• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Pælingar
Kaldar kveðjur
Höfundur: Valþór Druzin   
Mánudagur, 07. september 2009 10:54

Þetta hljóta að vera allra köldustu kveðjur sem nokkrir stuðningsmenn hafa sent leikmanni eigin liðs, nokkurntímann, nokkursstaðar.
Tekið skal fram, að þessi upptaka er frá því um mitt sumar, þegar kr-ingar heimsóttu Basel í Sviss, og Prince Rajcomar var ennþá leikmaður kr.

Það hlýtur að vera meiriháttar gaman að vera leikmaður í vesturbænum, eigandi von á svona svakalegum pillum frá sínum eigin stuðningsmönnum.

 

 

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Mánudagur, 07. september 2009 11:05
 
Jafntefli í Eyjum
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Laugardagur, 29. ágúst 2009 18:07
Valur náði jafntefli gegn ÍBV í dag þegar liðið mætti á Hásteinsvöll í dag. Ekki er hægt að segja að væntingarnar hafi verið  miklar miðað við gengið það sem af er þannig að stig á erfiðum útivelli er viss árangur, sérstaklega þar sem fyrirliðinn Bjarni Ólafur uppskar rautt spjald á 70. mínútu. Guðmundur Mete hlaut síðan gult spjald á lokamínútunum fyrir leiktöf samkvæmt textalýsingu Mbl.is en það voru víst Eyjamenn sem lögðu meira kapp á sigur í leiknum. Ljóst er að 10 af 11 andstæðingum hafa tekið stig af Valsliðinu í sumar. Makalaus tölfræði hjá liði sem ætlaði sér að vera í toppbaráttu þetta tímabilið en þetta er svo sem lýsandi fyrir allt annað.

Valsarar.is bíða eftir að hreinsunardeildin taki til starfa nú á komandi hausti enda orðið ljóst að svipað byrjunarlið er ekki boðlegt á næsta tímabili. Því miður hefur Atli Eðvaldsson ekki tekið af skarið í þessum efnum eftir að ljóst var að þetta Íslandsmót yrði hvorki fugl né fiskur. Á móti kemur þá þjónar það litlum tilgangi að henda efnilegum leikmönnum inn í byrjarnlið í þessu umhverfi þar sem andrúmsloftið virðist ekki upp á það besta. Ef eitthvað jákvætt er hægt að segja í dag að þá er varamannabekkurinn í það minsta mun meira spennandi en byrjunarliðið en tréverkið í dag skipuðu eftirfarandi:

Guðmundur Viðar Mete 2
alt
Einar Marteinsson 12
alt
Arnar Sveinn Geirsson 18
alt
Viktor Unnar Illugason 19
alt
Haraldur Björnsson 23
alt
Eðvarð Börkur Óttharsson 24
alt
Þórir Guðjónsson 27

Auk þessara þá var Guðmundur Steinn Hafsteinsson í byrjunarliði. Stuðningsmenn Vals binda eflaust miklar vonir við þessa leikmenn á komandi árum en aðstæður verða auðvitað að vera réttar til að þeir geti blómstrað á Hlíðarenda. Kynslóðaskipti eru óumflýjanleg og vonandi bera stjórnendur Vals gæfu til  að gera almennilegt lið úr þessum hópi á næstu árum.

Digg    Facebook   
 
Einn leik með þeim...
Höfundur: Valþór Druzin   
Miðvikudagur, 19. ágúst 2009 17:54
Ég væri til í einn leik með þeim...

-- Garðar Gunnlaugs, í viðtali við Fótbolta.net, aðspurður hvort hann vildi ekki spila einn leik með bræðrum sínum áður en ferlinum lyki 

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 19. ágúst 2009 18:03
 
Allt er þá þrennt er ?
Höfundur: Valþór Druzin   
Þriðjudagur, 18. ágúst 2009 18:25

gardarSkv. þessu virðist allt eins líklegt að Hr. Ísland snúi heim til Íslands, a.m.k. um stundarsakir.

Spurningin er bara hvort heilög þrenning Gunnlaugssonsbræðra komi til með að spranga um Hlíðarenda síðsumars, sem væri síður en svo ónýtt.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 18. ágúst 2009 19:20
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 5 af 13