• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Dagskránni lokið
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Miðvikudagur, 29. september 2010 11:40

stilli

Íslandsmótinu í knattspyrnu 2010 er lokið. Valur endaði í 7. sæti á mótinu með 7 sigurleiki, 7 jafntefli og 8 tapleiki. Valur vann þrjá heimaleiki þetta árið en aldrei þessu vant lékum við 12 leiki á Vodafonevellinum. Velli sem hefur ekki verið aflasæll fyrir karlaliðið á meðan kvennaliðið landaði þar sínum þriðja Íslandsmeistaratitli. Þann leikvang þarf að gera að alvöru heimavelli ef menn ætla að stíga upp fyrir meðalmennskuna. 

Aðrar helstu niðurstöður eru að Gunnlaugur Jónsson er horfinn á braut sem og stjórn knattspyrnudeildar með Börk Edvardsson í broddi fylkingar. Við þeirra hlutverkum hafa tekið þeir Kristján Guðmundsson með Frey Alexandersson til aðstoðar og Friðjón Friðjónsson verður væntanlega formaður knattspyrnudeildar. Er þeim óskað góðs gengis á komandi árum og vonandi tekst þeim að rífa karlaliðið upp úr þeirri lágdeyfð sem einkennt hefur það eftir að Íslandsmeistaratitillinn vannst. 

Hvað þessa stuðningsmannasíðu varðar þá er komin ákveðin þreyta í þetta hjá okkur sem höfum sinnt henni. Vefsíðan hóf göngu sína á haustdögum 2002 á léninu valsarar.blogspot.com, varð síðar valsarar.tk, svo valsarar.net og loks valsarar.is með tilheyrandi útlitsbreytingum. Það hafa komið tímabil þar sem skrif hér hafa legið niðri en nú er líklega komið mál að linni. 

Ef einhverjir hafa áhuga á að taka við léninu má hafa samband við Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

 

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 29. september 2010 12:19
 
Fastir liðir eins og venjulega
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 20. september 2010 12:54
Það var kunnlegt stefið í leik Vals gegn Fram á sunnudaginn. Kvittað var út fyrir fínan fyrri hálfleik með slæmum seinni hálfleik og Framarar áttu ekki miklum vandræðum með að landa þremur stigum. Meira að segja í stöðunni 1-2 var Valsliðið gjörsamlega heillum horfið og hreinlega ótrúlegt til þess að hugsa að sama liðið hafi verið að leika báða þessa hálfleiki. 

Eftir að hafa ráðið ferðinni í fyrri hálfleik þurfti Gunnlaugur að gera breytingu á Valsliðinu í leikhléi. Stefán Eggertsson meiddist og inn á kom Sigurbjörn Hreiðarsson. Rúnar Már var færður í vörnina en segja má að þessar hrókeringar hafi gefið sprækum leikmönnum Fram aukið rými til að ná tökum á miðjunni. Valsliðið sá varla til sólar það sem eftir lifði leiks og áttu erfitt með að ógna marki Fram.

Ljóst er að hlutskipti Vals þetta sumarið verður 6.-7. sæti og fyrirfram hefði það ekki komið á óvart. Hins vegar eru slæmu kaflarnir hjá liðinu búnir að vera of margir í sumar til að þessi árangur teljist ásættanlegur og ekki hægt að segja að liðið hafi nálgast toppliðin milli ára. Aðeins þrír heimaleikir hafa unnist í sumar og verður það að teljast verulegt áhyggjuefni hversu illa gengur að gera Vodafonevöllinn að almennilegu vígi. 

Einn leikur er eftir af Íslandsmótinu og verða Haukar í hlutverki gestgjafans á Hlíðarenda. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
 
Á sigurbraut
Höfundur: Ási Sveinss   
Fimmtudagur, 16. september 2010 10:08

Ási Sveinss skrifar:

Valur og Stjarnan mættust á Hlíðarenda og var fyrirfram búist við nokkuð jöfnum og spennandi leik. Stjarnan hefur haft léttan og fljótan sóknarleik að sínu eðalsmerki en að sama skapi brothættir ef hlutirnir fara að klikka. Valsmenn hafa verið ekki verið þekktir fyrir annað en vesen þetta sumarið og hefur Gunnlaugi heldur betur tekist að þurka það slen af liðinu fyrir mótslok.

Leikurinn byrjaði nokkuð fjörlega og sóttu liðin til skiptis. Leik Stjörnustráka einkenndi þó nokkuð af mistökum og stundum baráttu við hvorn annan í vítateig Valsmanna. Þó voru þeir oft á tíðum hættulegir nálægt marki Vals en aldrei neitt meira, þannig að "Það Var Aldrei Hætta". Valsmenn aftur á móti voru hættulegri í sínum aðgerðum og var boltinn duglegur að rata á samherja.

Gunnlaugur setti Jón Villhelm, Steina, Arnar og Jeffs á flakk um framlínuna og virðist vera sem að hann hafi hitt naglann á höfuðið þarna enda hefur Valsliðið sem ekki hefur skorað mikið af mörkum í sumar skorað 8 mark í síðustu 2 leikjum. Áður en fyrsta markið kom þá komst Arnar Sveinn einn í gegn á móti Bjarna í marki Stjörnunar en slakur línuvörður kvöldsins flaggaði hann rangstæðann en hann var ca. 5 metrum á eftir aftasta varnarmanni þegar að hann tekur þessa ákvörðu. Verður að segja að sá burstaklippti hafi gert slæm mistök þarna enda gat hann engan veginn séð línuna og átti því að leyfa sóknarmanninum að njóta vafans. Undirritaður var í beinni sjónlínu og sá þetta því vel. Hann virkaði nokkuð þungur í þessum leik og má því velta því fyrir sér hvort að hann séi nægilega vel á sig kominn til þess að dæma í efstu deild en þetta hefur loðið soldið við hann í sumar. 

Martin Meldgaard Pedersen skoraði fyrsta mark kvöldsins örugglega úr vítaspyrnu. Steini er talinn hafa fiskað þetta víti en spekingar hafa ekki enn getað myndað sér örugga skoðun á því. Stjörnustrákar voru virkilega fúlir yfir þessum harða dómi en Steini hafði misst boltann klaufalega einn á móti Bjarna Þórði sem svo felldi hann, jahh eða Steini hljóp á hann. 

Eftir þetta færðist mikið fjör í sóknarleik valsmanna. Rúnar vann boltann á vallarhelmingi vals og stakk boltanum inn á Arnar og var hann þá dæmdur rangstæður eins og áður var getið. Stuttu seinna björguðu svo Stjörnustrákar tvisvar á línu eftir hornspyrnu hjá Val og voru Valsarar öllu líklegri til að bæta við. Þarna bætti Kristinn kannski upp fyrir fyrra vítið en á sjónvarpsupptökum sést hvernig Marel Baldvinsson og hangir hressilega aftan í Atla Sveini sem teygir sig í boltann til að ná honum á markið. Bjarni Þórður að sama skapi gerir sína tilraun til að rífa hann niður.

Steini skoraði svo sjálfur annað mark Vals eftir hornspyrnu. Martin gaf boltann fyrir eftir að Stjörnustrákar höfðu hreinsað hornspyrnuna til hans og gaf Martin aðra fyrirgjöf sem Steini skallaði en hann hitti hann ekki nægilega vel. Boltinn barst svo aftur til hans af varnarmanni og skallaði hann þá í hægra markhornið af nokkurra metra færi. Flott mark og Valsmenn komnir í 2-0 eftir 35 mínútur.

Arnar skoraði svo þriðja mark Vals á 41 mínútu eftir að frábært battaspil milli Jeffsy og Steina en Jeffsy stakk svo boltanum í gegnum vörnina og komst Arnar þar einn á móti Bjarna. Arnar afgreiddi boltann snyrtilega í markið og kom Val þar í 3-0. Arnar fagnaði með svokölluðu laxafagni og hafa nú þegar 4 séð það á youtube.

Valsmenn fóru skælbrosandi í hálfleikskaffið enda þeirra menn gersamlega leikið sér að Stjörnustrákum. Leikurinn hafði verið nokkuð jafn og Stjörnustrákar átt hættulegar hornspyrnur og nokkrar álitlegar skyndisóknir en aldrei varð neitt alvarlegt úr þessu. Þess má einnig geta að Kjartan Sturluson átti toppleik í markinu en hann hefur verið með besti leikmaður Vals þetta sumarið með Martin Pedersen sem hefur almennt verið yfirburðarmaður í Pepsi Deildinni í ár.

Í seinni hálfleik mættu þeir bláu virkilega einbeittir og ætluðu að ná marki snemma. Halldór Orri klúðraði algeru dauðafæri sem hann gleymir seint. Bjössi hafði klúðrar álíka færi snemma leiks en það var engin afsökun fyrir Halldór.

Á 67 mínútu bar til tíðinda fyrir Stjörnustráka en þá fengu þeir að virðist álíka ódýra vítaspyrnu og Valsmenn en Arnar ýtir við Stjörnustrák sem virðist hafa verið tekinn upp í meistaraflokk úr fimileikadeildinni. Halldór Orri bætti upp fyrir mistökin og skoraði örugglega óverjandi fyrir Kjartan sem valdi þó rétt horn. 

Stjörnustrákar virtust ætla að láta sér þetta nægja og var Jóhann Laxdal orðinn leiður á veru sinni á vellinum og braut á Arnari sem var á leið upp í skyndisókn. Annað gula spjaldið hans þetta kvöldið var því óumflýjanlegt og hann því sendur í snemmbúna sturtu. Þetta færðu Valsararsér heldur betur í vil og settu á sjálfstýringu.

Jón Villhelm setti það sem oft er kallaður bjúddari er hann smellti boltanum af rúmlega 20 metra færi beint í samskeytin og er þetta eflaust eitt af mörkum sumarsins á Hlíðarenda. Glæsilegt mark frá Jóni sem hefur heldur betur verið að koma til undanfarið.

Fimmta mark Valsmanna var aftur á móti mark kvöldsins en þá skoraði sjálfur Matthías Guðmundsson. Matti hefur verið meiddur í nánast allt sumar og var virkilega kærkomið að sjá hann koma inn á. Hann var virkilega ákafur þann stutta tíma sem hann var á vellinum og var greinilega mjög ánægðurað vera kominn inn á. Enn kærkomnara var að sjá hann skora enda hans verið virkilega mikið saknað á Hlíðarenda. Þórir gaf boltann óeigingjarnt á Matta sem var einn á móti marki. Eftir þetta fjaraði leikurinn út og 5-1 sigur staðreynd.

Valsmenn geta kæst mikið yfir leik liðsins gegn Stjörnustrákum en þeir spiluðu virkilega skemmtilegan bolta. Gaman að stígandi sé yfir leik liðsins undir enda tímabils enda mikilvægt að enda þetta á góðu nótunum enda ekkert betra en að fara inn í veturinn á jákvæðann máta.

Nú held ég að mikilvægara sé að halda hópnum yfir á næsta tímabil með smávægilegum styrkingum. Eitt það mikilvægasta verkefni sem ný stjórn hefur tel ég vera að fylla það stóra skarð sem að Martin Pedersen kemur til með að skilja eftir sig enda á hann að vera að spila á hærra leveli en svo. Martin fór meðal annars á prufu til Ítalska A-Deildar liðsins Cessena í Janúar og var það komið soldið á leið þegar að þeir skyndilega bökkuðu út. Því var lítið annað fyrir Martin að gera en að koma til Vals þar sem að félagaskiptagluggar í Evrópu höfðu lokað og á hann ekki afturkvæmt í sitt gamla lið Vejle. Þó er ekki líklegt að Valur hafi efni á að fá leikmann í þessum gæðaflokki til sín en hann er samningsbundinn Vejle til 31. desember 2011.

Næsti leikur er gegn Keflavík og er vonandi að áhorfendur verði allavega 2-300.

Áfram Valur !!

Digg    Facebook   
 
Eitt inn á fimm stjörnu sýningu
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 13. september 2010 13:38
Fulltrúar Valsara.is voru fjarri góðu gamni í gær þegar Valsmenn röðuðu inn fimm mörkum á værukæra Stjörnumenn en hleyptu inn einu marki svona rétt til að leyfa gestunum að vera með skemmtiatriði. Hinir heimsfrægu Garðbæingar létu hins vegar Valsmönnum eftir sviðið og sýndu fádæma hógværð. Bæði lið svamla um miðja deild og greinilegt á tölum leiksins að stemmningin sem einkennt hefur Stjörnuna var Vals megin í þessum leik.

Helstu tíðindin leiksins er aftur á móti þau að KRistinn Jakobsson undirstrikaði að hann er hættur að vera KR-ingur. Víti og rautt spjald á andstæðinga Vals, skilaboðin verða ekki mikið skýrari til samsærisjúklinganna í Vesturbænum.

Næsti leikur er gegn Keflavík klukkan 17.15 á fimmtudaginn. Á tíma sem sér til að enginn vinnandi maður kemst með góðu móti. 

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Mánudagur, 13. september 2010 13:56
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 34