• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Langbesta lið frá Reykjavík !
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 18. september 2008 15:09
Þó ljóst sé að Valsmenn verði ekki í slagnum um Íslandsmeistaratitilinn þetta árið, er þó ennþá að einhverju að keppa, ekki síst því að ná að sýna og sanna hversvegna liðið er ríkjandi Íslandsmeistari næstu vikurnar.
Þriðja sætið í deildinni gefur Evrópusæti á næsta ári, og gerir það að verkum að Valsmenn geta stoltir sagst eiga besta lið Reykjavíkur árið 2008.

Í kvöld mæta Þróttarar niðrá Hlíðarenda (á vægast sagt einkennilegum tíma reyndar), til að reyna sig gegn okkar mönnum.
Á meðan Þróttur vann ÍA sannfærandi í síðastu umferð, lágu Valsmenn kylliflatir gegn Fimleikafélagi Hafnarfjarðar, og er því vonandi að liðsmenn komi ákveðnir til leiks til að bæta fyrir Hafnarfjarðarfýluferðina.
Reyndar var sigur Þróttara sá fyrsti í 1 og 1/2 mánuð þannig að ekki er nú beint hægt að segja að gengi Þróttara hafi verið uppá marga fiska í sumar.
Liðið situr þó í 9unda sæti deildarinnar, og sleikir botninn, þó það sé reyndar öruggt með sæti í deild þeirra bestu næsta sumar.
Það breytir þó ekki þeirri staðreynd, að síðast þegar Valsmenn mættu Þrótturum, tóku þeir þá í kennslustund á þeirra eigin heimavelli, og því hlýtur það að geta talist nokkuð raunhæf krafa að áframhaldandi skólun fari fram að loknum þessum frímínútum sem liðið hafa á milli leikja liðanna. Sigur er því markmið sem ætti að vera meira en raunhæft, og þó að dramb kunni vera það sama og fall, er að ýmsu að keppa fyrir okkur Valsmenn, en Þróttarar hafa lítið að vinna að sama skapi.

Það er þó ekki hægt að sleppa því að minna stuðningsmenn Vals á að láta sjá sig á heimaslóðum, og jafnvel kurteisislega óska eftir því að þeir láti í sér heyra. Lífsmark í stúkunni hefur verið með minnsta móti að undanförnu, enda eru sennilega margir svekktir yfir því að hafa misst af titillestinni þetta árið.
Við skulum samt ekki gleyma því, að undir stjórn Willums síðustu ár hafa Valsmenn verið að sýna þann mesta stöðugleika og frammistöðu sem sést hefur á Hlíðarenda síðustu áratugina. Ef 2 stórir titlar og lúkning móts í efstu 3 sætum deildarinnar er ekki gríðargóður árangur, þá þurfa menn eitthvað að íhuga sitt gildismat er varðar árangur.
Nú eru bara 2 3 leikir eftir af tímabilinu, allir gegn Reykjavíkurliðum og báðir 2 þeirra heima og báðir gegn Reykjavíkurliðum. Það þýðir ekkert annað en að enda mótið með stæl á móti bæði Þrótti, Fram og KR, og sýna það að Valur er með besta lið Reykjavíkur í ár. Það þýðir ekkert taut og raul, bara áfram Valur og ekkert bull.

Digg    Facebook   
Besservisserar (7)add comment

Gastone said:

...
Þakka þér fyrir hlý orð í minn garð smilies/smiley.gif Maður var beðinn um að taka micinn á síðustu stundu þar sem aðalkynnir Vals forfallaðist eins og stundum gerist..

Að reyna peppa upp mannskapinn í stúkunni í hátalarakerfinu glymur á annsi mörgum leikjum í Landsbankadeildinni.. Enda fannst mér þetta svín virka.... hehehe

bestu kv Gastone
20:27 | 20 september | 2008

Ási Sveinss said:

...
Talandi um Trúð! Markmaður þróttara fékk gult spjald og kastaði svo vatnsflösku í Magnús sem var þó ekki með stærri hreðjar en það að hann lét það yfir sig ganga.... Markmaður þróttara á þó von á löngu banni og himinnhárri sekt eða hitt og heldur en hann braut plexigler yfir leikmannainnganginum á leið sinni í búningsherbergin...Spurning hvort að það hafi fylgt í skýrslunni en við fyrstu athugun virtist Magnús ekki veita því athygli. Spurning hvort að hann og herra Hjaltalín sem dæmdi bikarúrslitaleikinn í dag séu bræður....jafnvel hvort að foreldrar séu systkini!!
21:54 | 20 september | 2008

Pétur said:

...
Ég eiginlega botna bara ekkert í þessari fréttamennsku hjá þér, Tryggvi Jónsson. Þú talar um trúða í leiknum en mér finnst þú nú kóróna allt með þessum skrifum þínum, þú ert eini sanni trúðurinn hérna!!! Svo finnst mér ansi lélegt af þér að standa ekki með eigin liði í EINU OG ÖLLU. Menn sem að eru að skrifa inn á svona síður, skrifa ekki um lélega frammistöðu vallarþular á eigin heimavelli, hvers konar Valsari ertu þú??? Svo verður þessi tíska hjá ykkur á skíta yfir dómarana að fara taka enda, dómarinn í þessum leik átti ekkert sérstakan dag, en þetta er orðið nokkuð þreytt. Kristinn Jakobsson er afbragðs dómari og er það ekki KSÍ sem að velur dómara fyrir FIFA, það er því ekki bara KSÍ sem að telur hann vera góðan....... en mér finnst þó verst að öllu að hafa lesið þennan pistil og velt því fyrir mér hvort að stuðningsmaður Vals hafi skrifað þetta eða einhver annar.

Endurskoðaðu þinn gang, Tryggvi!!!!!!!
00:56 | 21 september | 2008

Guðmundur Albertsson said:

...
Mér finnst nú pistillinn ágætur, og frábært framtak að fá þessa síðu valsarar.is - Sé nú ekki betur af því sem komið hefur á síðuna að menn standi með Val í EINU OG ÖLLU, annars væru menn ekki að basla við þetta. Auðvitað er allt í lagi að gagnrýna vissa þætti starfsins, það er bara til þess fallið að menn bæti úr.

Hvað varðar okkar "tísku að drulla yfir dómarana", þá finnst mér það miður - en vandamálið er einfaldlega ekki okkar heldur KSÍ, við Valsmenn erum einfaldlega að reyna að fá faglega umfjöllun um þetta, líkt og Willum hefur bent á. En sú umfjöllun hefur aldrei komið. En að nefna KRistinn Jakobsson sem besta dómara landsins segir auðvitað allt sem segja þarf.
10:50 | 21 september | 2008

Ási Sveinss said:

...
Bíddu nú við, er verið að segja mér það að það megi ekki gagnrýna neitt sem að gerist á Hlíðarenda?? Hélt að þetta væri nákvæmlega vettvangurinn fyrir það...Hlutlaus Valssíða....Svo er það nú bara þannig að KRistinn Jakobsson skapar yfirleitt fyrirsagnir þegar að hann dæmir hjá Val, gegn okkur þá...
13:36 | 21 september | 2008

Valþór said:

...
Rosalega er ég sammála Ása. Það kann ekki góðri lukku að stýra ef gagnrýni má ekki lengur heyrast á Hlíðarenda.
13:59 | 21 september | 2008

Ásgeir said:

...
Mér finnst þetta ansi fáránlegt komment hjá þér Pétur. Talar um að standa með sínu liði í einu og öllu. Þú ert sem sagt að óska eftir gagnrýnislausum hallelújakór og já-mönnum. Það hljómar voðalega spennandi. Þú spyrð svo hvernig Valsari þetta sé sem skrifaði pistilinn, ætli að þetta sé ekki bara Valsari sem hafi skoðun á Val og sé ekki alveg sama um hlutina. Svo virðist sem þú, Pétur, hafir ekki skoðun á Val og sé alveg sama.
Endurskoða þú þinn gang, Pétur.
22:00 | 21 september | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Mánudagur, 22. september 2008 01:31