|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Fiskur, kísill og takkaskór |
| Mánudagur, 25. maí 2009 14:07 | ||||||||||||
|
Ef ekki væri fyrir psoriasis sjúklinga þessa heims þá hefðu fáir eflaust vitneskju um bæjarfélagið Grindavík. Bærinn er úr alfaraleið við alla aðra umferð á Suðurnesjum (nánar tiltekið Reykjanesbrautina) og fyrir opnun Bláa Lónsins átti fólk á álíka mikið erindi inn á Grindavíkur afleggjarann og það átti á afleggjarana til Sandgerðis,Garðs, Hafna, Voga, Njarðvíkur eða Keflavíkur eða hvað sem allir þessir smábæjir í kringum herflugvöllinn heita. Það er þó ekki Bláa lónið sem gerir knattspyrnuna í Grindavík að því sem hún er. Sagt er að kvótagreifar bæjarins séu beinlínis fótboltasjúkir. Svo sjúkir að þeir keyptu útbrunna stjörnu Manchester United, Lee Sharpe, til sín fyrir nokkrum árum (Sharpe tók einmitt þátt í raunveruleikaþáttum í Bretlandi nokkru síðar sem nefnast "I'm a celebrity...get me out of here!"). Ekki er heldur svo langt síðan að Grindavík var spáð Íslandsmeistaratitli af þjálfurum og fyrirliðum fyrir mót. Það gekk ekki upp og engir stórir titlar hafa ratað í bikarskáp félagasheimilisins. Helsta afrek knattspyrnuliðsins er líklega að vera síðasta liðið til að falla um deild í fyrsta sinn en það var árið 2006. Við það bætist 1500 manna stúka við fótboltavöllinn hjá 2500 manna bæjarfélagi. Til samanburðar tekur stúkan á KR vellinum álíka marga og stúkan á Hlíðarenda rétt tæpa 1200 í sæti. Allar leiðir liggja framhjá Grindavík Grindavík er minnsta bæjarfélag landsins til að setja alvöru mark á efstudeild karla. Vissulega er hægt að tala um ÍA og ÍBV sem mótspyrnuleiðtoga landsbyggðarinnar gegn kverkataki höfuðborgarliðanna á efstudeildinni. Grindavík er hins vegar svipað fjölmenn og svo margir smábæjir á Íslandi með rétt tæpa 2500 íbúa. Þrátt fyrir það á bærinn bæði eitt besta körfuboltalið landsins og hefur einnig gert tilkall til að vera með lið í úrvalsdeild með einni undantekningu frá 1995. Geri aðrir betur. Lið Grindavíkur í ár glímir við líkt vandamál og Valsliðið. Mikil uppstokkun er á milli ára og því höfuðverkur þjálfarans að stilla saman nýjun liði í upphafi hvers móts. Höfuðverkurinn virtist vera Milan Stefán Jankovic ofviða og steig hann úr þjálfarastólnum nýverið og við tók Luca Lúkas Kostic. Luca Lúkas hefur komið við víða og spurning hvort að nýja brumið muni blása fyrstu stigunum í herferð Grindjána þetta árið. Vonum ekki samt. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 20.00 og grill og læti á staðnum frá klukkan 18.30. Það veitir víst ekki af að reyna að hressa Valsara við eftir dapurlega byrjun liðsins. Besservisserar (7)
![]()
mauli
said:
|
|
... Fátt jákvætt við leikinn í kvöld. Markið var gjöf frá Kjartani. En það má ekki horfa of mikið á Kjartan þótt hann sé slappur þessa dagana. Allt liðið er slappt, Willum virkar ráðalaus og liðið er leiðinlegt. Það er að spila þessa leiki eins og þeir skipti ekki máli, allavega er lítil barátta og menn ekki að öskra og hvetja hverja aðra. Það er búið að eyða hellings pening í þetta lið og þeir eru ekki að standa undir því, langt frá því. |
|
... Tek undir þetta með mistök Kjartans. En aukaspyrnan var gjöf línuvarðarins. Tæklingin hjá Bjarna var tandurhrein, hann fór í boltann, það sást greinilega. Einnig set ég spurningamerki við rangstöðudóminn í marki nr. 2. |
|
... Þarf ekkert að setja neitt spurningamerki, markið var löglegt! KRistinn Jakobsson á EKKI að dæma leiki hjá Val. Hann hefur sýnt það og sannað trekk í trekk. |
|
... Línuvörðurinn flaggaði. Ég sat í ágætri línu við þetta og hélt fyrst að það væri verið að dæma brot því það var akurat engin rangstöðu fnykur af þessu. Þetta bögg út í Kidda Jak má alveg bíða, við getum ekki verið að væla út af honum þegar liðið spilar ekki betur. |
|
... Mér fannst Kristinn dæma vel í gær, sérstaklega þegar leið á leikinn. Hann gat ekki gengið framhjá ákvörðunum línuvarðarins í þessum tilvikum. Ég held að hann hafi ekki flautað aukaspyrnu á Bjarna fyrr en flaggið fór á loft. Og þá var óhjákvæmilegt að spjalda hann líka. |
|
... Kæjakinn var ágætur, árangurinn í gær var ekki honum að kenna heldur liðinu, eins og Bjössi bendir á. Valsmenn verða bara að gyrða sig djúpt í brók og taka sig saman í andlitinu, ekkert helvítis rövl |