Nú berast af því tíðindi að fyrirliði Vals sé farinn á reynslu til Valerenga í Noregi og feti þar með í fótspor Árna Gauts Arasonar fyrrum landsliðsmarkvörðs Íslendinga. Maður veit ekki alveg hvernig maður á að bregðast við þessum tíðindum, því að auðvitað vilji maður að Bjarna gangi sem best, vonar maður þó að hann nái að ljúka tímabilinu með Valsliðinu enda er mikill missir að honum í varnarlínunni á Hlíðarenda.
Við óskum Bjarna góðs gengis í útrásinni, værum þó alveg til í að heyra hvað lesendum finnst um þetta.
Jafntefli gegn Bítlabæjarliðinu var niðurstaðan í kvöld. Nánari umfjöllun um leikinn kemur á morgun en þangað til er eitt og annað vert að skoða nánar.
Atli Eðvaldsson virðist ósáttur við ýmsa hluti hjá Valsliðinu og skyldi engan undra.
Á Vísir.is segir Atli: "Liðið er brotið og vantar leiðtoga og við erum að reyna að finna hann. Ég, í jakkafötunum, hefði getað hreinsað boltanum í burtu. Þetta mark sýnir ástandið á liðinu, það er enginn sem tekur af skarið"
Á fótbolta.net segir Atli: "Seinni hálfleik að þá hættum við að spila boltanum og förum í þessar kýlingar og aftur kýlingar. Það sýnir bara sálarástandið á liðinu, þeir eru hræddir um að tapa einhverju sem þeir finnst þeir hafa og vonandi næ ég að breyta þessu"
Við Ríkissjónvarpið segir Atli síðan: "Við erum ekki komnir í fullan styrk við að trúa á sigra.... Ég tek við liði sem er gjörsamlega í molum, bæði andlega og líkamlega...það er ekki auðvelt að byggja upp sjálfstraust þegar allt er farið."
Það er ekki laust við að það megi lesa ýmislegt á milli línanna og virðist því meira og minna vera beint til forvera Atla í starfi. Liðinu vantar leiðtoga, er brothætt og hættir til að detta í kýlingar og aftur kýlingar. Liðið er andlega niðurbrotið og í lélegu formi.
Í raun er mjög auðvelt að kvitta upp á þetta allt saman og vonandi hið besta mál að hlutirnir séu ræddir tæpitungulaust. Atli má þó vita að hann getur bara kennt Willumi um slæmt ástand liðsins í þetta eina skipti og það er þannig séð ágætt að því sé lokið að hans hálfu.
Það er greinilegt að Atli vill ná ákveðnu léttleikandi spili og góðum anda í hópinn og best færi á því að stuðningsmenn Vals gefi honum tíma til þess. Ekki er hægt að búast við einhverjum einnar nætur kraftaverkum í þeim efnum en eitt og annað bendir til að liðið sé á réttri braut. Eflaust mun það taka einhvern tíma að ná Kick-and-Run skjálftanum úr mörgum leikmönnum en það var aðferð sem virtist innprentuð í of marga Valsmenn undir stjórn Willums. Atli vill spila fótbolta upp á klassíska mátann og vonandi geta flestir stuðningsmenn Vals fellt sig við það.