|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Stíflaðir Keflvíkingar |
| Fimmtudagur, 17. júlí 2008 22:12 | ||||||||||
Á vormánuðum var viðtal á fótbolta.net í Hin hliðin við fyrrum framherja Keflavíkurliðsins og núverandi leikmann Reynis í Sandgerði, Stefán Örn Arnarson . Stefán var spurður hinnar klassísku spurningar hver væri mesti höstlerinn í liðinu. Ekki stóð á svörum hjá Stefáni sem sagði; "Á Suðurnesjum fá allir sitt þannig að það er enginn sem nennir að tileinka sér einhverja staðlaða höstltaktík"Já Suðurnesjumenn fá allir sitt. Allir nema einn hópur manna. Stuðningsmenn knattspyrnuliðs Keflavíkur. Keflavík er það knattspyrnulið sem má þola lengstan biðtíma allra liða frá síðasta Íslandsmeistaratitli. Þeir eru komnir fram úr KR-ingum í biðtíma milli titla fyrir þó nokkru síðan og aðeins stuðningsmenn Víkings hafa þurft að halda lengur í sér eða frá 1924-1981. Jafnvel þolinmóðustu gæðingar í Keflavík munu varla halda svo lengi út. Allt er þó breytingum háð. Ef jarðhræringar á Suðurlandi eru eitthvað til að miða við, þá gæti verið að skjálftinn í vor kunni að vera teikn um stóra hluti suður með sjó þetta árið.
Hvurn fjandann á hann við með því spyrja eflaust einhverjir. Skoðum málið nánar.
Árið 1964 kom fyrsti Íslandsmeistaratitillinn í hús til Keflavíkur með tilheyrandi gleði í Stapanum. Þetta var stuttu eftir að eldhræringar áttu sér stað undan Vestmanneyjum og Surtsey myndaðist. Gosið í Surtsey hélt áfram næstu árin sem og sigurganga Keflvíkur eða öllu heldur ÍBK. En gullöld Suðurnesjamanna lauk árið 1973 og hefur félagið ekki orðið Íslandsmeistari síðan þá. Sama ár og brast á eldgos í Heimaey. Tilviljun? Hver veit. "Blöðru"-klisjan hefur lengi vel verið viðloðandi lið Keflavíkur. Leikmenn félagsins hafa oft á tíðum verið í ógnargóðu formi í fyrstu umferðum mótsins en síðan hefur fjarað undan þeim og sæti um miðja deild verið endanleg niðurstaða. Besservisserar (7)
![]()
mottan
said:
|
|
... Finnst samt ekki hægt að sleppa því þegar að varnarmaður Keflvíkinga gefur boltann til baka á markmanninn og hann tekur boltann upp með höndunum...!!?? Svo þegar að varnarmaður Keflvíkinga ætlar að taka boltann á bringuna og dempar hann með höndunum... |
|
... Já veit ekki, ég set eiginlega bara athugasemd við það þegar varnamaður Keflavíkur gaf á markvörðinn, annars fannst mér Garðar bara góður. Held að rauða spjaldið hafi alveg verið verðskuldað, aftanítækling og boltinn farinn. Soldið klaufalegt hjá Baldri |
|
... Varnarmaður vinnur bolotann af Valsara og hann er á leiðinni aftur fyrir endalínu, markmaðurinn tekur hann í sínar hendur. Þetta var aldrei bein sending á markmann og þar af leiðandi ekki brot. Það er ekki brot nema markmaður taki með höndum hreina sendingu frá samherja. Hversu oft sér maður þetta ekki í enska boltanum að markmenn taka upp bolta sem samherji þeirra tæklar af sóknarmanni. |
|
... Vel skrifuð úttekt á leiknum. Ég fagna því sérstaklega þegar skrifað er af virðingu fyrir andstæðingum og dómara en ekki hraunað yfir þá með gífur- og blótsyrðum sem er algengt að sjá á spjallþráðum og bloggsíðum. En það sem upp úr stendur. Þetta var frábær fótboltaleikur tveggja góðra liða sem leikinn var við góðar aðstæður. |
|
... Ég tek undir með Sigurði að umfjöllunin er mjög góð og fagleg. Þetta var skemmtilegur leikur tveggja góðra liða sem einbeittu sér að því að leika knattspyrnu. Hvað dómgæsluna varðar koma alltaf upp vafaatriði, og rauða spjaldið sem Baldur Kúta fékk var svona á mörkunum. |