|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Lögmál Murphy's |
| Höfundur: Ásgeir Tryggvason | ||||||||||||
| Föstudagur, 08. maí 2009 16:21 | ||||||||||||
|
Flestir sparkspekingar virðast sammála um það að Valsliðiði í sumar getur brugðið til beggja vona. Annað hvort verðum við að slást um dolluna við FH eða þá að liðið mun sigla lygnan sjó um miðja deild líkt og á síðasta tímabili. Valsarar.is skoðuðu stöðuna og fóru yfir liðið, lið fyrir lið. Mark Kjartan Sturluson var nokkuð óumdeildur sem aðalmarkvörður Vals þar til á síðasta tímabili. Eftir að hafa hlotið náð fyrir augum Ólafs Jóhannessonar landsliðsþjálfara komst Kjartan undir smásjá knattspyrnusérfræðinga landsins sem sáu honum ýmislegt til foráttu. Valsarar vita hvar þeir hafa haft Kjartan síðustu árin. Segja má að við séum búnir að gera ráð fyrir slökum markspyrnum eða einstaka stórmistökum á tímabili. Á móti höfum við haft jafnbesta markmann deildarinnar sem er löngu vaxinn upp úr einhverjum "cameru skutlum" sem svo mörgum íslenskum markvörðum eru tamar. Landsliðsvalið hafði þau áhrif að fjölmiðlar fóru að gera meira úr göllum Kjartans og bitnaði það á framistöðu hans með Val. Í ár fær Kjartan í fyrsta sinn samkeppni um stöðu sína frá því að hann kom til Vals. Haraldur Björnsson er 20 ára uppalinn Valsari sem er snúinn aftur á Hlíðarenda eftir veru hjá Hearts í Skotlandi. Líklega mun Kjartan byrja sem aðalmarkvörður en ljóst er að Haraldur, sem leikið hefur með öllum yngri landsliðum Íslands, mun anda grimmt ofan í hálsmál hans. Hvort sem Haraldur gerir byrjunarliðsstöðuna að sinni í sumar eða á næsta ári er óljóst en vonandi er þarna framtíðar markvörður Vals á ferðinni nema að atvinnumennskan knýji dyra á nýjan leik. Vörn ![]() Þetta er sennilega sá hluti liðsins sem er hvað sterkastur á pappírnum og varla að ástæðulausu að Kristján Hauksson var seldur aftur í flökkuklúbbinn Fram. Þeir helstu sem koma til greina í vörnina í sumar eru þeir Atli Sveinn Þórarinsson, Reynir Leósson, Guðmundur Viðar Mete, Bjarni Ólafur Eiríksson, Steinþór Gíslason og Einar Marteinsson. Atli Sveinn og Reynir hafa hvor um sig verið með fremstu miðvörðum íslensku deildarinnar síðustu árin og verða teljast líklegir í byrjunarliðið. Það einkennir þá báða að yfirleitt þurfa þeir sterkan félaga sér við hlið. Reynir var til að mynda lítt áberandi með Fram árið 2007 en eftir að Auðun Helgason gekk til liðs við Flakkarana líktist hann mun meira þeim leikmanni sem lék með Gulla Jóns hjá ÍA á sínum tíma. Atli naut góðs af því að hafa Barry Smith með sér síðustu þrjú tímabil en virkaði aftur á móti ekki eins afgerandi þegar t.d. Valur Fannar var í vörninni fyrri hluta móts árið 2006. Ef þessir tveir ná að smella saman munu þeir mynda sterkasta miðvarðapar deildarinnar og má gera ráð fyrir að Valur geti orðið það lið sem fær á sig fæst mörk í sumar. Kaupin á Guðmundi Viðar Mete voru dáldið sérstök þar sem að Valur var þegar kominn með Reyni til sín og með gott úrval af varnarmönnum. Hann mun án efa setja pressu á Atla og Reyni nái hann að halda sér heilum en einnig gæti hann nýst sem djúpur miðjumaður. Mete hefur löngum verið þekktur fyrir að vera harður í horn að taka og mun það krydda leiki okkar við KR enn frekar ef hann fær tækifæri til að kljást við góðkunningja sinn frá Akranesi, Bjarna Guðjónsson. Spennandi verður að sjá hvort að Steinþór Gíslason nái sér á strik á nýjan leik eftir að hafa verið fjarverandi meira og minna síðustu tvö tímabil. Steinþór er einstaklega trautstur bakvörður sem gerir hlutina á einfaldan og öruggan hátt og ákaflega fá mistök. Helsta ástæðan fyrir hversu lítið hans var saknað var frábær frammistaða Birkis Más í bakvarðarstöðunni. Endurkoma Steinþórs gæti vel orðið á við kaup á topp leikmanni. Bjarni Ólafur hefur staðið sig vel alla jafna með Val en ekki endilega virkað jafn öruggur með landsliðinu. Nái hann að vera í sæmilegu formi munu margar sóknir andstæðinga okkar brotna á honum. Verði hann í virkilega góðu formi má búast við áframhaldandi veru í landsliðinu og hver veit nema að atvinnumennskan bíði handan við hornið. Einar Marteinsson sýndi á síðasta tímabili að þar er efnilegur leikmaður á ferð og mun hann sjálfsagt fá næg tækifæri í sumar enda 24 leikir á dagskránni. Miðja Talsverðar breytingar hafa verið á miðjumönnum Vals nú í vetur. Af þeim sem enn eru hjá félaginu var það helst Sigurbjörn Hreiðarsson sem lék vel á síðasta tímabili. Baldur Bett var ekki eins öflugur og 2007, Hafþór Ægir náði ekki að bæta sinn leik neitt af ráði og Baldur Aðalsteins var meira og minna meiddur. Ian Jeffs er ætlað að fylla skarð Pálma Rafns en segja má að hann sé að svipuðum styrkleika og svo margir íslenskir leikmenn sem hafa komist í atvinnumennsku til Skandinavíu en Englendingurinn lék með Örebro um tíma eftir að hafa verið hjá ÍBV. Ferill hans hjá Fylki var ekki þess legur að hann næði að spila sig í atvinnumennsku á nýjan leik en engu að síður hefur Jeffs burði til að vera með betri skapandi miðjumönnum deildarinnar. Endurkoma Baldurs Aðalsteinssonar er liðinu einna mikilvægust en árangur Vals titilárin 2005 og 2007 hélst í hendur við hvort hann gat leikið á fullri getu. Sókn Helgi Sig og Marel Baldvinsson eru augljóslega stóru nöfnin í framlínunni. Báðir hafa verið að glíma við meiðsli og nokkuð ljóst að hvorugur þeirra mun ná að einoka aðra framherjastöðuna. Eftir standa Viktor Unnar Illugason, Pétur Markan og Albert Ingason. Flestir Valsarar bíða þess með óþreyju að Albert feti í fótsport annara fjölskyldumeðlima og blómstri í Valssókninni líkt og hann á kyn til. Viktor er teknískur leikmaður en virðist þurfa að vinna sér inn aukið sjálfstraust ætli hann sér að komast í atvinnumennsku á nýjan leik. Síðast en ekki síðst skal nefna Ólaf Pál Snorrason. Ólafur kom aðeins við sögu hjá Val fyrir tæpum 10 árum áður en hann hélt til unglingaliðs Bolton Wanderers. Ferill hans á Íslandi er búinn að vera frekar kaflaskiptur síðan. Hann féll í skuggan hjá Fylki en átti svo stórgott tímabil með FH áður en hann féll aftur í skuggan þar þangað til að hann reif sig upp með Fjölni. Kannski að ný áskorun komi hjólunum af stað hjá honum á nýjan leik en Valur þarf sannarlega á mönnum að halda sem geta sprengt upp varnir andstæðinganna. X-factorinn ![]() Mikið er gert úr hinum klisjukennda X-factor hjá liðum fyrir Íslandsmót. Til að Valsarar.is dýfi fætinum í þann fúla pytt má nefna að helsti X-factor Valsliðsins er sá hversu margir X-factorarnir eru núna rétt fyrir mót. Mun Kjartan halda stöðu sinni? Munu Atli Sveinn og Reynir ná saman? Verður eitthvað bit í miðjunni? Hverjir verða sóknar – parið/tríóið? Klárast hugmyndabanki Willums eins og hjá KR og Þrótti? Það er því eins gott að örlög Valsliðsins verði ekki sett undir hæl Lögmáls Murphy’s : "Ef eitthvað getur farið úrskeiðis, mun það gera það." Við minnum á póstfangið valsarar.is(hjá)gmail.com vilji lesendur skrifa greinar á síðuna. Ekki er krafist innskráningar til að gefa greinum athugasemdir. Besservisserar (7)
![]()
Ingvi
said:
|
|
... Það er augljóst að liðið þarf að stilla sig aðeins betur saman, vona bara að það gerist sem fyrst. Annars sá ég fullt af jákvæðum punktum þrátt fyrir mikið af neikvæðum punktum. Það eru hinsvegar klassa leikmenn í þessu liði og ef þeir ná að vinna sem ein heild þá verður glatt á Hlíðarenda |
|
... Willum er í sömu leikaðferð og í fyrra sem var fullreynd þá. Valur Fannar segir (með réttu) að við séum með dýrasta lið Íslandssögunnar og þetta er uppskeran! Það er ekki pláss fyrir annað svona tímabil hjá Val þegar við erum með rándýrt lið. |
|
... að þetta séi dýrasta lið íslandssögunar er fásinna. vitum allir hvernig endaði hjá Val Fannari þegar að hann fór til fylkis og greyið er bitur.... |
|
... Efast um að þetta sé dýrara lið en KR-liðin og FH-liðin í gegnum tíðina. Held að Valur Fannar hafi bara tekið svona til orða vegna þess að vissulega er Valsliðið töluvert mikið dýrara en Fylkisliðið. Það gengur ekki að hafa einn sóknarmann ef að miðjan er virkilega svona léleg. Ég held að ég hafi talið eitt ágætisfæri sem skapaðist eftir sendingu frá sóknartengiliða, þá gaf Óli Palli stungu inn á Viktor sem fór illa með færið. Baldur Ingimar verður að hrökklast í gang, algjört lykilatriði. Alveg greinilegt að liðið saknar sérlega Birki Má og Pálma. Síðan hljóta allir sem sáu leikinn að setja spurningamerki við Kjartan í markinu. Var ekki komin alvöru samkeppni um markmannsstöðuna með því að fá Harald? Mete var reyndar að standa sig framar vonum og Reynir Leós virtist þokkalega traustur. Gaman að sjá hvernig Willum stillir upp fyrir Fjölnisleikinn á fimmtudag. |
|
... Valsliðið í ár er ódýrara enn í fyrra. Það skal enginn segja mér að liðið í ár sé dýrara en KR, Keflavík og FH. Valur Fannar sem er ekkert annað en sóði en vill samt sem áður láta kalla sig leikmann veit hreinlega ekkert um þetta mál og er algjörlega ömurlegt af honum að halda þessu fram. Það væri gaman ef hann sjálfur myndi nú koma fram og segja af hverju hann yfirgaf Val. Burtséð frá þessu þá var leikur okkar mann ekki nægilega góður þó svo að við fengjum tvö frábær tækifæri til að skora. Nú er ekkert annað hægt en að standa saman, stöndum þétt við bakið á okkar liði og hættum þessu bulli! |
|
... Valur Fannar náttúrulega yfirgaf Valsliðið því hann hreinlega komst ekki í liðið. Var ekki nógu góður. Er sennilega enn leiður yfir því. Skil ekki hvað menn eru að tala um að Mete hafi verið flottur í þessum leik. Mér fannst hann ekki geta blautan. |