• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Frelsarinn kveður
Mánudagur, 03. nóvember 2008 16:51
Þegar Guðmundur Benediktsson gekk til liðs við Val á haustdögum 2004 þótti fáum nokkur vitglóra í þeim kaupum. Fyrir utan það að vera einn helsti tákngerfingur erkifjendanna í KR þá hafði Guðmundur glímt við meiðsli í fjölmörg ár og það var leitun að manni sem hafði trú á að hann myndi ná sér á strik aftur.


Willum Þór hafði þó enn trú á hæfileikum Guðmundar og eftir fyrstu umferðir tímabilsins 2005 var leitun að Valsmanni sem var ekki búinn að taka hann í sátt. Lengi vel höfðu Valsarar beðið eftir leikmanni sem gæfi okkur von um að fallabaráttan yrði kvödd og félagið færi aftur í toppbaráttuna eins vaninn hafði verið fram að 10. áratug síðust aldar. Ýmsar vonarstjörnur höfðu skotið upp kollinum gegnum árin en engin náð endast meira en nokkra leiki. Biðinni var hins vegar lokið og Frelsari fundinn.

Tímabil Gumma hjá Val voru samt kannski dáldið eins og hvítt og svart. Eða í þá áttina. Árið 2005 mataði hann þá Garðar Gunnlaugsson og Matthías Guðmundsson með eitruðum stoðsendingum og Valsliðið spilaði árangursríkan sóknarbolta í fyrsta sinn í meira 10 ár. Valur náði 2. sæti í deildinni sem var besti árangur í deild síðan 1988 og bikarinn vannst eftir 13 ára bið.
 
Árið eftir var meira hringl á sóknarlínu liðsins. Willum gat ekki gert upp við sig hvort hann vildi nota Matta sem framherja eða kantmann og Garðar Gunnlaugs kom hálf meiddur heim eftir lánsför til Dunfirmline í Skotlandi. Herra Bikar fór svo í atvinnumennsku til Norköping og inn kom Garðar Jóhannesson sem stoppaði þó stutt við.

Valur tapaði ekki nema tveimur leikjum þetta tímabil en bitið fram á við var augljóslega ekki nægilegt. Stjórn knattspyrnudeildar brást við þessu með því að kaupa Helga Sigurðsson af Fram og mynduðu þeir Guðmundur eftirminnilegan sóknardúett tímabilið 2007. Helgi var í afburðarformi þetta sumar og var akurat leikmaðurinn sem Gummi þurfti að hafa með sér enda kom það á daginn að Willumi Þór tókst að púsla saman Íslandsmeistaraliði. Endurkoma Frelsarans var fullkomnuð.

Á síðasta tímabili lenti hver lykilmaður Vals á fætur öðrum í meiðslum. Við það bættist að einhvern veginn var eins og að liðið hafi byrjað á vitlausum fæti í upphafi tímabils og aldrei fundið rétta taktinn.  

Hálft Valsliðið var því meira og minna á hækjum og ýmsir minni spámenn þurftu að bera hitann og þungan af leik liðsins. Valur náði aldrei að vera sama sóknarmaskínan og árið 2007 en í staðinn var liðið að spila botnlausan varnarleik, líkt og oft var kvartað undan í umfjöllunum á þessari síðu.

Gummi hefur löngum sýnt að hann er útsjónasamasti leikmaður deildarinnar og því hefur hann komist upp með að þurfa ekki að vera í hlutverki þess sem þarf að hlaupa mikið og vinna boltann af andstæðingnum. Því má kannski segja að hann sé eins konar lúxus leikmaður. Ef það eru menn í kringum Gumma sem geta séð um skítverkin þá er enginn betri en hann í að fínpússa verkið.

Spilamennska liðsins bauð hins vegar engan veginn upp á að hans kraftar væru nýttir eins og best verður á kosið. Valur spilaði stífan varnarbolta og hugsaði fyrst og fremst um að verja stöðu frekar en að sækja. Fæstir leikmenn liðsins vildu fara yfir eigin vallarhelming, sóknarhugmyndirnar byggðust á að bomba boltanum fram og Gummi var því orðinn að einskonar lúxusvandamáli.

Þrátt fyrir hálf dapurt nýafstaðið tímabil, miðað við það sem Guðmundur hefur sýnt gegnum árin, þá skildi enginn afskrifa Frelsarann. Gummi þarf að hafa skæðan framherja með sér og takist KR-ingum að finna einn slíkan í stað Guðjóns Baldvinssonar verða þeir til alls líklegir.

Valur og KR mætast síðan á Hlíðarenda í lokaumferð næsta tímabils og vonandi verður full ástæða fyrir Valsara til að klappa fyrir Guðmundi Benediktssyni þá. Svo lengi sem hann verður ekki að lyfta neinni dollu að minnsta kosti.

Takk fyrir minningarnar.

Digg    Facebook   
Besservisserar (5)add comment

Valur vængjum þöndum said:

...
Frábært hjá Garðari Jó. Ég veit ekki alveg hvort mér þyki samt Garðar Gunnlaugs vera í landsliðsklassa en hann er ágætur potari. Þeir eru nauðsynlegir á móti litlum þjóðum en Garðar verður líka að skora grimmt í Búlgaríu til að fá athygli. Svo held ég að Ari Freyr ætti að reyna að komast til Vals aftur og spila heima eitt tímabil frekar en í sænsku b-deildinni. Atvinnumenn í litlum liðum í Svíþjóð fá sjaldan tækifæri með landsliðinu. Það er fullt af Íslendingum þarna sem komast aldrei að á meðan alls konar fuglar í íslensku deildinni fá sénsinn. Það vantar líka fleiri fljóta menn í Val. ARA FREY HEIM!
11:27 | 13 nóvember | 2008

tóti said:

...
Hvernig er það, er ekkert líf í mönnum? Bæði hér og inná Valssíðunni er ekkert að gerast.
Er ekki tilvalið að fjalla um allar þessar breytingar á karlaliðinu í fótbolta og hverju þær muni skila. Fara yfir síðasta tímabil eins og var talað um og bara hafa almennilegt líf í umræðum.
Fræða okkur stuðningsmennina um hvað er að gerast, af hverju fór sumarið svona, hverjar eru horfurnar og allt í þeim dúr.
Þið eruð það góðir þegar þið skrifið að það mundi lyfta miklu upp í skammdeginu.
13:24 | 16 desember | 2008

Hahahahaha said:

...
Garðar Jó Valsari??? Hvað var hann í 2 mánuði í Val?Er þá Eiður Smári KR-ingur?

Þvílíkir brandarakallar þessir Valsmenn!
16:57 | 16 desember | 2008

Tryggvi said:

...
Eiður Smári er Valsari það er klárt.

En ætli við förum ekki að reyna týna saman í einn pistil fljótlega. Fátt betra að gera í KReppunni.
22:35 | 17 desember | 2008 | url

Kári said:

...
Eiður Smári er IR Maður fran i rauðan dauðan
07:34 | 04 maí | 2009

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 04. nóvember 2008 10:14