldrei þessu vant, skaut framhjá en Kjartan reyndi að fá sinn hlut í sölubónus Stefáns og fór í vitlaust horn.

falki-vs-haukur


Á lokamínútunum var Kjartan aftur kominn í sölustörfin þegar hann og Greg Ross reyndu furðulegan samleik á miðjum vallarhelmingi Vals en Ross sá síðan þann vænstan kostinn að spyrna boltanum út af. Skömmu síðar var flautað til leiksloka og gátu Valsmenn gengið af velli dauðfegnir með jafnteflið en Haukamenn eflaust svekktir að hafa ekki náð í sinn fyrsta sigur á Hlíðarenda.

Danni König hefur ekki verið í miklu uppáhaldi hjá Völsurum undanfarið en í kvöld má segja að steininn hafi tekið úr. Þegar Gunnlaugur Jónsson þjálfari skipti honum út af var Daninn ekki par sáttur, bölvaði hátt og hressilega, lét sig reyndar hafa það taka í höndina á Viktori Unnari sem kom inn á en síðan fengu fúkyrðin að ganga yfir varamannabekkinn. Ekki sást hvort hann hafi beint orðum sínum beint að þjálfaranum en í það minnsta reif hann sig úr Vals treyjunni og grýtti í átt að tréverkinu að því er virtist.

danni


Það er eitt ef leikmenn Vals geta ekki staðið sig fyllilega vel inn á velli, klúðrað hverju dauðafærinu á fætur öðru leik eftir leik en hanga samt alltaf inn í liðinu. Það má fyrirgefa það.

Þetta var hins vegar furðulega mikil óvirðing af hálfu Danans en kannski er König kominn með leið á lífinu í íslenska boltanum og var einfaldlega að reyna að stimpla sig út úr Val. Varla getur Gunnlaugur Jónsson látið þetta óátalið þótt lítið hafi farið fyrir þessu í leikumfjöllun fjölmiðlanna.

Næsti leikur er við Fram á mánudaginn í bikarnum. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Föstudagur, 09. júlí 2010 03:23
 
Floppað gegn Fram
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Miðvikudagur, 07. júlí 2010 12:16

frama
Sérfræðingar RÚV hafa verið sérstaklega hrifnir af Framliðinu

Valur mætti í Laugardalinn á mánudaginn gegn nærfatamódelstrákunum í Fram. Fyrirfram máttu heimamenn teljast líklegri en Valsliðið sýndi góða takta í fyrri hálfleik. Ef ekki hefði verið fyrir endemis klaufaskap hjá varnarlínunni hefðu þrjú stig átt að falla í skaut Vals en þegar uppi var staðið máttu menn vera sáttir með að sleppa með 2-2 jafntefli.

Valsmenn fóru vel af stað í leiknum og átti Jón Vilhelm fyrsta færið þegar Hannes Halldórsson mátti hafa sig allan við að verja skalla frá honum. Nokkrum mínútum síðar náði Guðmundur Steinn Hafsteinsson að brjóta ísinn með laglegu skallamarki úr miðjum vítateig. Guðmundur hefur heldur betur verið skeinuhættur frá því hann sneri til baka frá HK og ljóst að æ erfiðara verður fyrir Gulla að halda honum utan byrjunarliðs með sama áframhaldi.

Leikmenn Vals voru ekki á því að liggja til baka og skömmu eftir markið fiskaði Stefán Jóhann vítaspyrnu. Danni König steig á punktinn en Hannes Halldórsson varði kæruleysislega spyrnuna. König virðist þurfa helst að klúðra nokkrum færum áður en hann skorar og greinilegt að vítaspyrnur ná yfir eins og 2-3 hálffæri því skömmu síðar skallaði Daninn boltann í netið eftir aukaspyrnu frá Martin Pedersen. Staðan orðin 0-2 og menn farnir að vonast eftir að það væri nægjanlegur stuðpúði til að halda Frömurum í hæfilegri fjarlægð.


toddi

Maðurinn sem hataði míkrafóna: Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fram

En menn skulu ekki vanmeta Gjafavörudeildina í Valsliðinu sem saknaði að vísu fyrirliða liðsins en hann tók einmitt út leikbann.

Allt leit út fyrir að Valur myndi að halda hreinu í heilan hálfleik en Gjafavörudeildin var aldeilis ekki á þeim buxunum. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks fengu Framarar hornspyrnu sem Kjartan náði að slá út en ekki lukkaðist hreinsunin betur en svo að Framarar náðu annari fyrirgjöf og þá misreiknaði Kjartan sig herfilega. Jón Guðni Fjóluson komst á undan í boltann og skallaði í netið af stuttu færi. Líflína fyrir Safamýrarpilta sem höfðu verið sundurspilaðir í 45 mínútur af 46.

Framarar voru ekki langt frá því að jafna strax í upphafi seinni hálfleiks og allt frá byrjun voru Valsarar á bakpedalanum. Heimamenn hreinlega óðu í færum en það var helst í föstum leikatriðum sem Valsmenn ógnuðu marki Framliðsins. Vörn Vals var aftur á móti með tæpasta móti og þegar Kjartani mistókst að eiga við stutta sendingu til baka og sendi beint á sóknarmann Fram virtist óhjákvæmilegt að hinir bláklæddu myndu jafna.

Kjartan gat notað síðasta aukalífið sitt í því tilfelli og varði vel eftir að hafa komið sjálfum sér og liðinu í vandræði. Framarar héldu áfram að vaða í færum og á 75. mínútu jöfnuðu þeir leikinn. Aukaspyrna vel utan vítateigs sveif inn í teiginn og enginn Valsari var þess fær að skalla boltann í burtu sem síðan skoppaði við markteiginn og framhjá Kjartani sem stóð steinrunninn á línunni, eflaust minnugur fyrra marksins.

kiddijak222

Lagt á ráðin?
Kiddi Jak situr hér við háborðið ásamt öðrum valinkunnum KR-ingum

Í fagnaðarlátunum gleymdi Jón Guðni Fjóluson sér og danglaði löppinni í Danni König sem lá í grasinu. Leikmenn Fram höfðu verið að kýta talsvert við König í leiknum og Kristinn Jakobsson mat þetta sem fólskubrot. Jón Guðni slapp betur frá þessu broti en Ásgeir Börkur Ásgeirsson hjá Fylki sem fékk á dögunum þriggja leikja bann fyrir olnbogaskot. Líklega hefur Besti dómari landsins™ eitthvað tónað sig niður í leikskýrslunni.

Þrátt fyrir að vera manni fleiri en Framarar voru Valsarar gjörsamlega vindlausir eftir jöfnunarmarkið. Heimamenn stjórnuðu allri umferð á miðjunni og okkar mönnum var lífsins ómögulegt að ná tökum á leiknum. Á lokamínútunum fengu Framarar nokkur góð færi til að hirða öll þrjú stigin en Kjartan Sturluson bjargaði jafntefli fyrir Val og jafnframt eigin andliti eftir að hafa átt sinn þátt í mörkum Fram.

Kiddi Jak stjórnaði flautleik í dag og var bara nokkuð góður, gaf Val víti aldrei þessu vant en Framarar þykjast hlunnfarnir yfir rauða spjaldinu sem hann gaf þeim. Nærvera hans hefur samt líklega þýtt að Valsliðið lagði ekki í það að vinna leikinn.

Það er hægt afbaka ýmsilegt með tölfræði en hún afhjúpar einnig óhjákvæmilegar staðreyndir. Á síðasta tímabili hélt Valur þrisvar sinnum hreinu marki í deildinni, síðast í 16. umferð gegn Þrótti. Í fyrra fengum við á okkur 43 mörk í 22 leikjum eða næstum tvö mörk í leik. Í ár er hlutfallið 15 mörk í 10 leikjum eða eitt og hálft mark í leik og enn á liðið eftir að ganga af velli án þess að fá á sig mark. Næsti leikur er gegn botnliði Hauka á sameiginlegum heimavelli liðanna og væri kærkomið að sjá Valsmenn sleppa því að gefa leiguliðunum ódýrar gjafir. Nánar að því síðar.

 

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 07. júlí 2010 13:20
 
Keflaðir
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Sunnudagur, 27. júní 2010 23:56


willum

Starðir niður: Willum leit aldrei til baka á Hlíðarenda

Eftir ágætis gengi í deild og bikar undanfarnar vikur var loks komið að tapleik hjá liði Vals. Keflvíkingar komu á Hlíðarenda og sóttu þægileg þrjú stig þar sem Valsmenn voru ávallt skrefinu á eftir. Framan af leik benti ýmislegt til að allt stefndi í meiriháttar störukeppni líkt og varað var við hér á síðunni á dögunum. Okkar menn voru á undan að deppla augum og í enn eitt skiptið í sumar fáum við á okkur mark vegna lélegrar varnarvinnu.

Tölfræðin var ekki beint á okkar bandi fyrir þennan leik. Alls höfum við spilað ellefu leiki í deild og bikar og það kom engum á óvart að Keflvíkingar skildu skora enda hefur Valsliðinu mistekist að halda hreinu í einum einasta þessara leikja. Keflvíkingar hata ekki heldur að spila útileiki við Val en síðast unnum við þá heima árið 1997. Síðasti sigurleikur Suðrunesjamanna kom að vísu árið 1999, allir hinir hafa endað með jafntefli þar til í dag.

Bæði lið fóru sér engu óðslega framan af þótt að einstaka færi litu dagsins ljós. Danni König fékk þrjú álitleg færi í fyrri hálfleik en tókst ekki að nýta neitt þeirra en eftir góða byrjun á Íslandsmótinu hefur dregið talsvert af Dananum. Hann má eiga að hann er oft á tíðum að skapa færin sín á eigin spýtur en ef Valur á að stíga upp fyrir meðalmennskuna þetta tímabil þarf König að geta klárað sénsana sína með afgerandi hætti.

Keflavík var ekki beint að sundurspila Valsliðið og með aukinni pressu hefðu þeir aldrei fengið tíma til að skora þessi tvö mörk sín. Fyrra mark þeirra var sérlega vandræðalegt fyrir Valsmenn. Bakvörðurinn Guðjón Árni Antoníusson fékk boltann fyrir framan miðjuhringinn, hoppaði upp úr lélegri tæklingu frá Bjössa, stakk sér síðan með auðveldum hætti milli miðvarða Vals þeirra Reynis og Atla Sveins og eftirleikurinn gegn Kjartani var auðveldur.


willum_gunnlaugur
Willum var skrefi á undan Gulla í dag

Þegar um 10 mínútur voru eftir skoruðu Keflvíkingar síðan á ný og gerðu endanlega út um leikinn með laglegu marki rétt fyrir utan vítateig. Atli Sveinn náði ekki að loka á skot Brynjars Guðmundssonar sem skrúfaði boltann í hornið. Valsarar virkaðu aldrei líklegir til að jafna leikinn í stöðunni 0-1 og með seinna markinu var ljóst að allur vindur var úr liðinu. 

Eftir erfiða útileiki gegn Stjörnunni og síðan Víkingum á síðustu dögum var Valsliðið auð afhjúpað. Valsvörnin er oft á tíðum að gera erfiðu hlutina vel en fær síðan yfirleitt á sig ódýr mörk. Frá sjónarhóli Keflvíkinga var mark Guðjóns eflaust glæsilegt einstaklingsframtak sem þurfti til að brjóta upp pattstöðuna en með Vals gleraugunum er ekki hægt að horfa fram hjá veikleika merkjum liðsins. Það er erfitt að koma auga á möguleika fyrir Gunnlaug til að stokka upp varnarlínunni og eins er spurning hvort það sé beint kominn tími til að ýta á neyðarhnappana.

Eitt helsta vandamálið er að aftasti hluti liðsins velur sig nánast sjálfur þrátt fyrir að gera mistök sem hægt er að forðast. Eitthvað verður þó að gerast þegar það er nánast hægt að ganga að því sem vísu að liðið mun gefa andstæðingunum ódýr mörk. Gunnlaugur Jónsson sem var með betri varnarmönnum í íslensku deildinni á sínum leikferli þarf að sanna að hann geti barið í brestina sem þjálfari. Liðið er alltof vel mannað til að hleypa inn skammarlegum mörkum leik eftir leik.


kjartansturlu
Kjartan fagnar hér síðasta hreina marki sínu. Gegn Þrótti. Í fyrra.

Kjartan verður ekki sakaður um mörkin í dag en hann á sinn hlut í mörgum þeirra í sumar. Haraldur Björnsson markvörður U-21 árs landsliðsins var lánaður út tímabilið til Þróttar og því er ekki hægt að kippa honum inn í liðið. Varamörkvörðurinn Ásgeir Þór Magnússon er U-19 ára landsliðsmarkvörður og líklega yrði það full róttækt að setja hann inn á. Það er helst að Gunnlaugur geti reynt að stokka upp miðvarðarstöðurnar með því að setja annað hvort Ross eða Petersen þar. 

Þetta eru auðvitað aðeins vangaveltur en kannski er alveg eins gott fyrir þjálfarann að halda sig við svipaða varnarlínu og vona að aðeins sé tímaspursmál hvernær allt smelli saman. Á löngum köflum lítur liðið þokkalega út en mistökin eru jafnan dýrkeypt og skilja oft á milli núll og þriggja stiga.
Næsti leikur er gegn erkifjendum okkar í Fram þann 4. júlí á Þjóðarleikvangnum því Framarar eiga hvergi heima (nema veginum á). Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Mánudagur, 28. júní 2010 01:21
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 4 af 34