• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Fjandvinir að hverfa?
Þriðjudagur, 07. október 2008 21:05
Image

Fjármálakreppan hefur víðtæk áhrif þessa dagana. Lengi hefur staðið til að einir af okkar elstu fjendum flyttu starfsemi sína úr hinni eiginlegu Reykjavík og í útnára sem nefnist Grafarholt. Sú staða virðist heldur betur hafa breyst en nú er útlit fyrir að Fram verði hreinlega lagt af eftir 100 ára sögu og sameinist öðru úthverfaliði. Þetta eru vægast sagt sorgarfréttir fyrir íslenska íþróttamenningu.

Kreppan mun hafa víðtækar afleiðingar þessa dagana og líklega er enginn óhulltur hvort sem um er að ræða fyrirtæki, einstaklinga eða félagasamtök. Ef heimasíða Vals er skoðuð má sjá auglýsingar frá okkar helstu styrktaraðilum. Þau eru JB Byggingarfélag, Milestone, Landsbankinn, VÍS, Ölgerðin Egils, Frjálsi fjárfestingabankinn og Baugsfyrirtækin Hagkaup og Vodafone.

Örlög Landsbankans þekkja allir auk þeirra áfalla sem Baugur hefur orðið fyrir. Milestone og JB Byggingafélag eru einnig með styrktarsamning við Breiðablik en í gærkvöldi mætti formaður knattspyrnudeildar félagsins og talaði um að ákveðin fyrirtæki hefðu ekki getað staðið við styrktarsamninga við þá. VÍS er síðan í eigu Exista sem hefur hríðfallið síðasta árið. Frjálsi hefur væntanlega ekki farið varhluta út úr hremmingunum sem gengið hafa yfir en hann er þó vel að merkja ekki fjárfestingabanki. Á móti kemur að Valur hefur nýlega selt leikmenn til Noregs og einnig er von á greiðslu fyrir þáttöku í forkeppni meistaradeildarinnar.

Mörg félög hafa sett stefnuna á stórtækar framkvæmdir á sínum félagssvæðum og einnig hefur KSÍ gert auknar kröfur á félögin um betri aðbúnað. KR hefur til að mynda verið með áætlanir um risaleikavang og þjónustmiðstöð fyrir Vesturbæinn, Þróttur hefur stefnt að því að flytja af Valbjarnarvelli og yfir á Hallarflötina (þar sem nú er gervigras en því á að breyta), lengi hefur staðið til að bæta úr aðstöðu Fylkis, völlur ÍBV stenst ekki kröfur KSÍ, KA hefur stöðvað framkvæmdir á sínu svæði og svo framvegis. Allt þetta er sett í uppnám líklega næstu árin.

Í útvarpsviðtali á Rás 2 í dag lýsti borgarstjórinn í Reykjavík því síðan yfir að byggja þyrfti meira miðsvæðis en ekki í úthverfunum þar sem að engin eftirspurn væri eftir lóðum þar. Um leið ýjaði Hanna Birna að því að Reykjavíkurflugvöllur þyrfti að víkja sem þýðir, ef af verður, nýtt hverfi í bakgarði Hlíðarenda.

Alls kyns sögusagnir ganga um öll félög efstudeildar þessa dagana og er Valur þar engin undantekning. Ljóst er að landslag íslenskrar knattspyrnu er orðið gerbreytt frá því fyrir um ári síðan og nú verður góður árangur í Evrópukeppnum, sala á leikmönnum, hagræðing í rekstri og öflugt yngriflokkastarf mikilvægara sem aldrei fyrr. Hinir hæfustu munu lifa.

Digg    Facebook   
Besservisserar (1)add comment

Ólafur Haukur Gíslason said:

...
Sælir félagar

Vildi bara minna á einn stærsta leik vetrarins annað kvöld þegar við fáum Haukana í heimsókn á Vodafonefjalirnar að Hlíðarenda.

Valur - Haukar
Miðvikudagur 15. október kl 19:30
Ársmiðahafar munið súpu og samlokur í Lollastúku fyrir leik

Kveðja
Mfl Vals í Handbolta
15:54 | 14 október | 2008 | url

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 08. október 2008 10:08