|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Rétt um víti og fjölmiðla |
| Fimmtudagur, 26. júní 2008 10:57 | ||
|
Þetta var frekar klaufalegt hjá Barry og það var alltaf ljóst að KRistinn myndi nýta tækifærið ef það gæfist til að gefa FH víti í leiknum. Þetta væri ekki umdeilt víti ef um einsdæmi væri að ræða en því miður þá gerist þetta aftur og aftur hjá KRistni þegar hann dæmir leiki hjá okkur.
Ágætt væri ef hinir sívakandi íslensku fjölmiðlamenn myndu klippa saman helsta rugl KRistins á Vals leikjum. Gaman er að skoða framistöður Kristins á síðasta tímabili til nánari glöggvunar. Á Fram leiknum í fyrra gaf KRistinn Fram einmitt furðulega aukaspyrnu rétt fyrir utan teig á lokamínútunni sem leiddi til jöfnunarmarksins. Þegar hann dæmdi ÍA leikinn tók Gauji Þórðar hann á eintal í miðjum leik og eftir það dæmdi KRistinn eftir pöntunum Skagamanna. Gegn Fylki vorum við lélegir en KRistni tókst engu að síður að gefa Árbæingum umdeilda vítaspyrnu. Bikarleikinn við FH dæmdi KRistinn ágætlega. Að fara lengra aftur í tímann yrði bara til að æra óstöðugan.
Annað sem sumir fjölmiðlar mættu skoða er að fjalla álíka hlutlaust um uppistand FH-inga í stúkunni líkt og var gert um háðsglósurnar sem Hólmfríður Magnúsdóttir fékk á dögunum í leik Vals og KR. Fótbolti.fh hafði þetta um FH-ingana að segja: "Það skemmtilegasta við fyrri hálfleikinn voru slagsmál sem brutust út undir lok fyrri hálfleiksins, tveir stuðningsmenn FH ætluðu að kynda í stuðningsmönnum Vals sem tóku ekki vel í það og brutust út smávægileg slagsmál." Alltaf voða gaman þegar menn slást á fótboltaleikjum. Að minnsta kosti fyrir blaðamann fótbolta.net. Hér er svo frétt fótbolta.net um "Stóra fyllibyttumálið": http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=62635 Besservisserar (1)
![]()
KD
said:
|
|
... Er ég sá eini sem fannst gjammið í grínistanum Hjálmari Hjálmars í kallkerfinu óviðeigandi? Ég veit ekki með leikmenninna inni á vellinum en þessar sífeldu innkomur hjá honum og hvattningaröskur til sinna manna (Blika) truflaði mig a.m.k. Spurning hvort við ættum ekki að gera slíkt hið sama á næsta heimaleik. Fá Hemma Gunn og Audda Blö til að munda míkrafónana og vera með stanslaust grín í hátalarakerfinu allan leikinn? ps. Blikarnir áttu samt sigurinn skilinn, við vorum arfa slakir : ( |