• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Leifur óheppni?
Mánudagur, 19. maí 2008 09:26
Image
Fylkismenn eru andstæðingar okkar Valsara í kvöld. Árbæingar hafa byrjað mótið á versta mögulega hátt og tapað báðum sínum leikjum, fyrst gegn Fram á heimavelli og síðan Keflavík suður með sjó. Segja má að félagið hafi verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið og það ekki af eftirsóknarverðum ástæðum. Mikill og hávær kvittur hefur verið um slæma fjárhagsstöðu klúbbsins og jafnvel þó að hér kunni að vera um storm í vatnsglasi að ræða þá er það samt ergilegt fyrir forráðamenn liðins að standa í  að neita slíku.

 

 

 

Í kjölfar tapleikja Fylkis nú í byrjun móts hefur þjálfarinn Leifur Garðarsson farið mikinn í viðtölum. Eftir Keflavíkurleikinn var Leifur öskuvondur yfir að fá gult spjald frá dómara leiksins og talaði meðal annars um að kvöldið áður hafi hann farið á leik og þar var þjálfari sem hoppaði og skoppaði athugasemdarlaust um hliðarlínuna. Það var einn leikur á dagsskrá það kvöld og þó Leifur hafi ekki þorað að segja það berum orðum þá er það ekki sama hvort um er að ræða Jón eða, í þessu tilfelli, séra Willum.

 

 

 

Ljóst er Fylkismenn hafa sett sér háleit markmið síðustu árin en árangurinn hefur látið á sér standa. Leikmenn eins og Valur Fannar, Guðni Rúnar, Haukur Ingi, Peter Gravesen, David Hannah, Alan Dyring og Jóhann Þórhallsson eru síður en svo ódýrir á fóðrum en um leið hefur þeim mistekist að setja mark sitt á deildina með afgerandi hætti.

 

 

 

Þrátt fyrir mörg kunnuleg nöfn í leikmannahóp Fylkis hefur alltaf vantað einhvern neista upp á að félagið hafi náð að springa út. Kannski er um að kenna lítilli þolinmæði stjórnarmanna eða kannski hafa Fylkismenn bara verið einstaklega óheppnir í vali sínu á þjálfurum og aðkomumönnum.

 

 

 

Ef farið er yfir þjálfaralista Fylkis frá því að liðið kom upp árið 1999 er margt þess vert að skoða nánar. Ólafur Þórðarsson ákvað að víkja sæti til að taka við ÍA og eftirmaður hans Bjarni Jóhannsson leiddi liðið í toppbaráttuna á sínu fyrsta ári. Bjarni klúðraði síðan Íslandsmótinu 2001 á ævintýralegan hátt en varð bikarmeistari um haustið. Fylkismenn voru ósáttir við uppskeruna og við tók Akurnesingurinn Aðalsteinn Víglundsson.

 

 

 

Skagamaðurinn lék nánast sama leik og Bjarni. Tók bikarinn um haustið en mátti horfa á eftir Íslandsbikarnum með þyrlu yfir Faxaflóann viku áður. Aðalsteinn fékk að vísu annað tímabil en þá endaði Fylkir um miðja deild. Þolinmæði stjórnarmanna brast og Þorlákur Árnason var ráðinn eftir að hafa fallið með Val um deild. Láki entist tvö tímabil í Árbænum og náði þar miðlungsárangri en Fylkismenn töldu sig hafa átt að gera betur og því fékk gamli Valsarinn að taka poka sinn.

 

 

 

Árið 2006 var komið að Leifi Garðarssyni. Ýmsir vildu eigna honum heiðurinn að tveimur Íslandsmeistaratitlum FH og héldu fram að í raun væri körfuboltadómarinn Leifur heilinn á bakvið FH veldið en ekki sólpalla-smiðurinn Ólafur Jóhannesson. Á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari sýndi Leifur þó enga meistaratakta. Ef ekki hefði verið fyrir sigur FH á Grindavík í 18. umferð árið 2006 hefði Leifur fallið með sitt stjörnuprýdda Fylkislið.

 

 

 

Stjórnarmenn Fylkis sýndu í kjölfarið áfram sama stöðugleika að einu leyti. Þjálfari liðsins virðist alltaf fá fríspil fyrsta árið og Leifur fékk að sitja áfram við kjötkatlana. Fylkisliðið bætti sig talsvert í fyrra, enda ekki úr háum söðli að detta. Félagið komst upp í miðja deild, var laust við fallbaráttu allt tímabilið og komst í undanúrslit Visa bikarkeppninnar. Flestir reiknuðu með sigri Fylkis gegn nágrönnum sínum úr Fjölni. Leifur, sem jafnframt þjálfun er skólastjóri við Áslandsskóla í Hafnarfirði, féll hins vegar á prófinu þegar til kom og missti því af gullnu tækifæri til að sýna og sanna hæfileika sína gegn sínu gamla félagi FH.

 

 

 

Náist ekki betri árangur í ár en í fyrra má búast við að kunnulegt hljóð komi í strokk Árbæjinga. Viðtöl við Leif eftir fyrstu leiki benda til að hann sé undir miklum þrýstingi og líklega eru Íslandsmeistararnir ekki drauma andstæðingar í slíkri stöðu.

 

 

 

Auðvitað má velta því upp hversu heppilegt það er fyrir okkur Valsara að mæta Fylki á slíkum tímapunkti. Valsliðið kom til leiks á Íslandsmótið með höfuðið lengst upp í skýjum en fékk síðan magalendingu í Keflavík. Eftir 3-0 burst á Grindvíkingum er vonandi að okkar menn séu komnir á rétt flug og mæti með vel stilltu hugarfari til leiks því Fylkismenn gætu orðið nokkuð óútreiknanlegir eftir slaka byrjun.

 

Digg    Facebook   
Besservisserar (9)add comment

VMV said:

...
Sá hvorugan tapleikinn en get ekki sagt að ég hafi verið yfir mig hrifinn af frammistöðunni á móti Grindavík. Í raun voru það bara Pálmi og Bjarni sem stóðu undir væntingum þá. Baldur Bett olli mér mestu vonbrigðunum og skv því sem ég sá í sjónvarpinu átti hann stóran þátt í fyrra marki Fylkismanna.
Skrítið með Halldór Hilmisson, hann skorar alltaf á móti Val.
09:21 | 20 maí | 2008

Fótboltaáhugamaður said:

...
Fer að styttast í ferli Willums hjá Val? Maður hefur nú séð menn látna taka pokann sinn fyrir svona frammistöðu.
09:57 | 20 maí | 2008

SV said:

...
Róóólegur !?!?! Óþarfi að byrja að tína í pokann hans Willum um leið og ekki gengur eins og skildi. Það vantar bara of marga og smá lýsi í hópinn hjá okkur eins og er en ég hef fulla trú á þessu ennþá. Kætist bara yfir CL dollu á morgun hjá Utd í staðinn : )
10:23 | 20 maí | 2008

Tryggvi said:

...
Willum ásamt stjórninni er búinn að lyfta Grettistaki hjá Val og það þarf töluvert meira en slaka byrjun til að hann taki pokann sinn. Við Valsmenn erum í nýrri stöðu þetta mót. Við þurfum að verja titil og í fyrsta sinn eru andstæðingarinir farnir að taka okkur alvarlega áður en mótið hefst. Þetta er eitthvað sem Willum hlýtur að tækla fyrir næstu leiki.
10:25 | 20 maí | 2008 | url

FH said:

...
frábært hjá ykkur á www.valsarar.is að drulla yfir þjálfara Fylkis á síðunni ykkar í gær. sá tók ykkur í nefið í gærkveldi.
11:15 | 20 maí | 2008

Greg said:

...
Rétt sem VMV bendir á, Halldór hefur verið duglegur að setja hann á móti okkur síðan hann fór, hefðum átt að vera löngu búnir að endurheimta drenginn.

Tek þó heilshugar undir grein Valsara í gær um Leif, leiðinlegri þjálfari er vandfundinn.
12:17 | 20 maí | 2008

Jónas Vilhelmsson said:

...
Betra liðið vann í gær...Willum á að vera áfram því hann er góður,,, vill ekki sjá einhverjar KR lausnir hjá okkur....
13:12 | 20 maí | 2008

Fótboltaáhugamaður said:

...
Tilvitnun í Greg: ,,Tek þó heilshugar undir grein Valsara í gær um Leif, leiðinlegri þjálfari er vandfundinn."

Jú það er allavega einn leiðinlegri og reyndar ómerkilegri og hann þjálfar á Skaganum þessi misserin.
14:33 | 20 maí | 2008

Guðmundur Albertsson said:

...
Veit nú ekki með vinsældakosningar hjá þessum þjálfurum - Leifur er auðvitað frekar dapur, Gauji Þórðar er hinsvegar frábær karakter og gefur þessu soldið líf.

En að menn séu að tuða eitthvað yfir Willum er mér óskiljanlegt - hvaða upphlaup eru þetta - okkur vantar lykilmenn og þetta kemur allt saman. Nú tökum við okkur bara saman í andlitinu og tökum á móti þessum úthverfasamtíning úr Fjölni, félag væntanlega stofnað af gömlum KRingum, Völsurum og Frömurum sem voru of latir og metnaðarlausir til að keyra í bæinn á leiki. Það er bara vonandi félagsins vegna að þeir flytji ekki aftur.
17:20 | 20 maí | 2008 | url

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Föstudagur, 08. ágúst 2008 09:56