• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Jafntefli í Eyjum
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Laugardagur, 29. ágúst 2009 18:07
Valur náði jafntefli gegn ÍBV í dag þegar liðið mætti á Hásteinsvöll í dag. Ekki er hægt að segja að væntingarnar hafi verið  miklar miðað við gengið það sem af er þannig að stig á erfiðum útivelli er viss árangur, sérstaklega þar sem fyrirliðinn Bjarni Ólafur uppskar rautt spjald á 70. mínútu. Guðmundur Mete hlaut síðan gult spjald á lokamínútunum fyrir leiktöf samkvæmt textalýsingu Mbl.is en það voru víst Eyjamenn sem lögðu meira kapp á sigur í leiknum. Ljóst er að 10 af 11 andstæðingum hafa tekið stig af Valsliðinu í sumar. Makalaus tölfræði hjá liði sem ætlaði sér að vera í toppbaráttu þetta tímabilið en þetta er svo sem lýsandi fyrir allt annað.

Valsarar.is bíða eftir að hreinsunardeildin taki til starfa nú á komandi hausti enda orðið ljóst að svipað byrjunarlið er ekki boðlegt á næsta tímabili. Því miður hefur Atli Eðvaldsson ekki tekið af skarið í þessum efnum eftir að ljóst var að þetta Íslandsmót yrði hvorki fugl né fiskur. Á móti kemur þá þjónar það litlum tilgangi að henda efnilegum leikmönnum inn í byrjarnlið í þessu umhverfi þar sem andrúmsloftið virðist ekki upp á það besta. Ef eitthvað jákvætt er hægt að segja í dag að þá er varamannabekkurinn í það minsta mun meira spennandi en byrjunarliðið en tréverkið í dag skipuðu eftirfarandi:

Guðmundur Viðar Mete 2
alt
Einar Marteinsson 12
alt
Arnar Sveinn Geirsson 18
alt
Viktor Unnar Illugason 19
alt
Haraldur Björnsson 23
alt
Eðvarð Börkur Óttharsson 24
alt
Þórir Guðjónsson 27

Auk þessara þá var Guðmundur Steinn Hafsteinsson í byrjunarliði. Stuðningsmenn Vals binda eflaust miklar vonir við þessa leikmenn á komandi árum en aðstæður verða auðvitað að vera réttar til að þeir geti blómstrað á Hlíðarenda. Kynslóðaskipti eru óumflýjanleg og vonandi bera stjórnendur Vals gæfu til  að gera almennilegt lið úr þessum hópi á næstu árum.

Digg    Facebook   
Besservisserar (10)add comment

Skuggi said:

...
KR vann okkur í bikarnum en er ekki búið að taka stig af okkur í sumar smilies/wink.gif
19:28 | 29 ágúst | 2009

Skuggi said:

...
P.S. Mér finnst að allir þessir sem voru á bekknum eigi að spila síðustu leikina ef það er pláss i liðinu fyrir mönnum með klásúlur um að þeir verði að vera í byrjunarliðinu!
19:29 | 29 ágúst | 2009

Romario said:

...
Góðan daginn hvaða djók var þetta rauða spjald á Bjarna? Eyjamaðurinn er rétt fyrir utan vítateig inn á eigin vallarhelming þegar brotið á sér stað og Maggi Þóris rífur upp rautt spjald. Jújú þetta var sniðglíma á lofti hjá Bjarna en ALDREI beint rautt. Það er rautt fyrir að strauja menn sem eru að komast í dauðafæri og enginn varnarmaður fyrir innan en þetta er helvíti hart fyrir svona brot.
20:26 | 29 ágúst | 2009

Bjössi said:

...
Bindum við miklar vonir við Mete á komandi árum??? smilies/grin.gifsmilies/grin.gifsmilies/grin.gif
20:39 | 29 ágúst | 2009

Tryggvi Jóns said:

...
Ekki gleyma að Mete getur spilað "djúpan miðjumann og gert það vel" smilies/wink.gifsmilies/wink.gif
22:04 | 29 ágúst | 2009 | url

Bollo said:

...
Afsakið fáfræði mína en þýðir djúpur hægur og lélegur?
04:47 | 30 ágúst | 2009

Bjössi said:

...
Tryggvi: Ég hélt ég yrði ekki eldri þegar ég las þetta comment um Mete frá Berki á spjallinu. Til hvers vorum við að fá þennan leikmann? Hefði frekar vijað sjá Einar Marteinss fá stærra hlutverk í sumar.
15:36 | 30 ágúst | 2009

Steini said:

...
Ég veit að ég er ekki einn um að finnast innkoma tvíburanna í þetta Valslið stórfurðuleg en það er eins og að jörðin hafi gleypt þá. Eru þeir örugglega en þá í Val?
16:52 | 30 ágúst | 2009 | url

Tryggvi Jóns said:

...
Ágætis punktur Steini. Þeir hafa hvorugir verið heilir á sama tíma og voru ekki á leikskýrslu í síðustu tveimur leikjum.
Eflaust voru menn í góðri trú og töldu menn sig vera að styrkja liðið þegar þeir og Mete voru fengnir. Ég var t.a.m. mjög jákvæður í þeirra garð og vonaðist eftir betra spili hjá Valsliðinu. Svona kaup verða bara samt eitthvað svo pínleg þegar ekkert gengur upp.

Rauða spjaldið, sem Romario nefnir, á Bjarna virkar hálf furðulega frá sjónvars-sjónarhorninu.
22:37 | 30 ágúst | 2009 | url

Ási Sveinss said:

...
ég botna eiginlega ekkert í þessu rauða spjaldi miðað við það sem á ég sá í sjónvarpinu....
12:27 | 31 ágúst | 2009

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy