• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Pælingar
Bölvun Murphys
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 28. september 2009 13:32

 

 

375818-voodoo_large

 

Vorið kom með væntingar og sumarið með svör orti Bjartmar Guðlaugsson fyrir einhverjum 20 árum síðan. Væntingarnar voru óljósar fyrir þetta tímabil þrátt fyrir að Valur tefldi fram dýru liði. Dýrasta liði Íslandssögunnar sögðu sumir og miðað við árferði þá var sú fullyrðing ekki fjarri lagi. Stjórnin bætti við mönnum sem voru með þokkalegustu ferilskrár en á móti kom að aðeins tveir þessara leikmanna gátu talist vera ungir menn á uppleið. Restin af viðbótunum voru menn í ljósaskiptum á sínum ferli.

Fyrir Íslandsmótið var því enn mörgum spurningum ósvarað og undirbúningstímabilið gaf mönnum tilefni til að vera tvístígandi yfir því sem var í vændum. Hér á Valsarar.is voru þessar hugleiðingar meðal annars ritaðar:

Tilvitnun hefst:


Mikið er gert úr hinum klisjukennda X-factor hjá liðum fyrir Íslandsmót. Til að Valsarar.is dýfi fætinum í þann fúla pytt má nefna að helsti X-factor Valsliðsins er sá hversu margir X-factorarnir eru núna rétt fyrir mót. Mun Kjartan halda stöðu sinni? Munu Atli Sveinn og Reynir ná saman? Verður eitthvað bit í miðjunni? Hverjir verða sóknar – parið/tríóið? Klárast hugmyndabanki Willums eins og hjá KR og Þrótti?  

Það er því eins gott að örlög Valsliðsins verði ekki sett undir hæl
Lögmáls Murphy’s : „Ef eitthvað getur farið úrskeiðis, mun það gera það.“

Tilvitnun lýkur
(Sjá nánar:  http://valsarar.is/p-lingar/logmal-murphys )

 

fallandi

 

Svo þessum spurningum sé svarað nú að móti loknu þá er niðurstaðan á þessa leið:

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Mánudagur, 05. október 2009 21:17
Nánar...
 
Hvað skal gera...
Höfundur: Valþór Druzin   
Föstudagur, 18. september 2009 14:00
Karlalið Vals er í einkennilegri stöðu fyri komandi leiki gegn FH og KR.  Það er nefninlega svo, að Valsmenn hafa úrslit Íslandsmótsins nánast í hendi sér, því með sigri á FH setja þeir KR í færi við titilinn, en tapi þeir í Kaplakrika þá eru FH-ingar sjálfkrafa Íslandsmeistarar. Leikar vandast ennþá meira þegar horft er til þess að lokaleikur Vals í vonbrigðamótinu 2009 er einmitt gegn KR á Hlíðarenda.
Það er því súr kostur á báða bóga, því fátt vekur Völsurum jafn mikla ógleði og sá möguleiki að KR landi Íslandsmeistaratitli ( þá er nú skömminni skárra að spútniklið FH taki þetta ), en á hinn bóginn er það líka ansi biturt að láta fagna meistaratitli framaní sig í Kaplakrika.
Sigur í báðum eftirlifandi leikjum væri auðvitað ákjósanlegast; það myndi nefninlega þýða að Valslðið myndi pissa a skrúðgöngu FH-inga, vekja KR-ingum falskar vonir og gera ekkert úr þeim vonum viku síðar.
Tveir sigrar á toppliðum deildarinnar yrðu aukinheldur fínt veganesti fyrir leikmenn og stuðningsmenn inní veturinn.
Karlalið Vals er í einkennilegri stöðu fyri komandi leiki gegn FH og KR.  Það er nefninlega svo, að Valsmenn hafa úrslit Íslandsmótsins nánast í hendi sér, því með sigri á FH setja þeir KR í færi við titilinn, en tapi þeir í Kaplakrika þá eru FH-ingar sjálfkrafa Íslandsmeistarar. Leikar vandast ennþá meira þegar horft er til þess að lokaleikur Vals í vonbrigðamótinu 2009 er einmitt gegn KR á Hlíðarenda.

Það er því súr kostur á báða bóga, því fátt vekur Völsurum jafn mikla ógleði og sá möguleiki að KR landi Íslandsmeistaratitli ( þá er nú skömminni skárra að spútniklið FH taki þetta ), en á hinn bóginn er það líka ansi biturt að láta fagna meistaratitli framaní sig í Kaplakrika.
piss
Sigur í báðum eftirlifandi leikjum væri auðvitað ákjósanlegast; það myndi nefninlega þýða að Valsliðið myndi pissa a skrúðgöngu FH-inga, vekja KR-ingum falskar vonir og gera ekkert úr þeim vonum viku síðar.  

If you can't be good, be bad !

Tveir sigrar á toppliðum deildarinnar yrðu aukinheldur fínt veganesti fyrir leikmenn og stuðningsmenn inní veturinn.

En, hvernig sem þetta nú annars spilast; áfram Valur!

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Föstudagur, 18. september 2009 14:08
 
Hallærislegt röfl
Höfundur: Valsarar.is   
Fimmtudagur, 17. september 2009 00:04

gretsky

 

Grétar Sigfinnur Sigurðsson fyrirliði KR gerði sekan í kvöld um að detta í leiðinda sálfræði 103 pakka fyrir leik FH og Vals í komandi umferð. Væntanlega hefur þetta verið að undirlagi Tóta trúðs, þjáfara KR. Tilgangurinn á víst að helga meðalið í þessum efnum en einhvern veginn hljómar þetta bara eins og skrípa læti í skólastofu og sorglegt að sjá þennan fyrrum leikmann Vals detta niður á þetta slor plan. Ef Valur vinnur þá getur Grétar tekið "sjáið hvað ég var klár" frasann og ef Valur tapar stigum þá er "djöfull vissi ég það" lumman í hinum vasanum. Trikk sem hefur verið gert milljón sinnum áður og ekkert lengur töff við svona bull.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 17. september 2009 00:41
 
Smábæjarblús
Höfundur: Valþór Druzin   
Laugardagur, 12. september 2009 19:50
Sjaldan hefur undirritaður heyrt annan eins barlóm og minnimáttarkenndarvæl eins og nú berst að austan, n.t.t. frá Selfossi vegna frétta þess efnis að Gunnlaugur Jónsson hefur ákveðið að stíga skref uppávið á sínum starfsferli og taka við þjálfun hins sögufrægaliðs Vals.

Yfirlýsingagleði leikmanna Selfoss ríður ekki við enteyming, og vanda þeir hvorki fráfarandi þjálfar sínum, né knattspyrnufélaginu Val kveðjurnar.tissue
Undirritaður gerir ráð fyrir því að þessi franskbrauð sem spila í Selfosstreyjunum, hljóti að sitja allir saman í félagsheimili Selfossbæjar og hamist við að skrifa lesendabréf í Morgunblaðið, milli þess sem þeir liggja á línunni í þjóðarsál Rásar 2, óvitandi að hún hefur verið lögð niður, enda berast fréttir oft seint í sveitina.

"Þetta er bara skítlegt"...
"...ég er mjög ósáttur við vinnubrögðin"
"...svo koma hrægammarnir úr Reykjavík og liggja á honum"
"Valur er alltaf skítaklúbbur í mínum huga eftir þetta"
"...ömurlegt, hvort sem það er hjá Val eða Gulla"
"...bara ömurlegt"
"...ömurlegt hjá Valsmönnum"

-- valdar tilvitnanir úr viðtölum við leikmenn Selfoss á Fótbolta.net


gulli_jons


Við hér á Valsarar.is viljum hinsvegar bjóða Gunnlaug velkominn á Hlíðarenda og vonum að hann nái að rífa liðið upp á næsta ári, og koma því á þann stall sem því ber. 

Velkominn Gulli, velkominn!


Eins vonum við að Selfyssingar jafni sig fljótt á þessu, og einbeiti sér að því sem þeir gera best; að pússa Hondurnar sínar.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 17. september 2009 00:31
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 4 af 13