• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Spá 1
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Föstudagur, 09. maí 2008 03:52
 

1.Valur

 

20 ára biðinni er lokið og það má segja að Valur sé kominn tilbaka með látum.    Valur er með besta “hrygginn” í deildinni, Kjartan í markinu, Atla í vörninni, Pálma á miðjunni og svo Helga á toppnum.  Þegar við bætist að liðið er með tvo menn í næstum hverja einustu stöðu þá liggur fyrir að það er erfitt að vinna þetta lið.  Þeir eru líka þjálfaðir af Willum.  Nú þegar liðum hefur loks verið fjölgað í deildinni mun getumunur liðanna verða enn skýrari og gæði og breidd Valsliðsins mun tryggja það að titilinn verði áfram á Hlíðarenda.

  

2. Breiðablik

 

Breiðablik var að spila flottan fótbolta síðasta sumar en höfðu ekki alltaf heppnina með sér.  Þetta árið verður breyting á og hjólin munu snúast með blikunum.  Marel Baldvinsson er líka kominn aftur í Kópavoginn og hann hefur sýnt síðustu ár að hann getur skorað allt að því mark í leik hér á Íslandi á annarri löppinni.  Verði hann með báðar í lagi mun hinn símontni Ólafur Kristjánsson verða ansi kátur.

 

3. FH

 

FH er með lið á niðurleið.  Þeir fóru síðasta ár á sálfræðinni og voru nálægt því að vinna deildina þegar þeir voru með lið sem átti engan veginn skilið að verða meistari.  Núna er sálfræðikaflanum lokið og þeir verða að byrja upp á nýtt.  Staðreyndin er sú að ef liðið hefði ekki Tryggva Guðmundsson þá væru þeir í ekkert alltof góðum málum.  Maðurinn sem svo margir elska að hata mun allavega sjá til þess að liðið nær þriðja sætinu.

   

 4. ÍA

 

Guðjón Þórðarson þurfti 6 umferðir í fyrra til að ná heljartökum á Skaganum.  Eftir það varð liðið stórhættulegt.  Ef þeir ná góðri byrjun núna er aldrei að vita hvað gerist.  Þeir hafa ekki sömu fjárráð og hákarlarnir en þeir lifa á skipulagi og taktík.  Fjölgun umferða mun koma þessu liði illa vegna breiddarleysis.

      

 5. KR

 

Hið svokallaða Vesturbæjarstórveldi átti skammarlega lélegt tímabil í fyrra og þetta getur ekki orðið verra, ekki nema að þeir falli, fat chance.  Þjálfarinn er hinn viðkunnanlegi Logi Ólafsson sem tók við að Teiti.  Það væri synd að segja að Logi hefði umbylt liðinu í fyrra, þeim tókst bara að gera rétt nóg til að halda sér uppi.  Nú fær hann heilt tímabil til að spila með og liðið hefur fengið töluverðan liðstyrk einnig, á pappírum séð.  Það var reyndar eins í fyrra en úr varð lið uppfyllt af smákóngum.

   

 6. Fylkir

 

Þeir hafa misst slatta af leikmönnum en margir af þeim voru orðnir gamlir og hálfónýtir.  Í staðinn hafa þeir fengið leikmenn sem eiga það flestir sameiginlegt að hafa verið meðalstórir fiskar í meðalstórri tjörn.  Í liði eins og Fylki gætu þeir fundið fjölina sína og eins kemur í ljós núna hvort Jóhann Þórhallsson geti í raun eitthvað í fótbolta.

   

 7. Keflavík

 

Klárlega klúbbur á niðurleið.  Margir hafa yfirgefið liðið og fáir hafa komið í staðinn.  Kristján þjálfari hefur verið að gera ágætis hluti með liðið síðustu ár en verkefnið hefur aldrei verið erfiðara.  Liðið þarf líka að sýna að þeir séu komnir yfir dramað á Skaganum í fyrra en það var eins og eitthvað hefði dáið í liðinu eftir það.

    

 8. Fjölnir

 

Nýja næsta verðandi stórveldið í boltanum.  Eða hvað?  Þeir hafa fengið nokkra reynslubolta til hjálpa til á fyrsta ári, eins og Gústa Púst.  Ef þeir byrja mótið vel munu ungu strákarnir fá sjálfstraustið og liðið heldur sér uppi léttilega.  Ef það gerist hins vegar ekki er liðið í miklum vandræðum.

   

 9. Þróttur

 

Hafa verið að fá til sín marga nýja leikmenn og sumir af þeim eru flottir.  Því miður hafa nokkrir af þeim verið að meiðast nýlega og Þróttur má ekki við því.  Gunnar Oddsson lítur vel út þarna á hliðarlínunni og þrátt fyrir nýleg áföll og þau sem gætu komið seinna mun hann ná að leysa það nægjanleg vel til að tryggja liðinu sæti í efstu deild að ári liðnu.

   

 10. Fram

 

Það er hægt að skrifa margt og spá mörgu um Fram en það skiptir ekki máli, þeir munu alltaf falla næstum því og eftir 6-7 þannig tímabil falla þeir.  Svo koma þeir strax upp og hringrásin hefst að nýju.  Liðið er tiltölulega nýkomið upp þannig að þeir falla ekki alveg strax.  Meira þarf ekki að spá í þessu liði.

   

 11. Grindavík

 

Þetta lið hefur oftar en ekki under-performað en þetta tímabilið þarf liðið að leika yfir getu ef það ætlar ekki að falla.  Það eru einfaldlega ekki mikil gæði í þessu liði og því þarf liðið að treysta á samheldni og leikgleði.  Það má samt ekki gleyma að innan þeirra vébanda er Scott Ramsay sem hefur alltaf lífgað uppá boltann.

   

 12. HK

 

Þegar litið er tilbaka á tímabilið 2007 má segja að það merkilegasta við það hafi verið að HK hafi haldið sér uppi.  Þetta lið var lélegt í fyrra og verður líklega lélegra núna.  Munurinn er í fyrsta lagi að nú falla tvö lið og svo gekk allt upp í fyrra.  Þetta tímabil verður hinsvegar sanngjarnt og liðið verður límfast á botninum.

Digg    Facebook   
Besservisserar (4)add comment

Már Elíson said:

...
Þessi spá (sem er nú meira í gríni en alvöru, sýnist mér) mun alls ekki rætast. Þú hefur ekki lesið þig nógu vel til í fræðunum. Þetta með FRAM er t.d.bara til að hlæja að sjáðu til. En hins vegar nokkuð til í þessu með FH, þeir eru ofmetnir.
Gamall Framari.
08:52 | 10 maí | 2008

Óttar Felix Hauksson said:

...
Það er nú eitthvað ofmat á okkar liði í gangi hjá þér Ásgeir, sérstaklega hvað varðar miðjuna og framlínuna. Pálmi er góður, bara spurning hvort hann sé nógu góður Pálmi er ekki þessi "spielmacher" á miðjunni sem við höfum saknað svo sárlega síðustu ár. Situr of lengi á boltanum, er of seinn að sjá fria samherja og opna færi fyrir framherjana með nákvæmum sendingum. Hvað varðar Helga, þá komu veikleikarnir berlega í ljós í fyrsta leiknum. Helgi hefur misst bæði hraða og snerpu (enda ekkert að yngjast)og verður sennilega mun léttara fyrir varnarmenn í deidinni að eiga við hann en undanfarin ár. Ég var ekki að sjá að Albert Ingason væri "maðurinn" og Gummi Ben er ekki beint "fremsti striker". Nei hryggurinn sem þú nefnir er ekki alveg up´á það besta.
17:52 | 12 maí | 2008

Óttar Felix Hauksson said:

...
Það er nú eitthvað ofmat á okkar liði í gangi hjá þér Ásgeir, sérstaklega hvað varðar miðjuna og framlínuna. Pálmi er góður, bara spurning hvort hann sé nógu góður Pálmi er ekki þessi "spielmacher" á miðjunni sem við höfum saknað svo sárlega síðustu ár. Situr of lengi á boltanum, er of seinn að sjá fria samherja og opna færi fyrir framherjana með nákvæmum sendingum. Hvað varðar Helga, þá komu veikleikarnir berlega í ljós í fyrsta leiknum. Helgi hefur misst bæði hraða og snerpu (enda ekkert að yngjast)og verður sennilega mun léttara fyrir varnarmenn í deidinni að eiga við hann en undanfarin ár. Ég var ekki að sjá að Albert Ingason væri "maðurinn" og Gummi Ben er ekki beint "fremsti striker". Nei hryggurinn sem þú nefnir er ekki alveg up´á það besta.
17:52 | 12 maí | 2008

Borko said:

...
Óttar: Ég verð að vera ósammála þér með Pálma. Mín tilfinning er sú að Pálmi eigi eftir að vera skuggalegur á þessu tímabili. Hann hefur komið vel undan vetri og átti frábæra leiki í Lengjubikarnum og Meistaraleiknum. Hann virðist vera líkamlega sterkari og öruggari í öllum aðgerðum sínum. Virkilega gaman að fylgjast með honum. Ég vona bara að við missum hann ekki til útlanda á miðju tímabili, því hans tími er klárlega að renna upp.
Helgi á eftir að koma sér í almennilegt leikform en ég er sammála þér með að hann á sennilega ekki eftir að eiga jafngott tímabil og í fyrra. Albert á alveg eftir að fá að sanna sig. Það er ekki mikið að marka frammistöðu manns þegar hann kemur inn í tapaðan leik á 65. mínútu.
19:40 | 12 maí | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 13. maí 2008 10:26