• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Enginn er annars bróðir í leik
Miðvikudagur, 15. október 2008 10:19
Handbolta stórveldi 21. aldarinnar, Haukar frá Hafnarfirði mæta í heimsókn í Vodafonehöllina í kvöld. Haukar sitja sem stendur í 4. sæti deildarinnar en flestir sérfræðingar spá liðinu enn einum Íslandsmeistaratitlinum næsta vor.
Á síðustu árum hafa Valsmenn háð margar hildirnar við bræðrafélag okkar í Hafnarfirði. Oftar en ekki máttu okkar menn þurfa að lúta í parketið í þessum viðureignum eftir æsilega baráttu.

Í úrslitakeppninni árið 2001 mættust félögin í undanúrslitarimmu. Valsliðið var skipað gömlum kempum á borð við Júlíus Jónasson, Júlíus Gunnarsson, Valdimar Grímsson og Geir Sveinsson sem jafnframt þjálfaði. Við þessa reynslubolta voru í bland efnilegir leikmenn eins og Markús Máni Mikaelsson, Bjarki Sigurðsson, Freyr Brynjarsson (nú í Haukum) og Snorri Steinn Guðjónsson. Auk þeirra var fjöldi pilta sem þurftu að sitja á varamannabekk Geirs þjálfara mest allt tímabilið en hafa þó seinna meir gert garðinn frægann. Ekki má heldur gleyma Roland Val Eradze sem stóð á milli stanganna.

Til oddaleiks kom á Ásvöllum og voru Valsmenn hársbreidd frá því að komast í úrslitin. Á síðustu sekúndum venjulegs leiktíma fékk Valur sókn en Markús Máni, sem þá var rétt að verða tvítugur, átti skot í stöng á lokasekúndunum án þess að Bjarni Frostason þáverandi markvörður Hauka væri hvergi nærri. Framlengja þurfti leikinn og höfðu Haukar betur og urðu síðan Íslandsmeistarar seinna um vorið.

Næsta tímabil á eftir stóð viðureign félaganna í bikarkeppninni upp úr. Miklar breytingar höfðu orðið á Valsliðinu frá því árinu áður og flestir reynsluboltar liðsins voru horfnir á braut. Valur var þó enn með besta markvörð deildarinnar á þessum tíma í Rolandi Val. Snemma leiks fékk Roland að líta rautt spjald eftir samstuð við Jón Karl Björnsson utan vítateigs þegar hinn hæfileikaríki hornamaður Hauka hafði brugðið sér í hraðaupplaup, aldrei þessu vant. Inn á kom Pálmar Pétursson sem þá var tæplega 17 ára gamall. Valsliðið náði að vinna sig inn í leikinn eftir brottvísunina og minnstu munaði að liðið ynni frækinn sigur en allt kom fyrir ekki. Tap á Ásvöllum sem var að verða einhver illvígasti útivöllur sem um gat.

Árið 2004 komst Valur í úrslit úrslitakeppninnar einmitt gegn Haukum en átti ekki erindi sem erfiði. Serían fór 3-0 og unnu Haukar hana sannfærandi. Ári síðar unnu Haukar Val í undanúrslitum keppninnar 2-0 án teljandi erfiðleika.

Ekki er laust við að margir Valsarar hafi vonast til að Íslandsmeistaratitill okkar árið 2007 sem vannst á Ásvöllum myndi verða tákn um vatnaskil í íslenskum handbolta. Kynslóðaskipti virtust vera eiga sér stað hjá Haukum á sama tíma og Valur var að koma upp með ungt og ógnarsterkt lið. Umbreytingatímabil Hauka stóð þó ekki lengi yfir og ári síðar var Aron Kristjánsson búinn að koma þeim á toppinn enn á ný. Brotthvarf Markúsar Mána varð einnig mikil blóðtaka fyrir Val og Óskari Bjarna þjálfara Vals tókst ekki að fylla í hans skarð á síðasta tímabili nægjanlega vel.

Valsliðið í ár hefur sýnt ágætis takta það sem af er en leikirnir hafa að vísu verið óþarflega tæpir. Slíkt er auðvitað betra upp á skemmtanagildið en stundum vill maður bara hafa þetta öruggt svo liðið sé ekki að missa leiki í óþarfa jafntefli.  Breiddin í liðinu er góð með nánast tvo menn í hverri stöðu, nema ef vera skildi á hægri vængnum en liðið saknar Ernis Hrafns töluvert.

Haukar hafa tapað einum leik í deildinni gegn HK en eiga jafnframt leik til góða á okkur. Ef Valur ætlar sér að vera í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn þetta tímabil er sannarlega um fjögra stiga leik að ræða enda Haukar komnir með mikla hefð í toppbaráttunni síðustu árin.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.30 en súpa og bakkelsi verða á boðstólum bæði fyrir leik og í hléi. Valsarar.is hvetja lesendur til að nýta þetta framtak handknattleiksdeildar og spara þar með í leiðinni útgjöld fyrir einni máltíð í bankakreppunni.

Digg    Facebook   
Besservisserar (14)add comment

Framari said:

...
Hahahaha það er alveg sorglegt að fylgjast með Valsmönnum sem endranær, yfirleitt hokknir af minnimáttarkennd og með áhyggjur á allt öðru en þeim kemur við. Hvað varðar stöðu Fram þá hefur félagið aldrei staðið sterkara en nákvæmlega núna þó svo að knattspyrnu og handknattleiksdeild standi í endurskiplaggningu eins og aðrar deildir. Hvað varðar knattspyrnudeildina þá var sest niður skv mínum heimildum og endursamið við alla leikmenn vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Hvað gerðist ? jú allir leikmenn tóku á sig launalækkun og skrifuðu undir nýja samninga nema fyrirliðinn sem ekki var til í að hnika. Því fór vel á því að hann færi beint til Vals sem hafa verið svo ágætir að taka við mönnum sem við höfum nú þegar náð því besta út úr. Þar fær hann líklega gömlu launin sín aftur ef vasar Engilberts eru ekki þurrausnir. Eftir stendur að Framiðið kemur sterkara til leiks næsta sumar, búið að endurheimta 2-3 menn úr meiðslum síðan síðasta sumar og tekur þátt í evrópukeppninni. Eitthvað sem Valur gerir EKKI 2009 og óvíst hvenær næst ef litið er á leikmannahópinn sem samanstendur af mönnum sem eru á sínum síðustu metrum og allir útlendingarnir hafa verið sendir burt. Fallbarátta ? Sennilega ekki svo ólíklegt, Reynir þekkir hana vel og gæti hjálpað ykkur !!!
Hvað varðar handboltann þá þarf ekkert að ræða það, lítið bara á stigatöfluna :-) Hún á reyndar eftir að breytast aðeins því FRAM á eftir að færast upp í fyrsta sæti með sigri í þeim leik sem þeir eiga til góða. Kæmi á óvart ef Viggó endar neðar en það !!!!!!
17:32 | 24 október | 2008

Baldur Bongo said:

...
"Því fór vel á því að hann færi beint til Vals sem hafa verið svo ágætir að taka við mönnum sem við höfum nú þegar náð því besta út úr."

Einmitt, Helgi Sig var alveg búinn þegar hann kom yfir....
22:36 | 24 október | 2008

Loftur said:

...
Ég get vel skilað bræði Frammara við þessu sem er mjög skiljanleg, það er óþolandi er sama liðið hirðir lykilmenn trekk í trekk, veit samt ekki hvar Framari fær sínar heimildir en mér skillst að Reynir sé nú þó ekki sá eini sem er á förum úr Safamýrinni, Framarar eiga mína fullu samúð á þessu ömurlega ástandi sem er á klúbbnum, persónulega vil ég sjá Fram áfram meðal bestu og ekki sameinast neinum, en menn hljóta auðvitað sjá að það eru blikur á lofti ef jafn rótgróinn klúbbur og Fram er að bjóða öðrum sömu sængina, annars verð ég nú að vera ósammála því að Valur sé með marga leikmenn á seinustu metrunum, dettur í raun bara hug 2-3 sem eru það, auðvitað sjá einnig allir að Valur fór illa úr meiðslum og allt það enda það lið sem menn töldu vera með sterkasta hópinn, á góðum degi er Valur með talsvert betra lið en flest öll liðin í deildinni, þetta metur greinilega Reynir rétt og er öruglega ekkert með mikið samviskubit að missa af leik í Inter Toto keppninni einhverstaðar í Austrinu, hann metur einfaldlega stöðuna þannig að Valsliðið stendur langsterkast eftir þessar hamfarir í þjóðfélaginu og vill einfaldlega spila með því liði sem er líklegast til afreka á næstunni.
00:45 | 25 október | 2008

Balli said:

...
Hvað eru menn einhvað að rausa um Engilbert og annað þegar kemur í ljós að Valur hefur það ágætt, hafa menn kannski tékkað á því hvað Valur hefur selt af leikmönnum undanfarin ár, einhvað sem Fram hefur ekki gert síðan ég veit ekki hvenær, einhvað sem KR hefði kannski frekar átt að gera í sumar frekar en að selja sína menn á útsölu núna, Valur er einfaldlega langbest rekni klúbburinn á landinu og það er heldur betur að koma í ljós núna.
01:52 | 25 október | 2008

Framari2 said:

...
Það er ágætt að Valsarar.is
eru farnir að fjalla um Fram.
það er svona álíka og stuðningsmannasíður Liverpool fari að fjalla um Manutd.

en annars þá eru þið komnir með Kristján Hauks og Reynir sem mynduðu stærsta djók miðvarðarpar í sögu Fram sumarið 2007.

báðir fínir varnarmenn, en alls engir leiðtogar sem slíkir og verða að hafa alvörumann sér við hlið til að líta ekki ílla út.

bæði Óðinn og Jón orri munu berjast um sæti við hlið Auðuns.

ykkur að segja grenja ég ekkert brotthvarf Reynis.
11:41 | 25 október | 2008

Valur V said:

...
Fæ ég tár, 2007 var allt Framliðið djók eins og svo oft áður, ég þekki ekki Reyni mikið en sýnir hversu góður leikmaður þetta er að Frammarar eru í sjokki yfir þessu, annars er engin að fara berjast við sæti hliðin á Auðunni þar sem hann er á leið í FH, hver veit kannski getur Valur lánað Fram Kristján, hann er jú bara fjórði miðvörður Vals.
12:36 | 25 október | 2008

Guffi El said:

...
Ok

Fram virðist vera áhyggjuefni hér gott og vel en getið þið ýmindað ykkur hvursu mikla peninga þið hafið sparað FRAM undanfarin ár, BUNCH og hver er afraksturin af uppbyggingunni hjá Val ? Mitt mat engin það er ekkert að gerast nema endalaus kaup og spending í ekkert. En við fögnum því FRAMARAR ef að drengirnir hans séra Friðriks séu skyndilega farnir að að vorkenna okkur. En trúið mér don´t worry við erum í frábærum málum, evrópukeppni sem þið eruð ekki í, besta liðið í reykjavík en þið ekki close !!!
Helgi Sig er frábær drengur en ykkur tókst að drepa´nn niður á einu ári,senduð Kristján í Fjölni mín spurning er þessi,
ætlið þið að lána Reyni uppá skaga??

Bestu kveðjur og þakklæti til gjaldkerans hj´aVal, á þessum tímum er gott að menn eru til í að eyða peningum til samkeppnisaðilans smilies/smiley.gif
17:36 | 28 október | 2008

Tryggvi said:

...
"hver er afraksturin af uppbyggingunni hjá Val ? Mitt mat engin það er ekkert að gerast nema endalaus kaup og spending í ekkert."

Helgi var maður mótsins og Íslandsmeistari með Val fyrir ári síðan.

Svo er líka ágætt að minna Framara á að sæti í Evrópukeppni er svipaður árangur og Keflavík náði og ekki voru þeir í neinni skrúðgöngustemmningu að móti loknu smilies/smiley.gif . Leikmenn Fram fá að a.m.k. að skrepa til útlanda á næsta ári sem er líklega meira en þorri þjóðarinnar getur leyft sér og það er vissulega fagnaðarefni.

Það er ágætt ef Fram er í góðum málum en því miður er ekki allt sem bendir til þess.
10:51 | 29 október | 2008 | url

Ási Sveinss said:

...
Pálmi og Birkir???? Garðar G og J ????
16:15 | 29 október | 2008

jónas said:

...
Kannski ljót að segja en hef það eftir aðila innan Fram að fjárhagur félagsins sé í rúst ...Aðal styrktaraðali þeirra voru Stoðir og ég held að Frammarar ættu frekar að krosslegja fingur og þakka guði fyrir ef þeir hafa efni á að fara í evrópukeppni á næsta ári.....tek það fram ég vona það innilega því þeir eiga það skilið eftir sumarið í ár....En veit til þess að fjárhagur þeirra er í tómu tjóni...þá meina ég að það er erfitt ástand fyrir okkur og held að við munum ekki sjá einhver "stór kaup" nú á haustmánuðum eða í vetur heldur fremur að menn fari á milli félaga eftir að þeim sé gert kleyft að gera það því önnur félög hafi ekki getu til að standa við samninga sem gerðir voru við þá í fyrra eða hitti fyrra...en við erum í 100 sinnum betri málum fjárhaldslega en Fram ....því miður er staðan svona núna...
17:18 | 29 október | 2008

Guffi El said:

...
Eh.. 100 sinnum betri staða peningalega (en getið ekkert í fótbolta) smilies/smiley.gif ,, er það sem þið eruð að byggja upp þarna á reit séra Friðriks.
Ég man þá tíð að Valur var eitt stærsta uppeldisfélag á landinu ásamt Fram og KR, en í dag eru kaflaskil allir yngri flokkar Vals í rúst og 2.fl í b deild með 10 iðkendur, það hlítur að valda ykkur meiri áhyggjum en fjárhagur Fram,
það er varla stefan hjá þessum félugum að þurfa að kaupa heilt byrjunarlið fyrir hvert tímabil. En það kemur okkur stuðningsmönnum lítið við hvernig þið framkvæmið hlutina, að lokum vil ég óska ykkur hins alls besta og vonandi er peningastaða ykkar eins góð og þið segið, en Fram er ekki á barmi gjldþrots eða neitt slíkt svo þið getið alveg farið að kvíða næsta tímabili, við verðum þar sterkari en áður.

Bestu kv.
17:35 | 29 október | 2008

heiðar said:

...
Svakaleg uppbygging ási Garðar Gunnlaugs og Pálmi Rafn comm on kantu annan
01:28 | 30 október | 2008

Ási Sveinss said:

...
Heiðar: hvað ertu að reyna að segja??

Væri samt kannski lausn fyrir Fram að selja heimaleikinn út ??
17:03 | 30 október | 2008

Jónas said:

...
vissulega hefur verið vandamál fyrir okkur austurbæinga að halda yngriflokkastarfi uppi og þar er einföld íbúasamsetnig hverfana sem hefur mest áhrif. Þegar ég tala um austurbæinga þá á ég við Val Fram og Víking jafnvel Þrótt....en sér í lagi Val og Fram....'i þessum hverfum eru til að mynda minnstu grunskólarnir í Reykjavík. Segir sig sjálft....En annað er að mér hefur fundist það hafa verið bein tenging milli afreka Félaga í úrvalsdeild og fjármagns...þá er um að ræða sterka bakhjarla til að styðja við liðin...kannast til að mynda við nokkra hjá KR sem vinna í Landsbankanum og ég held að nokkrir hjá okkur vinni hjá Frjálsa....þetta er ekki allt spurning hvort þú fáir greitt fyrir að sparka í bolta þetta er spurning hvar þú færð vinnu meðan þú ert ekki að því....menn verða því miður að líta til þess Guffi E
14:16 | 03 nóvember | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 15. október 2008 10:40