• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Svo bregðast krosstré sem önnur
Laugardagur, 30. ágúst 2008 09:13

ÍA er þriðja sigursælasta knattspyrnufélag landsins með 18 Íslandsmeistaratitla og átta bikarmeistaratitla á afrekaskránni. Ef frá eru talin frumkvöðlaár íslenskrar knattspyrnu, þegar Fram, KR og Valur (og m.a.s. Víkingur í tvígang) skiptust á að raða á sig Íslandsmeistaratitlum, má segja að Akurnesingar beri höfuð og herðar yfir öll önnur lið í titlasöfnun.

 

 

 

 

   

ImageMögulega má halda því fram að helsta vandamál Skagamanna sé að keppa við fjármagnið í Reykjavík. Fyrr í sumar var Bjarni Guðjónsson seldur til KR (ekki í Val, og sem betur fer segja flestir Valsarar) en sú sala hefði varla átt sér stað ef nægir væru peningarnir hjá Knattspyrnudeild ÍA. Vitað var að liðinu vantaði sárlega góðan markvörð út tímabilið en félagið lagði ekki í slíka fjárfestingu. Brottrekstur Guðjóns hefur heldur varla verið ókeypis.

 

 

 

Þó Skipaskagastórveldið sé nú í mesta ólgusjó sem um getur í sögu félagsins, er enginn skortur á frambærilegum leikmönnum hjá öðrum liðum sem lært hafa knattspyrnufræðin á Akranesi.

 

 

 

Þeir Gunnlaugur Jónsson og Reynir Leósson sem mynduðu sterkasta miðvarðapar deildarinnar fyrir nokkrum árum með ÍA leika nú með KR og Fram. Valsmennirnir Baldur Aðalsteinsson og Hafþór Ægir Vilhjálmsson koma báðir úr Skagaskólanum (Baldur er auðvitað ættaður af Húsavík en fór til ÍA 18 ára gamall) auk þess sem Freyr Bjarnarson varnarjaxl í FH er gamall Skagamaður. Sjálfsagt væri staða ÍA allt önnur ef krafta þessara leikmanna nyti við. Einnig mætti nefna fleiri Akurnesinga sem teljast kannski til „minni“ spámanna í öðrum liðum Landsbankadeildarinnar en of langt mál væri að telja þá alla upp.

 

 

 

 

 

Horft um öxl

 

Frá seinni hluta sjöunda áratugarins og fram að lokum þess níunda á síðustu öld börðust Valur og ÍA oft sinnis á toppnum. Árið 1978 unnu Skagamenn sinn fyrsta bikarmeistaratitil gegn Val en það sumar sló einmitt í gegn Pétur nokkur Pétursson. Valur vann Íslandsmótið þetta ár með einstökum árangri (17-1-0) en ÍA kom í veg fyrir að Hlíðarendaliðið ynni tvöfalt í sögufrægum bikarúrslitaleik.

 

 

 

Árið 1986 komst Valur liða næst því að hampa Íslandsmeistartitli á Akranesi. Liðið sigraði ÍA í 18. umferð en þurfti jafnframt að treysta á að KR ynni Fram á Laugardalsvelli sem gerðist því miður ekki (enda KR-ingum sjaldnast treystandi). Enn hefur því ekkert lið annað en ÍA unnið titilinn á Jaðarsbökkum.

 

 

 

Image Einn sögufrægasti leikur liðanna á seinni árum var sjálfsagt þegar Valur mætti í heimsókn á Akranes árið 1992. ÍA sem var nýliði í deildinni var með eitt best skipaða lið landsins þetta ár en jafnframt voru margar goðsagnir í röðum Vals. Skemmst er frá því að segja að Valur vann 1-5 sigur en engu að síður var það ekki stóra fréttin að lokinni viðureigninni. Dómari leiksins, Eyfirðingurinn Bragi Bergmann, hafði látið Stöð 2 plata sig til að bera hljóðnema inn á sér á meðan hann sinnti sínum störfum fyrir KSÍ.

 

 

 

Það var vægast sagt mikill hiti í leikmönnum liðanna á meðan hinum hefðbundnu 90 mínútum stóð. Fyrirliði ÍA var Sigurður Jónsson en starfsbróðir hans í Val var enginn annar en Sævar Jónsson. Þarna mættust stálin stinn og satt best að segja réð Bragi engan veginn við dómarahlutverkið. Hvert gullkornið á fætur öðru hraut af vörum fyrirliðanna auk annara leikmanna og Bragi Bergmann átti í vök að verjast.

 

 

 

Í einu tilfellinu þegar Sævar lét Braga heyra það gargaði varnatröllið svo hátt í falda hljóðnemann að varla var hægt að greina aukatekið orð af því sem hann sagði. „Sigurður, þú kallar mig ekki asna“ var ein tilvitnunin í Braga þegar gamli Arsenal-maðurinn uppskar áminningu af augljósum ástæðum. Að leik loknum héldu fúkyrðin áfram og einn Skagamanna sagði við títt nefndan Bergmann; „Bragi, þakka þér fyrir þann versta leik sem þú hefur nokkurn tímann dæmt!“ Líklega var þetta ekki síðasta skiptið á ferlinum sem Bragi fékk að heyra álíka ummæli.

 

 

 

Eftirmálar leiksins voru helst þeir að fréttamenn Stöðvar 2 voru mikið gagnrýndir fyrir þessa tilraun. Bragi greyið þótti löglega afsakaður fyrir hörmulega frammistöðu vegna þeirrar pressu sem fylgdi því að bera faldan hljóðnema. Bragi hefði betur haldið áfram samskonar fíflagangi því það hefði kannski borið í bætifláka fyrir hans hörmulega feril í dómarastarfi. Íslenskir fjölmiðlar hafa ekki reynt annað eins glæfrabragð síðan en vissulega væri gaman að fá samanburðarathugun við tækifæri.

 

 

 

Valsliðið

 

Frammistaða Vals hefur verið skelfilega brokkgeng í sumar. Eftir einn til tvo sigurleiki hefur jafnan komið afturkippur og oftar en ekki gegn liðum sem eiga að teljast lakari en við. Það var ekki fyrr en í 10-11. umferð að við unnum tvo leiki í röð í sumar ef allar keppnir eru taldar. Í 13-15 umferð unnust þrír sigrar í röð en svo fylgdi tap gegn HK í kjölfarið. Ef við ætlum að halda áfram í baráttunni um titilinn okkar þurfum við að ná virkilega góðri siglingu innan vallar sem utan það sem eftir er móts.

 

 

 

Við þurfum einfaldlega jafn mikið á 15 stigum að halda í síðustu fimm leikjunum og Skagamenn ef okkar markið eiga að nást. Svo gripið sé í klisjuhandbókina má segja að fimm leikja mótið sé formlega að hefjast hjá okkur.

 

 

 

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Laugardagur, 30. ágúst 2008 10:21