• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Handan Gullinbrúar
Föstudagur, 23. maí 2008 09:39
 

Grafarvogurinn er úthverfi. Úthverfi í dýpsta skilningi þess orðs. Þegar Bó Halldórs talar um “Bolinn” þá er hann mjög líklega að meina einhvern sem býr í Grafarvogi. Þangað á enginn erindi nema annað hvort til þess að fara að sofa eða þá að heimsækja einhvern sem býr þar. Helstu kennileiti eru Gufuneskirkjugarður og hamborgrastaður sem selur borgara sem mannlega ómögulegt er að klára. Fólk sem þekkir engan sem á heima í Grafarvogi, engan sem er jarðaður þar eða borðar ekki hamborgara, hefur mjög líklega aldrei stigið fæti inn fyrir Gullinbrú.

 
 

 

Grafarvogur hefur fengið sinn eigin framhaldsskóla, sinn eigin verslunarkjarna sem nefnist Spöngin og einnig stendur til að byggja þar bíóhús fyrir íbúana. Því er líklegt að komandi kynslóðir sem alast upp í Grafarvogi hafi litla sem enga þörf fyrir að fara út fyrir Gullinbrú fyrr en upp úr tvítugu. Nema ef að vera skildi að kjarnafjölskyldan skellti sér í utanlandsferð á góðu verði eitthvert sumarið.

 

 

 

Fyrsta deildin er einmitt dáldið svipuð ódýru sumarfríi. Veðrið er glatað og allir hinir sem eru þar eru glataðir. Þegar heim er komið er látið eins og maður hafi ekki nokkurn tímann verið á þessum stað og myndirnar sem voru teknar eru helst aldrei skoðaðar.

 

 

 

Í síðustu heimsókn okkar Valsmanna í 1. deild voru Fjölnismenn úr Grafarvogi einmitt staddir þar með okkur. Útileikurinn sem við spiluðum á Fjölnisvelli sumarið 2004 var með þeim átakanlegri sem sést hafa. Þann leik unnu Fjölnismenn sannfærandi 2-1. Á einum tímapunkti gargaði einn stuðningsmanna Vals inn á völlinn: “Valsmenn spiliði’ FÓTBOLTA! ÞETTA ER EKKI FÓTBOLTI!!”

 

 

 

Þetta voru því miður orð að sönnu. Valsliðið, sem þá var undir stjórn Njáls Eiðssonar, spilaði einhvern þann versta verksmiðjubolta sem sést hafði alveg frá því að Ejub nokkur Pursevic stjórnaði Val þremur árum áður. Í millitíðinni hafði Þorlákur Árnason reynt að láta liðið spila einhvers konar flauels knattspyrnu en því miður gekk það ekki upp. Við vorum fastir í 1. deild með úthverfaliði sem enginn var farinn að halda með og var á þeim tíma álíka áhugavert og fulli gaurinn við sundlaugarbarinn.

 

 

 

En skjótt skipast veður í lofti, hvort sem um er að ræða Grafarvog, Hlíðarenda eða Costa Del Sol. Ári síðar vorum við Valsmenn komnir í efstudeild með lið sem skellti sér í toppbaráttuna og varð bikarmeistari um haustið. Á síðasta ári urðum við Íslandsmeistarar (sælla minningar) og á sama tíma komst Fjölnir í bikarúrslit og tryggði sér sæti meðal bestu liða landsins.

 

 

 

Fjölnishverfið hefur öll einkenni þess sem þarf til að skapa góða umgjörð og í raun má segja að komu Grafarvogsbúa í efstudeild hafi verið vænst í þó nokkurn tíma. Mikið af barnafjölskyldum eru í hverfinu og félagið er statt í miðju þess en ekki á jaðrinum, eins og til dæmis Valur og Víkingur. Fjöldi iðkenda er margfaldur á við mörg önnur félög og hafa gömlu Reykjavíkurstórveldin Fram, KR og Valur öll horft hýru auga til hverfisins. 

 

 

 

Fyrir ekki svo mörgum árum mátti minnstu muna að forráðamönnum Vals tækist að flytja félagið af Hlíðarenda yfir í Grafarvoginn. Framarar höfðu daðrað við hugmyndina í mörg ár á undan en skorti kjarkinn og einnig höfðu KR-ingar samstarfssamning við Fjölni á tímabili. Ekki má heldur gleyma FH-ingum sem komu stoðum undir liðið á síðasta tímabili en kipptu þeim undan á ögurstundu.

 

 

 

Fjölnir hefur hins vegar vaxið úr grasi og staðið af sér tilraunir annara liða við að gera Grafarvoginn að útungnarstöð sinni. Íbúar hverfisins eru farnir að vakna til vitundar um félagið sitt og fyrsta kynslóð hreinræktaðra Fjölnismanna, en ekki aðfluttra Framara, KR-inga Valsara og landsbyggðarlýðs, er að komast á legg.

 

 

 

Sennilega er Fjölnir einnig að koma upp á besta tíma. Fjölgun liða í efstudeild þýðir að liðin í neðsta hlutanum fá aukið andrými og eru líklegri til að ná að festa sig í sessi í nokkur ár heldur en þau voru í 10 liða deild.

 

 

 

Oft er talað um að það sé óumflýjanlegt að Fjölnir verði stórveldi einn daginn. Þrátt fyrir barna- og unglingamergðina í kringum félagið er Fjölnir þó enn ekki farinn að stilla upp heilu liði af uppöldum leikmönnum. Einnig er vert að benda á að fjöldi iðkenda í yngri flokkum er engin ávísun á árangur í meistaraflokki. Er þá nærtækt að skoða á úthverfaliðin ÍR og Leikni. Enn þann dag í dag standa þessi félög á brauðfótum þegar kemur að meistaraflokk þó svo að nægur efniviður hafi verið í Breiðholtinu síðustu áratugina.

 

 

 

Hvort Fjölnismönnum takist að eyðileggja vígsluathöfnina á Vodafonevellinum á sunnudag er alls ekkert ólíklegt. Þeir hafa byrjað mótið mun betur en við og góð stemmning er í kringum liðið. Valsliðinu fataðist flugið á nýjan leik í Árbænum og þrjú stig eru nauðsynleg ef við ætlum ekki að missa FH-inga of langt fram úr okkur þetta sumarið. Annars verður alveg eins gott að skella sér í ferð á skítuga sólarströnd.

 

Digg    Facebook   
Besservisserar (4)add comment

Siggi Már said:

...
DJÖFULLSINS SNIIIIIIIIILLLLLLLLLDDD var þessi leikur, nú er bara að byggja ofan á þetta dæmi.
KOMA SOOOOOO!!!!!!!!!!!
06:26 | 26 maí | 2008 | url

Valþór said:

...
Þetta var brilljant, svo gott að vera kominn aftur á Hlíðarenda og finna stemmingu á heimaleikjum, sitja í lifandi stúku í stað þessa ógeðis ferlíkis niðrá Laugardalsvelli.
Líka gaman að sjá gömlu stemminguna, fólk komandi gangandi á leikin úr öllum áttum. Brilljant, alveg !
17:16 | 26 maí | 2008 | url

Ásbjörn Þór said:

...
argasta ljúfasta fallega snilldin...
Æðislegur dagur á fallegum velli og frábært að vera kominn heim!!

Mér leið eins og skólastrák á fyrsta degi í skóla, tilhlökkun allan daginn og svo endaði þetta eins og það átti að verasmilies/smiley.gif

Takk fyrir daginn allir kátu Valsarar og við sjáumst aftur öll sem eitt.
21:53 | 26 maí | 2008

GJ said:

...
Til hamingju allir 3
09:39 | 27 maí | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Föstudagur, 23. maí 2008 10:56