• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Ávit hins óþekkta
Mánudagur, 11. ágúst 2008 14:53
 

Í kvöld verðum við Valsmenn þess heiðurs aðnjótandi að spila úrvalsdeildarleik í Grafarvogi í fyrsta sinn. Verður þetta jafnframt önnur heimsókn okkar á heimavöll Fjölnismanna en árið 2004 mátti Valur þola að lúta í lægri haldi fyrir Fjölni þegar liðin mættust í 1. deildinni.


 

 

Valsliðið hefur verið að finna sig vel í undanförnum leikjum. Þrátt fyrir að okkar menn hafi kannski ekki yfirspilað Fylkismenn í síðustu umferð virkaði liðið alltaf sterkara og skeinuhættara en gestirnir úr Árbænum. Fylkir er með prýðilegan mannskap en svo virðist þó vera að stóru póstarnir í liðinu séu ekki lengur að skila því á vellinum sem þeir gerðu fyrir nokkrum árum. Þjálfarinn virðist vera ein alls herjar taugahrúga í hvert skipti sem einhver otar að honum hljóðnema og slíkt getur varla haft góð áhrif á liðsandann.

 

 

 

En leikirnir við Fylki eru að baki þetta tímabilið og næst eru það nágrannar þeirra úr Grafarvogi sem bíða okkar.

 

 

 

Oftar en ekki er það aðalmarkið nýliða að halda sæti sínu í deildinni. Líklega hefur komið upp ákveðið spennufall innan leikmannahóps Fjölnis við það að ná 20 stiga markinu. Stigasöfnun Grafarvogspilta framan af sumri þýðir að þeir eru í þægilegri fjarlægð frá fallsætunum og sennilega í mun betri stöðu en þeir gerðu sjálfir ráð fyrir.

 

 

 

Eftir brösulega byrjun á titilvörninni hefur Valsliðið smá saman verið að komast í sitt fyrra form. Margir fjölmiðlamenn virðast ekki gera ráð fyrir neinni atlögu frá okkar hendi þetta árið frekar en á síðasta tímabili. Það hentaði okkur þó nokkuð vel þá og hver nema það gefi góða raun aftur í haust.

 

 

 

Mikill og góður stígandi hefur verið í leik liðsins undanfarið og einnig er ánægjulegt að sjá unga leikmenn fá tækifæri í aðalliðinu. Guðmundur Steinn og Einar Marteinsson eru leikmenn sem eiga framtíðina fyrir sér og verða án efa orðnir byrjunarliðsleikmenn innan tíðar. Albert Brynjar Ingason stimplaði sig skemmtilega inn í síðasta leik og ljóst er að pilturinn hefur fengið gott uppeldi í Árbænum. Valshjartað hefur þó án efa barist um undir niðri líkt og hann á kyn til. Eflaust framtíðarmaður á ferðinni sem á eftir að láta mikið að sér kveða.

 

 

 

Annar ungur leikmaður sem hefur hins vegar lítið fengið að spreyta sig í sumar er Hafþór Ægir Vilhjálmsson. Hans bíður það erfiða hlutskipti að reyna ýta mönnum eins og Bjarna Ólafi eða Henrik Eggerts út úr byrjunarliðinu. Á síðasta tímabili átti Habbó margar góðar rispur og einnig sýndi það sig í Evrópuleiknum gegn Bate á dögunum að heilmikið er spunnið í Skagamanninn. Margir mikilvægir leikir eftir af mótinu og er það vonandi að piltur nái að láta ljós sitt skína þegar tækifærið gefst.

 

 

 

Rúta fer frá Hlíðarenda upp í Grafarvog. Valsarar.is hvetja aðra Valsara að nýta tækifærið og þétta hópinn fyrir átök kvöldsins.

 

 

 

Upphitunarpistil úr fyrri leik liðanna má nálgast hér:

 

 

 

http://www.valsarar.is/index.php/Palingar/Handan-Gullinbruar.html

 

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy