• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Hallærislegt röfl
Höfundur: Valsarar.is   
Fimmtudagur, 17. september 2009 00:04

gretsky

 

Grétar Sigfinnur Sigurðsson fyrirliði KR gerði sekan í kvöld um að detta í leiðinda sálfræði 103 pakka fyrir leik FH og Vals í komandi umferð. Væntanlega hefur þetta verið að undirlagi Tóta trúðs, þjáfara KR. Tilgangurinn á víst að helga meðalið í þessum efnum en einhvern veginn hljómar þetta bara eins og skrípa læti í skólastofu og sorglegt að sjá þennan fyrrum leikmann Vals detta niður á þetta slor plan. Ef Valur vinnur þá getur Grétar tekið "sjáið hvað ég var klár" frasann og ef Valur tapar stigum þá er "djöfull vissi ég það" lumman í hinum vasanum. Trikk sem hefur verið gert milljón sinnum áður og ekkert lengur töff við svona bull.

Digg    Facebook   
Besservisserar (11)add comment

Trifon said:

...
Það er bara að vona að við gerum gott jafntefli eða töpum kannski með einu - engin skömm að því og þá verður FH Íslandsmeistari. Enda vill enginn heiðarlegur maður að blesarnir í vesturbænum hirði titilinn, það yrði skelfileg niðurstaða á ömurlegu sumri.....
08:40 | 17 september | 2009

Gunni said:

...
Það væri langskemmtilegast að vinna FH og láta KR-ingana halda enn í vonina. Svo eigum við eftir að mæta KR í lokaumferðinni og þá væri sko gaman að vinna KR-ingana og eyðileggja allt fyrir þeim í blálokin. Það er að segja ef að FH-ingunum myndu ganga jafnilla sem að mér finnst nú hæpið!
08:49 | 17 september | 2009

Tryggvi MB said:

...
Það væri ömurlegast af öllu ef kr-ingar ættu séns að tryggja sér titilinn á Hlíðarenda. Ég get varla hugsað þá hugsun til enda. Því miður höfum við ekkert að gera í klærnar á liðum sem hafa að einhverju að keppa.
09:37 | 17 september | 2009

Framari said:

...
Hann er nú að verða mesti vælukjói hann Grétar. Eftir bikarleikinn við FRAM var hann að væla yfir klassamun á KR og FRAM sem er augljóslega á hinn veginn ef eitthvað er! Varðandi þessi ummæli held ég að þetta virki nú sem vítamínssprauta á FH liðið frekar en hitt.
10:13 | 17 september | 2009

Simmi said:

...
Held að Grétar sé bara ekkert sérstaklega vel gefinn strákurinn, ekki í fyrsta sinn í sumar sem hann er eins og hálviti í viðtali eftir leik, annars vona ég að við Valsmenn látum 2 flokkinn spila, þeir hafa gott af þessu.
12:42 | 17 september | 2009

Romario said:

...
Það er eitt að missa sig í einu viðtali en að jarma sama bullið við þrjá til fjóra fjölmiðla sýnir að þetta á að vera eitthvað sálfræði dæmi. Ég tek undir með Framaranum ég held að þetta virki bara sem wake up call fyrir FH-inga.
08:20 | 18 september | 2009

BB said:

...
Það er búið að rakka Valsliðið niður í allt sumar og þessir menn fara ekkert að girða sig í brók núna af því að fyrirliði Kr er byrjaður á því líka. Smá jákvæðni og hvatning hefði virkað betur.
10:28 | 18 september | 2009

Gunni said:

...
Þurfum við stuðningsmenn Vals ekki að gera eitthvað rótækt í okkar málum?
Flest lið hafa frábæra stuðningsmenn og mikil stemning er á vellinum hjá þeim. T.d. þá heyrðist ekkert í okkur á sjálfum Hlíðarenda á móti Stjörnunni og svona er þetta búið að vera í allt sumar fyrir utan útileikinn sem við spiluðum á móti KR. Manni líður oft hálfbjánalega hvað við erum með ömurlegt stuðningslið. 2007 þegar að við vorum Íslandsmeistarar var alltaf mikil tilhlökkun að mæta á völlinn því þá voru strákar saman komnir með trommur og öll lögin voru klár en núna í dag er þetta alveg dautt! Gæti verið ef að við stuðningsmenn myndum gera einhverjar ráðstafarnir fyrir næsta ár að liðinu myndi ganga betur?
ÁFRAM VALUR!!! Er einhver með einhverjar tillögur eða uppástungur?
10:58 | 18 september | 2009

Valþór said:

...
@Gunni, já það þarf eitthvað að gera

Þeir sem hafa e-ar góðar hugmyndir eða vilja bara vera í þeim pakkanum að rífa upp stemningu fyrir næsta tímabil mega gjarnan senda okkur póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og við gætum reynt að fiffa eitthvað dæmi, menn jafnvel hist og rætt málin, viðrað hugmyndir og svoleiðis.

Þetta hefur hingaðtil verið soldið mikið til sami hópurinn að rembast, og margir hverjir að detta í rækjusamlokufílinginn (undirritaður meðtalinn), en það er brýn nausðyn að fá ferskt blóð inn
12:51 | 18 september | 2009 | url

BB said:

...
Kr-ingar gripu greinilega á lofti það sem ég sagði:
http://krreykjavik.is/?p=1219
Too litle too late! Grétar er búinn að klúðra þessu. smilies/grin.gif
16:34 | 18 september | 2009 | url

Rauður said:

...
Vonandi verður jafntefli á móti FH með engu móti hægt að hugsa sér þá hugsun að kr eigi möguleika.
15:57 | 19 september | 2009

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 17. september 2009 00:41