• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Allt okkur að þakka!
Sunnudagur, 24. ágúst 2008 11:54
Image Stærsta afrek íslenskrar íþróttasögu er að baki. Þrír Valsmenn stigu stoltir á stokk og tóku við silfurverðlaunum á Ólympíuleikunum. Sigfús Sigurðsson verður leikmaður Vals á komandi tímabili og heilinn á bakvið heilann í liðinu er aðalþjálfari Vals. Leikstjórnandi liðsins er Valsari og skærasta stjarna íslenskrar handboltasögu lærði allt sem hann kann á fjölunum á Hlíðarenda.

Í gegnum tíðina hafa margir af bestu leikmönnum Íslands komið í gegnum yngriflokkastarf Vals. Til að íslenska þjóðin geti upplifað aðrar eins stundir aftur er ljóst að Valur þarf að halda áfram að framleiða afburða leikmenn.

Slíkt gerist þó ekki að sjálfu sér. Það er ekki bara HSÍ sem þarf að fá styrki frá landsmönnum heldur þurfa félögin sjálf á mun meiri stuðningi að halda. Það er því vonandi að fleiri Valsmenn taki við sér á komandi vetri og kaupi ársmiða og styrki starfið til að frekari afrek geti unnist jafnt á Hlíðarenda sem og á stórmótum landsliðsins. Íslenska þjóðin treystir á okkur.

Að lokum verður að minnast á þátt fjölmiðla. Á meðan Landsbankadeildin hefur fengið fleiri klukkustundir á viku í umfjöllun hefur handboltinn verið hálgert olnbogabarn sem ekkert má tala um. Það er þyngra en tárum taki að ræða þátt RÚV í þeirri niðurníðslu sem umfjöllun um íslensku handboltadeildina hefur verið undanfarin ár. Viðvaningshátturinn hefur verið með eindæmum þar á bæ og hann hélt í raun áfram að lokinni útsendingu úrslitaleiksins. Menn með áratugareynslu í fjölmiðlum gátu varla haldið uppi skammlausri umræðu í nokkrar mínútur. Vonandi verður gerð betrumbót í undirbúningi og umfjöllun hjá þessari skattpínandi ríkisstofnun á komandi árum.

En hvað um það. Í dag er ástæða til að gleðjast yfir ríkulegri uppskeru íslensku handboltahreyfingarinnar. Þrátt fyrir hindranir og mótlæti hefur náðst árangur sem verður minnst um margar ókomnar kynslóðir.

Til hamingju Valur, til hamingju Ísland.

Digg    Facebook   
Besservisserar (4)add comment

FHingur said:

...
Gaman að lesa svona fagmannlega unnar greinar. Hárrétt mat á leiknum. Reyndar sleppti Jóhannes líka að spjalda Sigurbjörn fyrir að stöðva sókn FHinga og ræddi bara við hann. Sennilega hefur rabbkvótinn verið búinn þarna seinna í leiknum. Gangi ykkur vel.
13:32 | 14 september | 2008

Ási Sveinss said:

...
henry birgir gaf Steina 2 í fréttablaðinu!! Óþægilegt að sjá hvað maðurinn á bágt með sig stundum, en hvað getur maður annað gert en að vorkenna honum...
15:14 | 14 september | 2008

Hákon said:

...
Ég er sammála flestu þarna en ekki því að allir aðrir lykilmenn hafi staðið sig illa. Mér finnst Atli hafa verið traustur oft á tíðum og Sigurbjörn hefur verið sterkur í sumar. Gummi Ben hefur líka sýnt flotta leiki. Mér finnst hart að segja allir.
16:09 | 14 september | 2008

Tryggvi said:

...
Ég segi nú ekki beinum orðum Hákon að allir lykilmenn hafi staðið sig illa en mögulega má túlka það þannig. Atli og Bjössi hafa verið prýðilegir eins og þú segir en menn eins og Helgi Sig, Baldur Aðalsteins, Bjarni Ólafur og Kjartan Sturlu hafa ekki uppfyllt þær kröfur sem gerðar eru til þeirra.

Sammála Ási. Þessi einkunagjöf hjá Henry og félögum er auðvitað gjörsamlega ómarktæk. Það kjánalegasta er samt þegar blaðamenn vitna í meðaleinkunnir út frá þessu eins og þarna sé einhver marktæk tölfræði til að vitna í. Því miður lítur HBG sjálfur frekar asnalega út með þessum tölum þó svo að leikmenn Vals hafi alveg átt skilið ákveðna yfirhalninguna.

Og takk takk FHingur.
20:14 | 14 september | 2008 | url

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy