|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Dagskránni lokið |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||||||||||||||
| Miðvikudagur, 29. september 2010 11:40 | ||||||||||||||
|
Íslandsmótinu í knattspyrnu 2010 er lokið. Valur endaði í 7. sæti á mótinu með 7 sigurleiki, 7 jafntefli og 8 tapleiki. Valur vann þrjá heimaleiki þetta árið en aldrei þessu vant lékum við 12 leiki á Vodafonevellinum. Velli sem hefur ekki verið aflasæll fyrir karlaliðið á meðan kvennaliðið landaði þar sínum þriðja Íslandsmeistaratitli. Þann leikvang þarf að gera að alvöru heimavelli ef menn ætla að stíga upp fyrir meðalmennskuna.
Aðrar helstu niðurstöður eru að Gunnlaugur Jónsson er horfinn á braut sem og stjórn knattspyrnudeildar með Börk Edvardsson í broddi fylkingar. Við þeirra hlutverkum hafa tekið þeir Kristján Guðmundsson með Frey Alexandersson til aðstoðar og Friðjón Friðjónsson verður væntanlega formaður knattspyrnudeildar. Er þeim óskað góðs gengis á komandi árum og vonandi tekst þeim að rífa karlaliðið upp úr þeirri lágdeyfð sem einkennt hefur það eftir að Íslandsmeistaratitillinn vannst. Hvað þessa stuðningsmannasíðu varðar þá er komin ákveðin þreyta í þetta hjá okkur sem höfum sinnt henni. Vefsíðan hóf göngu sína á haustdögum 2002 á léninu valsarar.blogspot.com, varð síðar valsarar.tk, svo valsarar.net og loks valsarar.is með tilheyrandi útlitsbreytingum. Það hafa komið tímabil þar sem skrif hér hafa legið niðri en nú er líklega komið mál að linni. Ef einhverjir hafa áhuga á að taka við léninu má hafa samband við Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Besservisserar (7)
![]()
Valur100 ára
said:
|
|
... Sælir, Þakka fyrir frábæra síðu og mjög góðar greinar. Hvet ykkur til að halda þessu áfram á fullu á næsta ári enda risa ár í vændum hjá Val. Vonandi að það bætist frekar í hópinn góðir pennar til að halda þessari síðu líflegri |
|
... Gott mál. Þessi síða er hluti af þessu neikvæða andrúmslofti sem einkennir Val og ég veit að stjórnendur verða dauðfegnir að losna við þetta eilífa væl í þér Tryggvi Jónsson. Nú verður félagið byggt upp á jákvæðum nótum. Áfram Valur! |
|
... Tryggvi Jónsson og co eru með fáum Valsmönnum sem þora að segja sínar skoðanir á hlutunum, í stað þess að loka bara augunum og humma í burtu frá sér staðreyndirnar. (Eins og nafnleysnginn og vitleysingurinn Séra F hér fyrir ofan) |
|
... Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið komið til baka í vor, þið eruð flottastir! Sorgleg ummæli þetta hjá Séra F. |
|
... nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru hrikalega góðir og það veitir heldur ekki af stuðningsmönnum með rödd, sem þessi síða er ! Halda áfram takk. |
|
... Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem munu taka titilinn á afmælisárinnu. |
|
... Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki endalaust gefið sér tíma í svona. |