|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Skiptistöðin að Hlíðarenda |
| Fimmtudagur, 07. maí 2009 15:31 | ||||||||||||||
|
Kannski er það ekki að ástæðulausu að ríkis- og borgaryfirvöld hafa mikinn hug á að byggja eitt stykki samgöngumiðstöð í túnfætinum við Hlíðarenda. Síðustu árin hefur meistaraflokkur karla í knattspyrnu verið í því hlutverki þar sem nánast heilu og hálfu byrjunarliðinum hefur verið skipt út. Hátt í tíu leikmenn hafa yfirgefið félagið frá því að síðasta tímabil hófst og annað eins af leikmönnum hefur stokkið um borð á líðandi vetri. Er það í takt við þróun síðustu ára hjá Knattspyrnufélaginu Val. Þó svo að Valur hafi styrkt sig liða mest á nýliðnum vetri má efast um að við séum með sterkara lið heldur en fyrir ári síðan. Valsliðið leit frábærlega út á undirbúningstímabilinu á síðasta ári en virtist síðan fyrirsjáanlegt þegar í alvöruna var komið. Meiðsli lykilmanna höfðu auðvitað sitt að segja en hópurinn var stór og með marga vel launaða leikmenn sem stóðu ekki undir kröfum. Eftir því sem á leið á tímabilið og mótstreymið varð meira virtist leikgleðin frá Íslandsmeistaratímabilinu vera farin út í veður og vind. Á köflum virkaði liðið hálfpartinn eins og leiðinlegur vinnustaður. Sumir leikmenn rétt mættu til að sinna skyldunni og aðrir virtust engan veginn vera að nenna þessu. Willum virkaði enn pirraðri eftir því sem vandræðin jukust og skildi þetta Val eftir með frekar vonlausa blöndu. Ágætlega gekk gegn liðum sem voru á sama róli og við um miðja deild. Oft hélt Valsliðið sig aftarlega og varist ágætlega þeim liðum sem voru svipuð að getu og gat síðan refsað á móti. Öðru máli gegndi um topp og botnliðin. Gegn fúxaliðum HK og ÍA náðist aðeins eitt stig af 12 mögulegum og einnig tókst fallbaráttuliði Fylkis að leggja okkur að velli. Sama var upp á teningnum gegn dúxunum í FH og Keflavík en eitt stig af 12 mögulegum fékkst gegn þeim. Alls náðu sjö af 11 andstæðingum að sigra okkur í deildinni á tímabilinu auk þess sló Breiðablik okkur úr bikarnum. Borið saman við meistaratímabilið 2007 þá tók Valur 12 stig af 12 gegn neðstu tveimur liðunum og öll stigin gegn okkar helstu keppnautum í FH. Af þeim fimm erlendu leikmönnum sem voru í Val er í mesta lagi söknuður af Rene Carlsen. Barry Smith er og verður auðvitað legend enda besti erlendi leikmaður í sögu Vals, en hans tími var engu að síður kominn. Meiðsli komu í veg fyrir að Dennis Bo Mortensen næði að setja mark sitt á liðið og Rasmus Hansen var ekki beint eftirminnilegur. Henrik Eggerts var ágætlega teknískur en full mikið meiddur og hefði betur mátt dingla í Fram. Eða kannski öllu heldur mátt “dingla Fram” enda var Safamýrarfélagið nánast komið í hengingarólina með launagreiðslur til hans í dönskum krónum. Í fullri hreinskilni þá gerði Frelasarinn rétt með að skipta aftur yfir í KR. Sóknarleikur Valsliðsins var búinn að byggjast upp í kringum gamla Þórsarann með góðum árangri í þrjú tímabil en í fyrra var töfrasproti Guðmundar ekki eins og máttugur og oft áður. Líklega var það best fyrir báða aðila að leiðir skildu og leiða má líkum að því að ný áskorun með KR muni frekar blása enn einu lífinu í feril Gumma Ben heldur áframhaldandi vera á Hlíðarenda hefði gert. Við þessi brotthvörf bætast nöfn ýmissa minni spámanna sem og salan á þeim Birki Má og Pálma Rafni á miðju síðstata tímabili. Síðan er ekki úr vegi að nefna Kristján Hauksson en tæplega 18 mánað dvöl hans á Hlíðarenda er lokið án þess að hann hafi spilað eina mínútu fyrir Val í alvöru keppni. Vissulega efnilegur leikmaður sem er þarna á ferð en ferill hans með Val var í besta falli mislukkaður. Fimmta sætið varð niðurstaðan árið 2008 og himinn og haf aðskildu okkur frá toppbaráttuni sem var langt undir væntingum allra Valsmanna. Ljóst var að stokka þurfti spilin upp á nýtt. Á morgun birtum við umfjöllun um nýliða Valsliðsins og reynum að meta möguleika liðsins í sumar. Besservisserar (8)
![]()
Mauli
said:
|
|
... Kjartan í marki, Reynir og Atli í miðvörðum, Bjarni og Steinþór í bakvörðunum. Jeffs og Mete á miðjunni og Baldur á hægri kanti. Mögulega Habbó á vinstri og Marel og Helgi frammi. Svo getur Willum mögulega gert einhvern af sóknarmönnunum að framliggjandi miðjumönnum þegar þeir koma af bekknum og ef það forfallast einhver á miðjunni. Sammála greinarhöfundi að miðjan er frekar þunn og má ekki við miklum skakkaföllum. Svo er ég spenntur að sjá hvernig Viktor kemur inní þetta. Eins held ég að Pétur Markan eigi eftir að vera drjúgur. |
|
... Er Helgi meiddur? Fótbolti.net stillir honum ekki upp í líklegt byrjunarlið í upphafi móts... |
|
... Helgi hefur verið að berjast við meiðsli núna undanfarið. Marel hefur líka eitthvað verið að ströggla. Bjössi hefur verið meiddur síðustu vikur. Mete hefur átt við einhver vandamál svo að sterkir leikmenn hafa ekki getað verið með sem skildi. Vonandi verða þeir allir með í byrjun enda veitir okkur ekki af því. Mér finnst fólk gleyma þessum gömlu refum í umræðunni fyrir þetta mót. Eru þeir kannski bara búnir á því? |
|
... Flott umfjöllun, ég held að það verði mikilvægt að taka 3 stig í fyrsta leik enda náði Valur sér aldrei á strik eftir brotlendingu í byrjun síðasta sumars. |
|
... Glæsilegt að sjá Valsara eftir allt allt of langt hlé. Er ég einn um það að vera ósáttur við hvítu sokkana? |
|
... Finnst þér kannski hvítu sokkarinir of United-legir? Hef heyrt þetta áður að Valur eigi að spila í rauðum sokkum. Persónulega myndi ég vilja sjá enn meira afturhvaf til fortíðar og hafa bláa sokka með hvítu stroffi. Menn geta séð á málverkunum á Hlíðarenda af Alberti Guðmundsyni og Sigurði Ólafssyni hvað þeir eru smekklegir. |
|
... Ekkert að United svo sem. Maður er bara alinn upp við rauðu sokkana og svo er þessu allt í einu breytt. Eins vil ég fá aftur alhvíta varabúninga, vil ekki sjá þessa Fram-búninga. |