|
Enginn er annars bróðir í leik |
|
Miðvikudagur, 15. október 2008 10:19 |
|
Handbolta stórveldi 21. aldarinnar, Haukar frá Hafnarfirði mæta í heimsókn í Vodafonehöllina í kvöld. Haukar sitja sem stendur í 4. sæti deildarinnar en flestir sérfræðingar spá liðinu enn einum Íslandsmeistaratitlinum næsta vor.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 15. október 2008 10:40 |
|
Nánar...
|
|
|
Þriðjudagur, 07. október 2008 21:05 |
 Fjármálakreppan hefur víðtæk áhrif þessa dagana. Lengi hefur staðið til að einir af okkar elstu fjendum flyttu starfsemi sína úr hinni eiginlegu Reykjavík og í útnára sem nefnist Grafarholt. Sú staða virðist heldur betur hafa breyst en nú er útlit fyrir að Fram verði hreinlega lagt af eftir 100 ára sögu og sameinist öðru úthverfaliði. Þetta eru vægast sagt sorgarfréttir fyrir íslenska íþróttamenningu.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 08. október 2008 10:08 |
|
Nánar...
|
|
Langbesta lið frá Reykjavík ! |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 18. september 2008 15:09 |
|
Þó ljóst sé að Valsmenn verði ekki í slagnum um Íslandsmeistaratitilinn þetta árið, er þó ennþá að einhverju að keppa, ekki síst því að ná að sýna og sanna hversvegna liðið er ríkjandi Íslandsmeistari næstu vikurnar. Þriðja sætið í deildinni gefur Evrópusæti á næsta ári, og gerir það að verkum að Valsmenn geta stoltir sagst eiga besta lið Reykjavíkur árið 2008.
Í kvöld mæta Þróttarar niðrá Hlíðarenda (á vægast sagt einkennilegum tíma reyndar), til að reyna sig gegn okkar mönnum.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 22. september 2008 01:31 |
|
Nánar...
|
|
Svo bregðast krosstré sem önnur |
|
Laugardagur, 30. ágúst 2008 09:13 |
|
ÍA er þriðja sigursælasta knattspyrnufélag landsins með 18 Íslandsmeistaratitla og átta bikarmeistaratitla á afrekaskránni. Ef frá eru talin frumkvöðlaár íslenskrar knattspyrnu, þegar Fram, KR og Valur (og m.a.s. Víkingur í tvígang) skiptust á að raða á sig Íslandsmeistaratitlum, má segja að Akurnesingar beri höfuð og herðar yfir öll önnur lið í titlasöfnun.
|
|
Síðast uppfært: Laugardagur, 30. ágúst 2008 10:21 |
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 10 af 13 |