|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Fimmta sigursælasta félag landsins í heimsókn |
| Föstudagur, 06. júní 2008 11:02 |
|
Breiðablik er eitt sigursælasta knattspyrnufélag landsins. Í alvöru. Blikar hafa unnið 15 Íslandsmeistaratitla og 10 bikarmeistaratitla í meistaraflokki kvenna. Og þar með endar afrekaskrá Kópavogsrisans. Meistaraflokkur karla hefur aldrei unnið stóran titil og í raun aldrei verið nálægt því ef frá er talinn bikarúrslitaleikur 1971. Frægustu knattspyrnumenn UBK eru bræðurnir Sigurður og Arnar Grétarssynir auk þess má ekki gleyma Mareli Baldvinssyni. Og þar með endar sú upptalning.
Þrátt fyrir að Breiðablik sé frá stærsta bæjarfélagi landsins utan Reykjavíkur er árangur félagsins í gegnum tíðina mun lélegri en búast mætti við. Blikar hafa í gegnum tíðina átt í erfiðleikum með að festa sig í sessi í efstudeild en einnig hafa þeir oft setið í næstefstudeild svo árum skiptir. Breiðablik féll síðast árið 2001 og drógu þeir þá okkur Valsmenn með sér í 1. deildarpyttinn í lokaumferðinni.
Árið 2006 var félagið aftur komið í deild hinna bestu. Það tímabil gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig og liðið mátti glíma við fallbaráttu allt þar til í næst síðustu umferð. Á síðasta tímabili benti hins vegar ýmislegt til að Blikar gætu gert stærri hluti. Ólafur Kristjánsson þjálfari liðsins virtist njóta sín mun betur í Kópavogi en hann gerði hjá Frömurum og tókst að búa til léttleikandi lið sem gat velgt hvaða andstæðing sem er undir uggum. Stöðugleiki hefur þó gjarnan verið stærsta vandamál Breiðabliks. Í fyrra náðu Blikar jafntefli í báðum leikjum sínum gegn okkur Valsmönnum og voru líklega betri aðilinn í bæði skiptin. Einnig sigruðu þeir FH-inga á heimavelli en lokaniðurstaðan í mótinu var sæti um miðja deild. Liðið náði aðeins 24 stigum þrátt fyrir einungis fjögur töp en níu jafntefli reyndust full dýrkeypt þegar uppi var staðið. Sjálfsagt hafa grænir Kópavogsbúar verið fegnir tilbreytingunni við að vera lausir við falldrauginn en liðinu mistókst að blanda sér í baráttuna um Evrópusæti og féll út í undanúrslitum Visa-bikarkeppninnar sem hljóta að hafa verið ákveðin vonbrigði. Með tilkomu HK í efstudeild má segja að stuðningsmönnum Breiðabliks hafi loks hlaupið kapp í kinn. Stemmingin sem Kópavogsliðin sköpuðu fyrir leiki sína á síðasta tímabili var til fyrirmyndar og stuðningsmannalið Breiðabliks, Stuðblikar, er ansi öflugt þegar sá gálinn er á þeim. Einnig er vert að benda á heimasíðu þeirra; www.blikar.is sem er vel úr garði gerð. Breiðablik hefur löngum verið martraðarlið okkar Valsmanna og þá sérstaklega á Kópavogsvelli. Svo virðist sem einhvers konar álög fylgi leikmönnum Vals þegar gengið er yfir hlaupabrautirnar á þeim ágæta leikvangi líkt og sást gegn HK nú á dögunum. Sem betur fer er þessi leikur þó á Hlíðarenda en síðast þegar Blikar mættu þangað í heimsókn, árið 2004, fór leikurinn 6-1 fyrir Val. Í síðustu 10 heimaleikjum okkar gegn Breiðabliki höfum við unnið sex leiki, gert tvö jafntefli og tapað tvisvar. Á meðan FH heldur áfram að hirða upp stig gegn lakari liðum deildarinnar megum við Valsarar ekki misstíga okkur mikið oftar sé ætlunin að verja Íslandsmeistaratitilinn. Við máttum hafa mikið fyrir því að vinna þessa dollu og það sama verður upp á teningnum í ár. Nú reynir á að snúa bökum saman og gera það sem í okkar valdi stendur til að tryggja að titillinn endi ekki á vergangi einhvers staðar á landsbyggðinni. Reykjavík treystir á okkur. Besservisserar (0)
![]() Skráðu inn athugasemd
|
| Síðast uppfært: Föstudagur, 06. júní 2008 12:16 |