|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Bölvun Murphys |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Mánudagur, 28. september 2009 13:32 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Vorið kom með væntingar og sumarið með svör orti Bjartmar Guðlaugsson fyrir einhverjum 20 árum síðan. Væntingarnar voru óljósar fyrir þetta tímabil þrátt fyrir að Valur tefldi fram dýru liði. Dýrasta liði Íslandssögunnar sögðu sumir og miðað við árferði þá var sú fullyrðing ekki fjarri lagi. Stjórnin bætti við mönnum sem voru með þokkalegustu ferilskrár en á móti kom að aðeins tveir þessara leikmanna gátu talist vera ungir menn á uppleið. Restin af viðbótunum voru menn í ljósaskiptum á sínum ferli. Fyrir Íslandsmótið var því enn mörgum spurningum ósvarað og undirbúningstímabilið gaf mönnum tilefni til að vera tvístígandi yfir því sem var í vændum. Hér á Valsarar.is voru þessar hugleiðingar meðal annars ritaðar:
Tilvitnun lýkur
Svo þessum spurningum sé svarað nú að móti loknu þá er niðurstaðan á þessa leið:
Við vorum með lið sem vildi liggja aftarlega og síðan dúndra boltanum fram. Vandmálið var bara að Helgi og Marel eru ágætir inn í teig en engan veginn neinir spretthlauparar. Að horfa á Helga Sig hlaupa í átt að hornfána með gapandi munninn og augun á einhverjum háloftaspyrnum er einhver sú úrsérgengnasta leikaðferð sem sést hefur. 5. Sem leiðir okkur að fimmtu fyrir-tímabils-vangaveltunni. Hugmyndabanki Willums var tómur þegar kom að þessu tímabili og leikaðferðin hans sem var fullreynd tímabilið 2008 var einfaldlega dauðadæmd í ár. Hvert einasta lið vissi nákvæmlega hvernig Valur kæmi til með að spila og hvar veikleikar liðsins lágu.
Menn geta bent á árangur Willums og borið saman við árangur Atla en staðreyndin er samt sú að það var ekkert uppbyggilegt í gangi í leik liðsins undir stjórn Willums og það var nauðsynlegt að skipta honum út. Liðið náði vissulega inn nokkrum stigum en það var dottið úr meistarabaráttunni strax í upphafi móts, fékk slæmar útreiðir í tapleikjum og sigurleikirnir voru meira eins og hjá liði sem reiknaði með fallbaráttu. Það var reynt að ríghalda í eins marks forystur gegn meðalgóðum liðum með því að tjalda öllum mönnum inn í eigin vítateig og skrapa út þrjú stig. Þegar þessi aðferð virkaði ekki leit liðið einfaldlega skelfilega út . Menn voru oftar en ekki sundurspilaðir úti á velli og virtust aldrei eiga séns á að koma til baka ef þeir lentu undir. Einnig ætlaði Atli sér að breyta of miklu á of stuttum tíma. Kaupin á Arnari og Bjarka voru til dæmis djörf ákvörðun sem var mögulega hægt að réttlæta á sínum tíma. Það var krafa um að breyta leikstíl liðsins en líkt og allt annað hjá Valsmönnum á þessu ári þá gekk þessi tilraun ekki upp, -svo hlutirnir séu orðaðir pent. Úrslitin hjá Atla voru ekki að falla með okkur en það er erfitt að skella allri skuldinni á mann sem tók við algjöru antifótboltaliði og vildi breyta viðhorfum þess til knattspyrnu.
Það sem er hins vegar helst hægt að deila á þessa stuttu stjórnartíð er að Atli hafði tækifæri til að henda á bekkinn lykilmönnum sem brugðust honum og félaginu og gefa í staðinn ungum leikmönnum eldskírn sína í úrvalsdeild í lokaumferðunum. Öll markmið liðsins voru hrunin eftir verslunarmannahelgi og ekkert eftir nema að huga að næsta tímabili. Arnar Sveinn fékk að reyna sig en menn eins og Haraldur Björnsson, Guðmundur Steinn, Einar Marteinsson og Viktur Unnar hefðu allir haft not fyrir aukna leikreynslu á kostnað áhugalausra eldri leikmanna. Atli kaus að halda tryggð við þá leikmenn sem höfðu komið liðinu í þessa afleitu stöðu frekar en að fara í grimmar hreinsanir. Ef Atli hefði hafist handa við að vinda ofan af ruglinu sem hafði hlaðist upp á síðasta eina og hálfa tímabili væri arfleið hans öllu skárri. Á móti er hægt að spyrja sig hvort að slík tilraunastarfsemi hefði einnig sprungið í andlitið á mönnum. Allt annað klikkaði jú í sumar og það hefði kannski ekki verið á það bætandi að láta unga leikmenn ganga í gegnum álíka niðurlægingar og þeir eldri máttu reyna. Í raun má segja að Lögmál Murphy's hafi hreinlega æpt á okkur; „EF EITTHVAÐ GETUR FARIÐ ÚRSKEIÐIS, MUN ÞAÐ GERA ÞAÐ!“
Af þeim sem eru að renna út á samning er það helst Baldur Ingimar sem er þess verðugur að halda í og jafnvel Steinþór Gíslason. Báðir eru þó búnir að vera lengi frá vegna meiðsla og hreinlega spurning hvort þeir nái sér aftur á strik. Baldur Bett er lítið búinn að sýna, Pétur Markan hefur fengið takmörkuð tækifæri, Marel ekki náð að slá í gegn og Guðmundur Mete er búinn að vera mikið meiddur. Allt eru þetta menn sem hafa átt ágætis feril á íslenskan mælikvarða en eru að nálgast þrítugt. Varla verður samið við þá alla miðað við yfirlýsingar Gunnlaugs um að yngja upp. Tvíburarnir fara svo auðvitað sína leið sem eðlilegt er en ferill þeirra er um margt skrautlegur og aldrei að vita hvar þeir skjóta upp kollinum næst eða hvort þeir hafi jafnvel stigið sinn hinsta dans. Ráðningin á Gunnlaugi er vissulega áhættusöm og gætu sumir talið að nú hlakki í Herra Murpy sem aldrei fyrr. Lítið sem ekkert er vitað um hans þjálfarahæfileika þótt hann hafi komið Selfossi í Pefsí deildina á sínu fyrsta ári. Íslenski boltinn á það til að vera óútreiknanlegur og oft virðist þetta snúast um að ná upp réttu stemmningunni í hópnum. Gunnlaugur kemur til með að taka við erfiðu búi á Hlíðarenda sem þarfnast mikillar endurnýjunnar en það þarf ekki síður að huga að því að rífa fjölmarga Valsmenn upp úr því þunglyndi sem hefur einkennt þá undanfarið. Yðar einlægur er þar meðtalinn. Besservisserar (29)
![]()
Tóti
said:
|
|
... Áhugaverðar pælingar. Auðvitað var liðið ekki að sýna sínar bestu hliðar þetta árið. Allt fór úrskeiðis og stundum er það nú bara þannig. Ég er samt á því að þó liðið myndi vera með sama mannskap á næsta ári þá væri hægt að ná upp fínum árangri. Ég held að menn hafi bara verið komnir með svo uppí kok af öllu saman áður en tímabilið byrjaði að það er nú kannski bara afrek að liðið skyldi hafa haldið sér á endanum í úrvalsdeild! Valsliðið virkaði aldrei sem lið þetta sumarið. Fullt af mönnum sem áttu sína spretti en sjaldnast á sama tíma. Hvað leikmenn varðar uppá næsta ár þá verður það bara spennandi. Allir leikmenn liðsins geta betur en þeir sýndu í sumar. En það sem ég saknaði mest var LIÐSHEILD. Búum aftur til Lið á Hlíðarenda og þá skiptir litlu máli hverjir eru að spila eins og mörg lið sanna. Ég hef svo áhyggjur af því ef það á að hreinsa út af leikmönnum eins og í fyrra. Það verður að passa að það verði ekki of miklar breytingar, auðvitað einhverjar en ekki of miklar. Þessir gömlu eru með samninga og alveg hægt að nýta þá á einhvern hátt. Mér finnst ekki hægt að vonast til að leikmenn sýni á sér fararsnið. Hvað hafa þessir leikmenn gert fyrir Val eins og Sigurbjörn, Helgi og Kjartan? Allt sem hægt er að gera. Og Sigurbjörn gefið okkur öll sín bestu ár á hverju sem hefur dunið og verið frábær. Kemur eitt slakt og þá eru sumir fljótir að gleyma og vilja menn í burtu. Eins og sagt er látið kappið ekki bera fegurðina ofurliði. Horfum á lausnir í þessum efnum og hún er ekki sú að henda öllum í burtu. |
|
... Mistökin voru stjórnarinnar. Ef Willum var búinn á því, til hvers var verið að semja við hann til ársins 2012? En það var nú langt frá því versti afleikurinn, ráðning Atla var eins og ég hef ítrekað í sumar, fáránleg. En nú get ég loksins hætt að væla um það, maðurinn er farinn og kemur vonandi aldrei aftur. Eftir situr sú spurning hvort núverandi stjórn hafi það sem til þarf eftir jafn hrikalegt tímabil. Hún vann fyrir okkur bikarinn 2005 og titilinn 2007 og því gleymi ég aldrei. Menn lifa hins vegar ekki endalaust á fornri frægð. Gulli er síðan algjört spurningamerki, veit ekki hvað mér á að finnast um hann. Vonum það besta bara Áfram Valur! |
|
... Þessi stjórn er búin að drulla svo mikið upp á bak að það hálfa væri nóg. Gulli minntist á það í viðtali þegar hann var ráðinn að hann myndi ráða því hvaða leikmenn koma og fara. Willum, sem er einn mesti naglinn í bransanum virtist ekki hafa neitt um það að segja hvaða leikmenn komu til liðsins og hvaða leikmenn voru látnir fara. Er Gulli að fara ráða einhverju um þetta næsta sumar? Verður Gulli notaður sem strengjadúkka sem stjórnin getur tosað til að vild? Mér líst ekkert á þetta ef við hreinsum meðaljónunum út bara til þess að fá jafnmarga meðaljóna til liðsins í staðinn. |
|
... Menn hafa hér uppi stór orð um Willum og nú er hann tekinn við Keflavík. Nú verður spennandi að sjá hvort Valsarar höfðu rétt fyrir sér með að reka hann. |
|
... Vinsamlegast ekki fara á annað innkaupa fyllerí. Byggja upp í rólegheitunum nýtt lið. |
|
... @Jakob Willum á örugglega eftir að gera gott mót með Keflavík, og það kæmi mér verulega á óvart ef þeir verða ekki meistarakandídatar á næsta ári með þennan massífa hóp sem þeir eru með og Willum sem þjálfara. Willums-effectið á það hinsvegar til að vera ekki til mjög langs tíma, hvort sem það er mýta eða ekki. Það virðist fjara undan hans taktík á c.a. 3 tímabilum eins og dæmin hérlendis virðast sanna. Willum er samt hörku þjálfari, og hetja á Hlíðarenda |
|
... Það þarf að hreinsa til... alveg ljóst... leikmenn sem mega alveg fara eru, Helgi Sig,Arnar og Bjarki hætta pottþétt,Jeffs hefur ekki getað blautan,Reynir Leós, Kjartan... Bjössa langar eflaust að fara reyna sig sem þjálfari og þá spilandi ... Habbó má semja við að nýju.. Lykilmenn að halda eru Baldur Aðalsteins, Marel.. aðrir eru með samning að ég held... |
|
... Ég held að Arnar Gunnlaugs hafi sagt að Willum væri með æfingar eins og í atvinnumennsku en að íslenskir leikmenn séu ekki alltaf tilbúnir að vera lengi í þannig þjálfun. Kannski er það þess vegna sem þetta brennur alltaf upp hjá honum menn fá s.s. leið á álaginu. |
|
... Ég vil halda Bjössa, Kjartani og Helga. Nógur tími fyrir Bjössa að fara að þjálfa. Held að Gulli vilji örugglega halda þeim eins og sennilega flestir. |
|
... ég held að málið sé einfaldlega að treysta Gulla Jóns fyrir þessu verkefni. Hann hefur verið lengi í boltanum og tekur svo við sem þjálfari og nær því að koma Selfoss upp um deild ! Það er afrek sama hvernig þú lítur á það og það á fyrsta ári sem þjálfari. Hann mun einfaldlega líta á hópinn og meta þá leikmenn sem eru tilbúnir að gera eitthvað gagn og virkilega stíga upp fyrir sig og félagið, en ekki bara henda gömlum mönnum burt vegna þess þeir eru gamlir. Það var þannig í sumar að þessir lykilmenn voru að bregðast og að mér fannst þeir gera meira neikvætt en jákvætt. Þá er það skilyrðislaus krafa að menn fari og taki hausinn úr rassgatinu á sér og þrífa það vel fyrst svo þeir geti séð umhverfið sem búið er að skapa og hjálpa til við að laga þetta. Því ungur leikmaður þarf á leiðsögn og fyrirmynd sem hefur mikla reynslu á því að spila og leiða lið. Valur er komið með eina slíka sem er starfhæf akkurat núna, það er Gulli Jóns. Svo efa ég það ekki að menn eins og Bjarni Ólafur eigi hreinlega eftir að verða frábærir fyrir félagið og vonandi leiði hópinn í eitthvða nýtt og betra með komu Gulla. En við í kringum félagið höfum verk líka, það er að sýna stuðning og setja smá trú í þessa gæja. Þá förum við aftur að sjá úrvals lið með úrvals leikmenn að gera það sem þeir gera best. Þetta eru þokkalegar breytingar sem þarf, en ekki stórkostlegar. Umhverfið kringum knattspyrnudeildina er að breytast og það finnst mér vera stærsti parturinn af framþróun sem þarf. Ég fagna því og hlakkar til að mæta til vinnu og finna þennan meðbyr sem er í klúbbnum þessa stundina ! Þannig verum jákvæðir og kveðjum þetta sumar og förum að horfa á það næsta og flykkjum okkur bakvið strákana sem að þurfa að finna þetta frá fólkinu í kring. Þetta er vel hægt, tekur bara smá tíma ! kv Igor B. Kostic |
|
... Ég veit að við munum sjá nýtt og gott lið á næsta ári. Gulli kemur jafnvægi á vörnina og skólar til Atla og Reyni, Halli kemur í markið, Matti verður með Arnar Svein og Viktori frammi og Steini á miðjuna. Helgi og Bjössi fá líka mínútur. Styrkjum liðið þar sem vantar með tveim til þrem ungum gæjum og stimplum okkur inn í toppinn á næsti ári. Þetta verður flott lið. |
|
... Sigurbjörn hlýtur að hætta núna. Þetta er komið gott hjá honum. Þetta er harður heimur og það er ekki pláss fyrir tilfinningasemi í nútíma fótbolta. Helgi ætti helst að fara í uppeldisfélagið sitt Víking og rífa þá. Þeir gætu verið flottir saman í 1.deildinni en Valur getur ekki haldið áfram að spila á þeim. |
|
... Ég skil nú ekki þennan pistil frá 4.fl karla. Að hverjir hafi brugðist? Og að það séu ekki nógar fyrirmyndir fyrir unga leikmenn? Liðið er uppfyllt af mönnum sem hafa unnið allt á Íslandi og myndu teljast menn sem gætu kennt þessum ungu eitthvað. Af hverju var Valur nánast eina liðið sem ungir menn virkuðu ekki í sumar? Eða gamlir leikmenn? Það er þannig að ef ungir eiga að virka þá verða þeir að fá hjálp og af sama skapi ef gamlir eiga að virka þá þarf eldmóður yngri að vera til staðar. Allt þetta gerðist hjá Fylki t.d. í sumar. Lið sem var úti í miklu rugli á síðustu leiktíð. Hvað gerðist núna? Jú það var vel haldið utan um allt þar af þjálfara og umgjörð í kringum liðið var góð. Það hljóta einhverjar ástæður að vera að baki þessari getu í sumar eða getuleysi. KRingar sögðu fyrir 2 árum að þjálfarinn hefði drepið allt niður hjá þeim, gat það ekki hafa gerst í sumar? |
|
... Af hverju segir þú keano að Sigurbjörn hljóti að hætta núna. Maðurinn þó kominn á þennan aldur en nú bara yfirleitt með betri mönnum Vals, þetta á ekkert við tilfinningasemi að gera enda hefur hann verið sá sem haldið hefur klúbbnum gangandi hér á annan áratug og alltaf sýnt annað en væl og volæði eða hinn rétta Valsanda. Ég skil ekki þetta væl útí eldri leikmenn liðsins frá þér Keano og hallast af því að þú eigir eitthvað sökótt við þá eða hafir orðið undir í einhverri rimmu við þá, annað getur ekki verið. |
|
... Sorry meinti auðvitað Jónsi og ég er ósammála honum. (maður les svo oft inná Valsspjallinu eitthvað frá keano að ég gleymdi mér aðeins) |
|
... Fyrsti flórinn sem þarf að moka á Hlíðarenda er stjórnarflórinn. Allt annað getur beðið. Edvardssynir eru ágætir drengir og hafa gert fína hluti fyrir félagið en þeir hafa allt of oft látið kappið bera fegurðina ofurliði og orðið sjálfum sér og félaginu til skammar með skítlegri framgöngu í leikmanna- og þjálfaramálum. Maður er, ótrúlegt en satt, hættur að kippa sér upp við fréttir af því að Börkur sé að tala við leikmenn útí bæ á bakvið félögin þeirra og kaupandi og seljandi leikmenn án þess að ræða við þjálfara eða leikmenn. Til dæmis var Kristján Hauksson seldur án þess að Willum eða Kristján sjálfur hefðu nokkuð um það að segja. Annaðhvort þurfa stjórnarmenn að girða í brók og sýna vinnubrögð sem eru sæmandi okkar félagi; hætta baktjaldamakki og leyfa þjálfurum og leikmönnum að vinna sína vinnu afskiptalaust eða þá þurfum við að taka til okkar ráða á næsta aðalfundi og koma inn nýju fólki í stjórnir sem er reiðubúið að starfa af heilindum og í anda Vals. Annað sumar eins og það sem nú var að ljúka er ekki nokkrum manni bjóðandi. |
|
... Tími Bjössa er liðinn, hann verður 36 ára og það er bara of mikið fyrir miðjumann í efstu deild, ekki nema að þú sért með afburagóðan knattspyrnuheila, Bjössi er ekki þannig týpa af leikmanni, hann á að fá heiðursleik fyrir frábært framlag en hann er sprunginn á limminu núna, að halda öðru fram er afneitun, það þýðir ekkert að tala undir rós með þetta en miðjan var hreint afleit í sumar og árið þar á undan var hún líka döpur. |
|
... Maður er frekar óviss um þessa ráðningu á Willum þegar maður les þessar lýsingar hjá ykkur. |
|
... Willum á eftir að gera stormandi lukku strax á fyrsta seasoni, hann heldur svo uppteknum hætti á seasoni 2-3. Svo má guð einn vera með ykkur í framhaldinu! |
|
... Þið valsarar.is eruð það eina skemmtilega sem hægt er að fylgjast með í tengslum við Knattspyrnudeild Vals. Vel skrifaðir og hnitmiðaðir pistlar ykkar, ylja manni í svekkelsinu viku eftir viku allt sumarið. Fyrir um það bil 10 árum var uppi í netheimum vera að nafni Pulsa. Hún fór mikinn á spjallborði Vals og vakti mikla og talsvert neikvæða athygli að Hlíðarenda. Pulsa akiteraði fyrir því að knattspyrnudeild sem og körfuknattleiksdeild vals yrðu lagðar niður og öllum kröftum og fjármagni sem í þær hefðu farið í gegnum árin yrði varið í handknattleiksdeildina. Markmið Pulsu voru skýr og jafnvel nokkuð raunhæf. Pulsa vildi tefla fram handknattleiksliði í heimsklassa. Ég held að það væri athyglisvert að reyfa þessar pælingar uppá nýtt, nú á þessum síðustu og verstu ! Með von um að þið sinnið handboltanum jafn vel og skemmtilega í vetur og þið hafið sinnt fótboltanum. Þið þurfið á smá egó-bústi að halda eftir sumar hinna vonlausu drauma.. kv |
|
... Hvernig hefur það verið, hefur handboltinn verið að fá umfjöllun hérna á veturnar, ég verð að viðurkenna að handbolti hefur eiginlega aldrei átt upp á pallborðið hjá mér, hef einnig átt það til að svekkja mig á því að hér á árum áður þegar handboltinn naut ennþá smá vinsælda voru strákar jafnvel að velja handboltann framyfir, Valur er fyrst og fremst knattspyrnudeild þar sem árangurinn hefur verið fínn undanfarin ár en þó sérstaklega konunum, síðan kemur handboltinn og síðan karfan, ávallt hefur þetta verið svona á Val og í raun er ég ánægður með þá þróun að góðir íþróttamenn líkt og Arnar Sveinn var sett í forgang á fótboltann. |
|
... Ég vona nú að það myndist einhver áhugi á handboltanum í vetur, ég hef áhuga á honum en hef kannski eins og margir ekki mætt og frekar látið fótboltann ganga framyfir, auðvitað verður þó fótboltinn alltaf númer eitt en það getur líka verið ágætis skemmtun að mæta á handboltaleik. |
|
... Handbolta umfjöllunin hefur yfirleitt verið frekar gloppótt hjá okkur og verður það eflaust áfram. Hins vegar er ég ósammála Loft um að Valur sé fyrst og fremst knattspyrnudeild. Áhuginn og peningarnir eru vissulega þar en handboltadeildinn er mun "meiri Valur", með uppalda menn í flestum stöðum og skilar mönnum í landsliðið og atvinnumennsku á færibandi. Varðandi Pulsuna, þá var hún ekki beint mikill gleðigjafi á spjallinu á sínum tíma. Hugmyndir hennar hefðu mögulega getað gengið á góðæristímabilinu enda eflaust hægt að gera handboltalið á heimsmælikvarða fyrir rekstrarkostnað knattspyrnudeildar síðustu árin. |
|
... Finnur, það sem ég er að segja í þessu kommenti er að menn hafa brugðist. Ef þú ert með þannig hóp sem að hefur unnið allt á íslandi þá á ekki að segja stopp við að halda áfram að sækja titla og fl. Ég er s.s. að benda á að menn voru góðir þá, ekki núna ! Til hvers þá að hafa menn í sínu liði sem detta svona rosalega niður í mótiveringu og fleira og skila ekki neinu til liðsins. Útaf þessari dýfu í öllu saman má segja, hvar er þá ungi maðurinn að fá sína fyrirmynd ? Þeir sjá vont umhverfi andlega, þó það sé góður mórall þá er það ekki grunnurinn af árangri og þeir komast ekki inní hóp sama hvað gengur á. Það er hægt að spjalla við fullt af góðum mönnum og fá fullt af góðum ráðum, en þú lærir mest af því að spila og spila með köllum sem hafa reynslu og leiða hópa ! Svo finnst mér spurning hvort eigi að gefa þeim séns þessum eldri, eða láta þá fara vegna ótrúlega slaks árangurs ! Bara basic pælingar, en ég get ekki farið af því að menn hafi hreinlega brugðist með þessu sumri... |
|
... Ég verð að hrósa Valsara.is fyrir góðan pistil og ekkert verið að væla hérna eins og margir gera þegar lið þeirra gengur sem verst. Einfaldlega bara verið að lýsa hlutunum eins og þeir eru. Maður furðar sig á óförum ykkar í sumar. Miklar breytingar á hópnum og mikið af keyptum leikmönnum. Ég tek undir það sem sumir hafa sagt hér að stjórnin hjá ykkur eigi sökina á hvernig fór. Maður bara vonar að þið náið ykkur aftur á strik því að það er alltaf gaman að fá baráttu hjá ykkur við okkur um Íslandsmeistarartitilinn. Valur er í raun búið að vera eina félagið sem hefur eitthvað ógnað velgengni okkar (FH-inga) undanfarin ár í boltanum og því væri gaman að etja aftur kapp við ykkur um titilinn. Gangi ykkur vel að safna liði fyrir næsta tímabil. |