|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Frjáls eins og fuglinn |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||||||||||||||||
| Föstudagur, 16. október 2009 12:25 | ||||||||||||||||
|
Þeir sem mætt hafa á handboltaleiki Vals í karla- og kvennaflokki hafa eflaust tekið eftir því að keppnisbúningar félagsins bera ekki neinar auglýsingar. Ef einhver var að vonast eftir að Valur væri að taka Barcelona á þetta og sleppa því að hafa aðalstyrktaraðila þá þarf sá draumur líklega að bíða um sinn. Frjálsi fjárfestingabankinn sem auglýst hefur á öllum keppnistreyjum Vals frá árinu 2006 er hættur að styrkja félagið. Samkvæmt heimildum valsara.is hefur bankinn ekki borgað fyrir auglýsingar frá því í mars eða þegar Fjármálaeftirlitið yfirtók SPRON. Síðan þá hefur Frjálsa verið stjórnað af slitastjórn sem hefur það eitt að markmiði að hámarka eignir hans. Samningur Vals við Frjálsa var gerður þegar góðærið var við það að ná háflóði eða í maí 2006. Í tilefni samningsins kom eftirfarandi fréttatilkynning á valur.is: Tilvitnun hefst: Frjálsi fjárfestingabankinn aðal styrktaraðili Vals Frjálsi fjárfestingabankinn og Knattspyrnufélagið Valur hafa undirritað samning um að Frjálsi fjárfestingabankinn verður aðal styrktaraðili félagsins til næstu fimm ára. Mun vörumerki Frjálsa fjárfestingabankans prýða keppnistreyjur allra keppnisflokka Vals í knattspyrnu, handknattleik og körfuknattleik bæði meistaraflokka og yngri flokka karla og kvenna. Styrktarsamningurinn er að verðmæti rúmlega 50 milljónir króna og gerir Val kleift að halda úti enn öflugra starfi í harðri baráttu um titla á komandi leiktímabilum í meistaradeildum karla og kvenna. Jafnframt verður lögð enn ríkari áhersla á uppbyggingarstarf yngri flokka félagsins. Kristinn Bjarnason framkvæmdastjóri Frjálsa fjárfestingabankans:
Kristinn Bjarnason fyrrverandi framkvæmdastjóri bankans var aðal maðurinn á bakvið samninginn en hann hætti störfum hjá Frjálsa í maí síðastliðnum.Ómetanlegur stuðningur sagði þáverandi formaður Vals, Grímur Sæmundsen, en samningurinn nam 10 milljónum króna á ári og því er ljóst að Valur er að missa stóran spón úr aski sínum. Á aðalfundi Vals síðastliðið vor var greinilegt að kostnaðarliðir félagsins eru stórir og ófáir. Allar áhættufjárfestingar knattspyrnudeildar í kringum síðasta tímabili eiga það sameiginlegt að hafa skilað engu til baka en við þær bætast starfslokasamningar við Willum Þór og Helga Sigurðsson. Ekki verða neinar tekjur af þátttöku í Evrópukepnni til að brúa bilið og fátt bendir til að einhverjir Valsmenn séu að stökkva í atvinnumennsku á næstunni. Stjórnenda á Hlíðarenda bíður því ærlegt verkefni að galdra fram álika upphæðir í reksturinn á næstunni ef ekki næst að skera hressilega niður en fleiri styrktaraðilar Vals hafa dregið saman seglin eða hreinlega farið á hliðina á undanförnum misserum. eiga það sameignlegat að
Besservisserar (9)
![]()
Valþór
said:
|
|
... Hverskonar della er það ef samningar halda ekki þó að einhver annar taki við stjórnartaumunum hjá Frjálsa ? A deal is a f***** deal, það hlýtur að vera hægt að sækja þetta bara hart |
|
... Ef við fáum þetta ekki borgað hljótum við að eignast einfaldlega hlut í Kaupþingi líkt og aðrir kröfuhafar? |
|
... Þið eruð að grínast hér að ofan, ekki satt? Díll er ekki díll ef annar aðilinn verður gjaldþrota. End of story. Eignast hlut í Kaupþingi, þegar Frjálsi/SPRON verður gjaldþrota, af hverju í ósköpunum, hvað kemur Kaupþing málinu við? |
|
... Hvenær varð Frjálsi gjaldþrota? Var hann ekki dótturfélag SPRON sem var yfirtekinn af einmitt Kaupþingi? |
|
... u.. nei. Frjálsi var dótturfélag SPRON og SPRON var yfirtekið af Fjármálaeftirlitinu, líkt og hinir bankarnir. Ekki hin hefðbundna leið til gjaldþrotaskipta, en jú SPRON varð gjaldþrota. Og Kaupþing tengist málinu bara ekki neitt, á nokkurn hátt. Nema hugsanlega ef þú átt við þá stjórnvaldsákvörðun að flytja öll innlán viðskiptavina SPRON til Kaupþings, sem var í raun bara til að þeir viðskiptavinir fengju áfram þjónustu. Þetta er heimskuleg umræða. Verður spennandi að sjá hver næsti sponsor verður. |
|
... Semsagt, Frjálsi varð aldrei gjaldþrota? Sé ekki betur en að hann starfi enn, prófaðu t.d. að skoða heimasíðu hans. |
|
... Þó að móðurfélag verði gjaldþrota þýðir það ekki að dótturfélögin fari sömu leið. Sjáið til dæmis Eimskip og TVG Zimsen. |
|
... Frjálsi er gjaldþrota. End of story. http://www.frjalsi.is/article....Date=true Kaupþing kemur síðan þessu gjaldþroti ekkert við og ég var bara að benda á hversu bjánaleg hugmynd það væri að Valur ætti að eignast hlut í Kaupþingi því að sponsor vals, Frjálsi fór í þrot. |