• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Pælingar
Frjáls eins og fuglinn
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Föstudagur, 16. október 2009 12:25

frjalsi1



Þeir sem mætt hafa á handboltaleiki Vals í karla- og kvennaflokki hafa eflaust tekið eftir því að keppnisbúningar félagsins bera ekki neinar auglýsingar. Ef einhver var að vonast eftir að Valur væri að taka Barcelona á þetta og sleppa því að hafa aðalstyrktaraðila þá þarf sá draumur líklega að bíða um sinn.

Frjálsi fjárfestingabankinn sem auglýst hefur á öllum keppnistreyjum Vals frá árinu 2006 er hættur að styrkja félagið. Samkvæmt heimildum valsara.is hefur bankinn ekki borgað fyrir auglýsingar frá því í mars eða þegar Fjármálaeftirlitið yfirtók SPRON. Síðan þá hefur Frjálsa verið stjórnað af slitastjórn sem hefur það eitt að markmiði að hámarka eignir hans.

Samningur Vals við Frjálsa var gerður þegar góðærið var við það að ná háflóði eða í maí 2006. Í tilefni samningsins kom eftirfarandi fréttatilkynning á valur.is:

Tilvitnun hefst:

Frjálsi fjárfestingabankinn aðal styrktaraðili Vals
Frjálsi fjárfestingabankinn og Knattspyrnufélagið Valur hafa undirritað samning um að Frjálsi fjárfestingabankinn verður aðal styrktaraðili félagsins til næstu fimm ára. Mun vörumerki Frjálsa fjárfestingabankans prýða keppnistreyjur allra keppnisflokka Vals í knattspyrnu, handknattleik og körfuknattleik bæði meistaraflokka og yngri flokka karla og kvenna. Styrktarsamningurinn er að verðmæti rúmlega 50 milljónir króna og gerir Val kleift að halda úti enn öflugra starfi í harðri baráttu um titla á komandi leiktímabilum í meistaradeildum karla og kvenna. Jafnframt verður lögð enn ríkari áhersla á uppbyggingarstarf yngri flokka félagsins.

Kristinn Bjarnason framkvæmdastjóri Frjálsa fjárfestingabankans:
”Það er mikilvægt fyrir Frjálsa fjárfestingabankann að tengjast svo öflugu íþrótta og uppeldisstarfi sem Valur starfrækir. Við erum stolt af því að tengja nafn okkar fyrirtækis við þetta rótgróna félag. Frjálsi fjárfestingabankinn væntir mikils af þessu samstarfi.”

Grímur Sæmundsen formaður Vals:
”Fyrir Val er þetta ómetanlegur stuðningur. Við fáum nauðsynlegt fjármagn og ekki síður mikilvægan stuðning sem bein tenging við öflugt fyrirtæki veitir íþróttafélagi. Við munum sjá til þess að samningurinn nýtist báðum aðilum vel. Hjá Val eru miklir uppbyggingartímar framundan bæði í mannvirkjagerð og félagsstarfi”

Tilvitnun lýkur.

batur2



Kristinn Bjarnason fyrrverandi framkvæmdastjóri bankans var aðal maðurinn á bakvið samninginn en hann hætti störfum hjá Frjálsa í maí síðastliðnum.Ómetanlegur stuðningur sagði þáverandi formaður Vals, Grímur Sæmundsen, en samningurinn nam 10 milljónum króna á ári og því er ljóst að Valur er að missa stóran spón úr aski sínum.

Á aðalfundi Vals síðastliðið vor var greinilegt að kostnaðarliðir félagsins eru stórir og ófáir. Allar áhættufjárfestingar knattspyrnudeildar í kringum síðasta tímabili eiga það sameiginlegt að hafa skilað engu til baka en við þær bætast starfslokasamningar við Willum Þór og Helga Sigurðsson. Ekki verða neinar tekjur af þátttöku í Evrópukepnni til að brúa bilið og fátt bendir til að einhverjir Valsmenn séu að stökkva í atvinnumennsku á næstunni.

Stjórnenda á Hlíðarenda bíður því ærlegt verkefni að galdra fram álika upphæðir í reksturinn á næstunni ef ekki næst að skera hressilega niður en fleiri styrktaraðilar Vals hafa dregið saman seglin eða hreinlega farið á hliðina á undanförnum misserum.
eiga það sameignlegat að

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Föstudagur, 16. október 2009 13:39
 
Velkomnir
Höfundur: Valþór Druzin   
Fimmtudagur, 08. október 2009 14:09
Við á Valsarar.is viljum bjóða litla bróður úr Hafnafirði velkominn á Hlíðarenda á komandi tímabili, enda ljóst að krafa KSÍ / UEFA að hver einasti íþróttaklúbbur landsins (sem langflestir eru skítblankir) neyðist til þess byggja sér rándýra stúku til þess eins að fá að spila fótbolta í efstu deild er fáránleg á litla Íslandi, sérstaklega litla Íslandi kreppunnar.

welcome_mat


Vonum svo að það komi peningar í Valsbudduna með þessu.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 08. október 2009 14:35
 
Markamaskínan kveður
Höfundur: Valþór Druzin   
Mánudagur, 05. október 2009 20:54

Fyrir stuttu síðan barst sú tilkynning að gamla brýnið, markamaskínan Helgi Sigurðsson, sé hættur knattspyrnuiðkun með Val.

Knattspyrnufélagið Valur og leikmaður meistaraflokks karla í knattspyrnu, Helgi Sigurðsson hafa komist að samkomulagi um starfslok Helga Sigurðssonar hjá félaginu. 

Helgi hefur spilað þrjú ár á Hlíðarenda og á þeim tíma er hann markahæsti leikmaður félagsins. Helgi átti stóran þátt í Íslandsmeistaratitli félagsins árið 2007 og hefur í alla staði reynst frábær liðsmaður á Hlíðarenda. 

Knattspyrnufélagið Valur vill þakka Helga fyrir tímann á Hlíðarenda og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Við Valsarar.is viljum gefa manninum sem átti stóran þátt í því að færa okkur titilinn 2007, rafrænt klapp á bakið og þakka honum kærlega fyrir góðar stundir á Hlíðarenda. 
Án Helga hefði sennilega enginn Íslandsmeistaratitill náðst í hús fyrir 2 árum, enda var hann sennilega besti maður mótsins það árið.

Við á valsarar.is óskum Helga enfremur góðs gengis á nýjum stað.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Mánudagur, 05. október 2009 21:03
 
Hvað fannst þér um sumarið 2009
Höfundur: Valþór Druzin   
Miðvikudagur, 30. september 2009 19:36
Núna gefst stuðningsmönnum kostur á að gefa sitt álit á leikmönnum liðsins í sumar. Bestu / verstu, bjartasta / dimmasta vonin o.s.frv.
Gilt netfang er skilyrði fyrir þáttöku, en annars er könnunin nafnlaus.

Niðurstöður verða kynntar eftir rétta viku, go nuts !

No active form found

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 30. september 2009 19:49
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 3 af 13