|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Smábæjarblús |
| Höfundur: Valþór Druzin | ||||||||||
| Laugardagur, 12. september 2009 19:50 | ||||||||||
|
Sjaldan hefur undirritaður heyrt annan eins barlóm og minnimáttarkenndarvæl eins og nú berst að austan, n.t.t. frá Selfossi vegna frétta þess efnis að Gunnlaugur Jónsson hefur ákveðið að stíga skref uppávið á sínum starfsferli og taka við þjálfun hins sögufrægaliðs Vals. Yfirlýsingagleði leikmanna Selfoss ríður ekki við enteyming, og vanda þeir hvorki fráfarandi þjálfar sínum, né knattspyrnufélaginu Val kveðjurnar. ![]() Undirritaður gerir ráð fyrir því að þessi franskbrauð sem spila í Selfosstreyjunum, hljóti að sitja allir saman í félagsheimili Selfossbæjar og hamist við að skrifa lesendabréf í Morgunblaðið, milli þess sem þeir liggja á línunni í þjóðarsál Rásar 2, óvitandi að hún hefur verið lögð niður, enda berast fréttir oft seint í sveitina. "Þetta er bara skítlegt"...
"...ég er mjög ósáttur við vinnubrögðin"
"...svo koma hrægammarnir úr Reykjavík og liggja á honum"
"Valur er alltaf skítaklúbbur í mínum huga eftir þetta"
"...ömurlegt, hvort sem það er hjá Val eða Gulla"
"...bara ömurlegt"
"...ömurlegt hjá Valsmönnum" -- valdar tilvitnanir úr viðtölum við leikmenn Selfoss á Fótbolta.net
Við hér á Valsarar.is viljum hinsvegar bjóða Gunnlaug velkominn á Hlíðarenda og vonum að hann nái að rífa liðið upp á næsta ári, og koma því á þann stall sem því ber.
Velkominn Gulli, velkominn! Eins vonum við að Selfyssingar jafni sig fljótt á þessu, og einbeiti sér að því sem þeir gera best; að pússa Hondurnar sínar. Besservisserar (7)
![]()
Bjössi
said:
|
|
... Við póstum þó ekki niðurrífandi söngva um leikmenn okkar á netinu og sjáum ekkert athyglisvert við það! KR-ingar eru skítapakk upp til hópa. |
|
... Burt séð frá því hvað við KR-ingar erum mikið skítapakk þá eru valsarar sí og æ að láta bösta sig í vafasömum viðskiptum varðandi leikmanna kaup og nú líka þjálfara ráðningar. Þó svo margir stuðningsmenn liða beri enga virðingu fyrir öðrum liðum og því hvað þau eru að gera þá finnst mér að stjórnendur knattspyrnuliða beri skylda til þess að gera það og það virðist stjórn Vals ekki gera. Annað sem ég verð að minnast á er að ég er búinn að fara á þrjá heimaleiki með Val í sumar, gegn Grindavík, FH, og KR í bikar, og svo hef ég farið á tvo heimaleiki með Selfoss og stuðningur aðdáenda við þessi tvö lið er þvílíkur og hafa stuðningsmenn Selfossar þar vinninginn með yfirburðum. Þó svo Valur sé stærra lið á landsvísu þá virðst stuðningshjartað vera talsvert stærra hjá Selfyssingunum. |
|
... Nei við birtum ekki niðurrífandi söngva um okkar leikmenn á netinu enda er það vandræðalegt fyrir stuðningsmenn KR en við erum nú ansi oft mjög duglegir við að drulla yfir okkar leikmenn á spjallinu |
|
... @Björn Það liggur fyrir að stjórn Vals var búin að ræða við og fá leyfi hjá stjórn Selfosss varðandi að nálgast Gunnlaug. Hvernig málið fór að leka í fjölmiðla, er hinsvegar allt önnur saga og kannski spursmál útafyrir sig. |
|
... Með ólíkindu, hvað er í gangi, það er bara ekkert vafasamt við þetta, Valur fékk leyfi, Valur kom ekki með tilkynningu um þetta fyrr en þetta hafði lekið út = Valur gerði ekkert rangt............. |