• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Kópavogskrúttin
Föstudagur, 30. maí 2008 16:37
Image

 

HK var barnastjarna síðasta sumars. Uppsteit gegn stóra bróður úr Breiðablik, sjálftaka á “stórveldis” tigninni og ódauðleg orð Jóns Þorgríms Stefánssonar um að “hjartað væri þyngra en veskið” fengu alla, nema fúllynda KR-inga, til að hrífast með þessu unga félagi sem var að stíga sín fyrstu spor í úrvalsdeild. Vandamál barnastjarna er hins vegar að þær brenna mjög fljótt út. Eitt árið eru þær það allra sætasta sem sést hefur en áður en nokkur veit af eru allir komnir með leið á þeim. Þær fá meira að segja leið á sjálfum sér og skyndilega fer veskið að vega meira en hið einlæga barnshjarta.

 


 

Nú þegar Fjölnir úr Grafarvogi er orðið litla uppáhaldið hjá fjölmiðlum má segja að HK hafi misst athyglina sem þeir höfðu á síðasta tímabili. Jón Þorgrímur sem bar liðið nánast á herðum sínum síðasta tímabil söðlaði um fyrir sumarið og fór yfir í Fram. Liðið hefur ekki styrkt sig verulega fyrir þetta tímabil, Gunnleifur markmaður er ekki lengur falin neðrideilda hetja og önnur nöfn í leikmannahópnum eru lítt þekkt utan Hjallahverfisins í Kópavogi.

 

 

 

Knattspyrnudeild HK er ung að árum en hún varð til úr leifum Íþróttafélags Kópavogs, ÍK, árið 1992. Uppgangur knattspyrnunnar innan HK hefur því verið mjög hraður. Árið 1998 var félagið komið upp í 1. deild en féll árið eftir í 2. deild. Aftur féll liðið árið 2000, þá í 3. deildina en sumarið 2001 fóru gæfuhjólin að snúast á sveif með HK-mönnum.


 

Image


 

HK komst upp í 2. deild þetta sumar og í kjölfarið hélt Gunnleifur Gunnleifsson aftur á æskuslóðirnar þrátt fyrir að lið í efrideildum hefðu mikinn áhuga á að nýta krafta hans. Einnig var fyrrum leikmaður Vals, Hörður Már Magnússon, kominn aftur í heimahagana. Árið 2002 fór liðið aftur upp um deild og á sportbarnum í Engihjalla létu hörðustu HK-menn sig dreyma um heimkomu Jóns Þorgríms og jafnvel Helga Kolviðssonar.  

 

 

 

HK náði upp góðri bikarstemmningu 2004 og 2005. Fyrra árið sló liðið m.a.út Skagamenn undir stjórn Óla Þórðar og komst í undanúrslit eftir að hafa slegið út Valslið Njáls Eiðssonar. Seinna árið gerði HK sér lítið fyrir og sló út ríkjandi bikarmeistara Keflavíkur en féll út í 8-liða úrslitum fyrir Fylki. 

 

 

 

Árið 2006 komst HK í efstudeild í fyrsta sinn og tryggði sér áframhaldandi veru þegar liðið bjargaði sér frá falli á kostnað nágranna sinna í Víking. Flestir sem hlutlausir voru gátu glaðst með hinu unga Kópavogsliði en samúðin með Víking var lítil, þrátt fyrir að gamla Hæðargarðsfélagið þyrfti að spila í 1. deild á 100 ára afmæli sínu.


 


Image


 

 

Síðustu ár hefur Kópavogur verið það bæjarfélag sem vaxið hefur hvað hraðast. Ný hverfi eru að byggjast upp innan bæjarmarkanna og framtíðarmöguleikarnir eru þar af leiðandi miklir. Það hlýtur því að vera sérstaklega mikilvægt fyrir HK að ná styrkri fótfestu á komandi árum sem öflugt félag ætli þeir sér ekki að láta Blika sölsa undir sig hinar nýju byggðir.

 

 

 

Stækkunarmöguleikar HK gætu jafnvel verið mun meiri en margir utan Kópavogs gera sér grein fyrir. Það er því aldrei að vita nema að HK nái að komast yfir hugsanlegar barnastjörnu-geðflækjur eða átök við stóra bróður og vaxi upp í að verða það stórveldi sem stuðningsmennirnir láta sig dreyma um að verða.


 Image

 

Ákveðin meistarheppni fylgdi sigri okkar manna gegn Fjölni í síðustu umferð. Einir fimm leikmenn Vals voru í landsliðshópnum gegn Wales nú í vikunni, þar af fjórir í byrjunarliði, en Bjarni Ólafur lék ekki með vegna meiðsla. Vissulega er þetta mikill heiður fyrir þessa Valsara sem og Val enda langt síðan að félagið hefur haft á að skipa jafn mörgum frambærilegum leikmönnum. Á móti kemur að það hjálpar okkur lítið í deildarkeppninni og yrði það ansi blóðugt ef þetta kæmi niður á þrótti lykilmanna í leikjunum framundan.

 

 

 

 

 


 

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Föstudagur, 30. maí 2008 17:43